Vísir - 28.12.1965, Side 1
VISIR
Hitaveitan tekur tvær hol-
ur í notkun iiman skamms
Frostin hofa valdið erfidleikum í hitaveitukerfinu
Uppdráttnr af framhlið væntanlegs bamaskóla f Árbæjarhverfi.
það aðaliega fólk í eldri hverf-
um borgarinnar, sem hefur
Fjöidi kvartana hefur borizt
hitaveitunni að undanfömu. Er
B YGGING SKÓLAHÚSS ÍÁRBÆJAR
HVERFIÁ AB HEFJAST í VOR
hringt og kvartað um húskulda.
Hefur mest borið á þessum hita
skorti á Skóíavörðuholtinu og
svæðinu í kringum Landakeí.
Blaðið hringdi í morgun til
hitaveitustjóra Jóhannesar
Zoöga og spurði hann um áhrif
frostanna að undanfömu á hita-
veitukerfið.
- Það hefur gengið á ýmsu
sfðan á jóladag, við höfum haft
varastöðina með í frostunum en
á jóladag varð hún óstarfhæf
vegna kraps. Að vísu er aðeins
annar ketillinn f henni, þar sem
hinn ketillinn er í endursmíði og
verður því verki lokið seinna í
vetur. Vonir standa þó til að
ástandið lagist, við erum búnir
að virkja síðustu holuna og tök
um eina í notkun í þessari viku.
Er það holan fyrir ofan Suður-
landsbraut við Lágmúla. Á þessi
hola að gefa 20 lítra af 130
stiga heitu vatni á sekúndu.
Framh. á bls. 6.
Á síðasta fundi borgarráðs
var rætt um byggingu nýs skóla
i Árbæjariiverfinu, en bygging
hans á að hefjast f vor. Verð
ur skólinn byggður 1 áföngum,
fyrst refst ábna með 12 kennsiu
stofum, sem er aðaliega ætluð
yngri deildum.
Skóli þessi á að verða bæði
bamaskóli og auk þess í honum
1. og 2. bekkur gagnfræðaskól
ans. Bamaskóladeildimar og
gagnfræðaskóladeildimar verða
aðskildar, en alls verða þetta 20
kennslustofur auk ýmissa sér-
greinastofa, svo sem fyrir eðlis
fræði, söng, teikningu, auk
handavinnu og leikfimi.
Skólinn verður staðsettur
skammt frá þeim litla bama-
skóla, sem nú er starfræktur á
þessu svæði.' Hann verður mið
svæðis í Árbæjarhverfinu. Stór
hluti Árbæjarhverfisins er þeg
ar í smíðum en á næstu tveim
ur árum koma viðbótarhlutar
hverfisins til byggingar. Er gert
ráð fyrir þvi að hverfið verði
fullbyggt árið 1969 og þá verði
búsettir í því um 5 þúsund
manns.
Hinn væntanlegi Árbæjarskóli
verður tveggja hæða hús. Hér
er um nýja teikningu að ræða,
sem þeir Sigurjón Sveinsson og
Þorvaldur Kristmundsson hafa
gert. Hún er að því Ieyti lík t.d.
Álftamýrarskóla að fatahengi og
snyrtiherbergi fylgja hverri
stofu.
Mál þetta er nú á því stigi
að verið er að vinna að útboðs
lýsingu. Síðan verður hafizt
handa um að bjóða verkið út
Voru truflaðir af
kínverjaskotum
Skömmu eftir miðnætti í nótt
voru fbúar f Vesturbænum trufl
aðfr og vaktir upp af svefni við
kfnverjaskot og sprengingar.
Var lögreglunni gert aðvart
um þetta og fór hún og tók hóp
unglinga, sem voru að koma af
skemmtun í Hagaskóla. Þegar
út kom tóku þeir að sprengja
kínverja og vöktu með þvf upp
fólk í nærliggjandi húsum.
Nú er harðlega bannað að
sprengja og selja kínverja, þar
BLAÐIÐ i DAG
sem talið er að af þeim geti staf
að hætta. Hefur það oft komið
fyrir að teknar hafa verið meiri
eða minni birgðir af kfnverj-
um, sem smyglað hefur ver-
ið til landsins og seidir krökk-
um og unglingum á okurverði.
Beinir lögreglan þeim tilmæl
um til allra, ekki sfzt foreldra
eða aðstandenda barna að láta
sig vita ef þeir verði varir við
kfnverja eða aðrar púðursprengj
ur í umferð eða sölu, svo hægt
verði að koma í veg fyrir slys
og önnur óhöpp f tæka tfð.
JÓFRÍÐARSTAÐIR HORFNIR
Blokk rís á grunni þeirrn
Þeim er alltaf að fækka,
gömlu húsunum f Reykjavfk. 1
gær var verið aö jafna eltt vlð
jörðu, ekld svo ýkja gamalt,
en nógu gamalt til þess að það
varð að vfkja fyrir nýrri blokk.
Býlið Jófrfðarstaðir við Kapla
skjólsveg var komið inn f miðja
borg.
Fyrir um það bil 40 árum,
þegar tveir bræður tóku sig til
og reistu býli þarna vestur í
mýrinni þótti það óðs manns
æði — að fara að byggja þarna
langt úti í mýri, nei, það myndi
ekki borga sig. En þeir héldu
ótrauðir áfram, reistu íbúðarhús
og hlöðu, nefndu bæinn Jófrfð
arstaði og bjuggu síðan þama
á tveimur hekturum lands.
Á þessum tíma var ekkert
hús þarna i nágrenninu, nema
Framh. á bls. 6.
Bk. 3 Brennur f undlr-
búningi. Myndsjá.
— 7 Aðfangadagskvölds
predikun sr. Jóns
Auðuns.
8 Viðtal við Bjöm
Bjterman.
9 Mutter Courage.
Lelkdómur.
Heil hverfí ratmagnslaus um skeii
Stórhættulegt tiltæki ökumanns
Siðdegis í gær var bifreið ek
iö á rafmagnshelmtaug að Ofna
smiðjunni i Borgarmýri með
þelm afleiðingum að hún var
slltin og mun heilt hverfi þar
í grenndinn' hafa orðið rat
magnslaust unz viðgerð hafði
farið fram.
Er heimtaugin slitnaði mynd
aðist mikill blossi og neistaflug,
en ökumaður bifreiðarinnar
spýtti þá i og hvarf á sömu
stum sýnum. Skrásetnfngar
merki bifreiðarinnar náðist
samt, og reyndist það vera
R 14651.
Lögreglunni þykir hér vera
um 'dðurhlutamikið tiltæki að
ræða og furðulegt að nokkur
vitiborinn maður og með snefil
af ábyrgðartilfinningu leyfi sér
að halda á brott frá slitinni
rafmagnslínu. Þar er stórhætta
á ferð og getur riðið á lffi
vegfarenda ef þeir gera sér
Framh. á bls. 6.