Vísir - 28.12.1965, Blaðsíða 2
wammMaammmmmmmmKaKKmKUsa ^a————i pmm—MBHBBBBiiMHWiaBMBimiMBBMiM—i—bmw^bbbbbbmhbmbímmwí
VÖRÐUR - HVÖT - HEIMDALLUR - ÖÐINN
ÁRAUÚTASPIIAKVÖID
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður miðvikudaginn 5. janúar kl. 20,30 í Sjálfstæðishúsinu.
V í S IR . Þriðjudagur 28. desember 1965.
IR-ingar sigruðu á minn-
ingarmóti L H. MÚLLERS
Þriðja minningarmót um stofn
anda Skíðafélags Reykjavikur
L. H. Miiller var haldið á annan
í jólum í brekkunn! við Skíða
skálann í Hveradölum. Móts
stjóri var sonur L. H. Miillers,
Leifur Miiller, frá Skíðafélagi
Reykjavikur. Margt var um
manninn þar efra, veður gott
en um 20 stiga kuldi og storm
ur. Færtvvar öllum bílum heim
að skála og veitingar allan dag
inn.
Keppendur (6 manna sveit)
mættu frá Reykjavikurfélögun
um Ármann, K.R., Í.R., og Vík
ing. Brautlna lagði íslandsmeist
arinn Kristinn Benediktsson
með mikilli snilld, Kristinn
ásamt formanni Skíðasam
bands íslands Stefáni Kristjáns
syni voru undanfarar.
Hlið voru um 30, brautar<s>_
lengd 300 metrar. Mótsstjóri
setti mótið kl. 1,30 og rétt á
eftir var fyrsti keppandinn
raestur.
Sigurvegarar voru A. sveit
Í.R. í henni voru Sigurður Ein
arsson, Þorbergur Eysteinsson,
Eysteinn Þórðarson og Guðni
Sigfússon. Samanlagður tími
280,6 sek. Nr. 2 var sveit K.R.
í henni voru Leifur Gíslason,
Gunnlaugur Sigurðsson, Einar
Þorkelsson, Hinrik Hermanns
son, tíminn var 298.1 sek. Nr. 3
var sveit Ármanns. í henni voru
Tómas Jónsson, Bjami Einars
son, Arnór Guðbjartsson, Berg
ur Eiríksson. tími þeirra var
304 sek. Nr. 4 var B. sveit Í.R.
í henni voru Jakob Albertsson,
Eyþór Haraldsson, Þórður Sig
urjónsson, Haraldur Haralds
son, tími þeirra var 337.10 sek.
Á eftir keppni fór fram verð
launaafhending og minntist mót
stjórinn við þetta tækifæri á,
að þetta er í 3 sinn að sveit Í.R.
tekur við þessum fagra silfur
bikar, sem ættingjar L. H.
Miillers gáfu á sínum tíma.
Ennfremur er þess að minnast
að í öll 3 skiptin sem hin sigur
sæla sveit Í.R. hefur unnið bik
arinn hafa Þorbergur Eysteins
son og Guðni Sigfússon keppt
með í sveitinni. Í reglugerðinni
er tekið fram að bikarinn þarf
að vinnast 5 sinnum til að vera
unnin til eignar. Þrátt fyrir 20
stiga kulda var skiðaskálinn
við þetta tækifæri fullskipaður
af keppendum, starfsmönnum
og kaffigestum frá Reykjavík.
Áður en keppni hófst lagði
Auður Björg Sigurjónsdóttir
einn yngsti keppandi fyrir
Skiðaráð Reykjavíkur blóm
sveig á minnisvarða L. H. Miill
ers við Skíðaskálann.
Jólamót í handknatt-
leik í KEFLAVÍK
Á annan í jólum var háð hand
knattleiksmót f Keflavík f hinum
örlitla sal, sem íþróttamenn hafa
yfir að ráða þar. Keppt var í einum
kvennaflokki og 6 flokkum karla.
Vann Ungmennafélag Keflavíkur
sigur f 5 leikjanna, en Knatt
spyrnufélag Keflavíkur í tveim.
Dómari í öllum leikjunum var
Danfel Benjamínsson frá Reykjavfk
og bar öllum saman um að hann
hefði dæmt vel í þessari „maraþon"
lotu.
Margir leikjanna voru mjög
spennandi eins og sjá má af úrslit
unum, en þau urðu þessi:
Kvennafl.: KFK—UMFK 14:5.
Karlaflokkar:
4. fl. A KFK—UMFK 11:9.
4. fl. B UMFK—KFK 17:16.
3. fl. A UMFK-KFK 10:7.
3. fl. B UMFK—KFK 17:16.
2. fl. UMFK—KFK 20:18.
Mfl. UMFK—KFK 36:24.
Mikil starfsemi Tennis- og
badmintonfélagsins
Aðalfundur Tennis og
badmintonfélagsins var ný
lega haldinn í Tjarnarbúð
uppi. Var fundurinn vel
sóttur og málefni félagsins
rædd ýtarlega. Varafor-
maður fráfarandi stjómar
Ragnar Thorsteinsson
flutti skýrslu yfir starfsemi
félagsins sl. ár, en formað-
iurinn Jón Höskuldsson er
nýlega fluttur til Stykkis-
hólms og gat ekki mætt á
fundinum.
Kom fram í skýrslu stjómarinn
ar, að starfsemin hefur verið mik-
il sl. ár. Tvö innanfélagsmót í
badminton voru haldin sl. vetur
auk innanfélagskeppni sem stóð
lengi vetrar. Auk þess sá félagið
bæði um Reykjavíkurmót og ís-
landsmót í badminton.
Æfingatímar vom sl. vetur 1
mörgum íþróttahúsum borgarinnar
en sameiginlegur æfingatími á
laugardögum í íþróttahúsi Vals.
Fastur kennari á vegum félags-
ins var Garðar Alfonsson og annað
ist hann kennslu hjá unglingum
og nýliðum, en félagið lagði ung
lingum til ókeypis æfingatíma.
Þá gekkst félagið fyrir því, að
hingað komu á s.l. vetri fjórir af
snjöllustu badmintonleikurum
Dana og kepptu hér og sýndu
íþróttina, Kostaði félagið þessa
heimsókn að öllu leyti.
Þá gat varaformaðurinn þess, að
eftirspum eftir æfingatlmum ykist
stöðugt og í haust hefði ekki tek
izt að útvega nærri öllum, sem
þess óskuðu æfingatíma. Þrátt fyr
ir það væri um 500 manns sem
æfði á vegum félagsins í vetur.
Fjárhagur félagsins er góður og
gat það lánað nokkra upphæð á
sl. hausti til íþróttabandalags
framhald á bls. 13
ATH.:
HÚSIÐ OPNAÐ
KL. 20.00
BYRJAÐ VERÐUR
AÐ SPILA
KL. 20,30
STUNDVÍSLEGA
GLÆSILEG SPILA-
VERÐLAUN
ÁVARP KVÖLDSINS
FLYTUR DR. BJARNI
BENEDIKTSSON
FORSÆTISRÁÐHERRA
SKEMMTIATRIÐI:
•> •> •>
DANS.
Sætamiðar afhentir í Skrifstofu Sjálfstæðisflokksins á venjulegum skrifstofutíma.
Skemmtinefndin.
ÐBIftfi#;-’ OORMMÍHII