Vísir - 30.03.1966, Blaðsíða 8

Vísir - 30.03.1966, Blaðsíða 8
s V 1 S I R . MiðvSkudagur 30. marz 1966. VÍSIR Dtgefandi: Blaðaútgáfan VISIR Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjðran Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ö. Thorarensen Auglýsingastj.: Halldór Jónsson Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 iinur) Auglýsingar og afgreiðsla Túngötu 7 Áskriftargjald: kr. 90,00 á mánuði innanlands f lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Vfsis — Edda h.f. Tala tungum tveim Stjómarandstæðingar komast oft illilega í mótsögn við sjálfa sig. Svo er oft um þá, sem reka hentistefnu. Kommúnistar hafa haldið því fram lengst af síðan viðreisnarstjórnin var mynduð, að hún væri aðeins stjórn hinna ríku, hugsaði um það eitt, að ævintýra- menn og braskarar gætu safnað sem mestum auði, og afkoma almennings væri í samræmi við það. Þjóð- viljinn hefur hvatt verkamenn og launastéttimar til þess að krefjast æ meira í sinn hlut og æst eftir mætti til kaupdeilna og verkfalla. Eftir þessum skrifum Þjóðviljans og ræðum kommúnista ætti allt að vera komið í strand og almenningur tæplega að hafa til hnífs og skeiðar. * En nú kom að því, að taka ákvörðun um alumín- bræðsluna. Hún er að sögn kommúnista sá þjóðar- voði, að annar eins hefur varla að íslendingum steðjað fyrr eða síðar. Rök fyrir þessari hættu vom samt af skornum skammti, en gegn málinu skyldi barizt með öllum tiltækum ráðum. Þá varð það helzt til ráðs, áð snúa alveg við blaðinu og halda því fram, að hagur þjóðarinnar væri svo góður, að hún þyrfti ekkert á slíkum atvinnurekstri að halda. Og nú áttu kommún- istar ekki nógu sterk orð til þess að lýsa því, hve hag- ur landsmanna væri glæsilegur undir forustu þessarar sömu ríkisstjórnar. í umræðunum á Alþingi fyrir jólin í vetur sögðu þeir Lúðvík Jósefsson og Magnús Kjartansson að þjóðin hefði „aldrei haft jafnmikla og góða möguleika til mikilla framkvæmda og framfara“ og að „við þyrftum sannarlega ekki að blygðast okkar fyrir þá efnahagsþróun, sem hér hefur orðið á undanfömum áratugum og efnahagslega séð værum við betur færir til þess e nnokkru sinni fyrr að ráðast í ný verkefni". Og Einar Olgeirsson, sem ekki er vanur að skera utan af hlutunum, sagði á Alþingi h. 16. þ. m. ,að við værum nú með fremstu löndum veraldar, hvað efna- hag snertir, a.m.k. árstekjur almennt, þó kannski ríkidæmið sé ekki á við aðrar þjóðir“. Um Framsóknarmenn þarf ekki að eyða mörgum orðum. Þeir báru kápuna á báðum öxlum í þessu máli eins og öðrum, en komust loks að þeirri niður- stöðu, að betra myndi upp á kjörfylgi að vera á móti málinu. En hvers vegna í ósköpunum þeir halda það, er hins vegar lítt skiljanlegt. Ríkisstjómin má vel una þessum dómi andstæð- inga sinna um afkomu þjóðarinnar. Þetta er auðvit- að ekki annað en það sem alþjóð veit, en dálítið bros legt að þurfa skyldi alúmínverksmiðju til þess að stjómarandstæðingar viðurkenndu það. Hitt er svo annað mál, að ríkisstjórninni er það ljósara en stjóm- arandstæðingum virðist vera, að góðærið varir ekki um aldur og ævi, og þess vegna þarf þjóðin að hafa aðra möguleika til efnahagslegs öryggis, ef sjávarafl- inn bregzt. Tíu tónskáld á árslaunum Þorkell Sigurbj’órnsson tónskáld segir frá Sviþjóðarferð Þorkell Sigurbjömsson tónskáld er nýkominn heim úr Svíþjóðarferð á- samt nokkrum öðmm ís lenzkum tónlistarmönn- um, en allir eru þeir þátt takendur í félagsskapn- um Musica Nova. Rabbaði tíðindamaður blaðsins við Þorkel fyrir skömmu og spurði hann tíðinda úr ferðinni. — Þetta var allt komið í ein- daga, segir Þorkell fyrst, viö höfðum fengið boð frá Svea Galleriet um að koma og kynna íslenzka tónlist á tvennum tón- leikum og átti sú kynning að vera í tengslum við íslenzku málverkasýninguna, sem var haldin í ABF-húsinu í Stokk- hólmi. Það var farið fram á styrk frá Norræna menningar- sjóðnum til fararinnar, en þeg • ar dróst að svarið kæmi gekk menntamálaráðherra í ábyrgð fyrir okkur og gerði okkur kleift að fara. — Það hafa borizt fregnir af því að á tónleikunum Hafið þið flutt a.m.k. tvö ný tónverk. — Já, þetta stykki mitt, sem var frumflutt var dúó fyrir fiðlu og celló og stykki Leifs Þór- arinssonar var tríó fyrir klari- nett, celló og píanó. Flest af þessu, sem við spiluðum hafði ekki heyrzt í Svíþjóð áður eða ég geri ekki ráð fyrir því nema e.t.v. allra elztu verkin. En viö ætluöum semsagt að sýna þver skurð af íslenzkri komposition og reyna að hafa sem ólíkust verk og dálítið mismunandi hljóðfærasamstæöu. — Og hvernig voru viðtök- umar? — Okkur var prýðisvel tekið. Formaöur sænska tónskáldafé- lagsins, Gunnar Bucht og kona hans Bergljot héldu boð fyrir okkur strax, þegar við komum á staðinn og sömuleiöis Birger Olsson forstöðumaöur Hasselby Slot, norrænu menningarmið- stöðvarinnar, en þar héldum viö fyrri konsertinn. Svo var okkur boðið til hádegisverðar til sænska útvarpsins þar sem tók á móti okkur Bengt Ham- braeus, sænski komponistinn, sem er yfir kammermúsíkdeild inni, og sömuleiðis hafði ís- lenzka sendiráðið eða Árni Tryggvason og hans ekta- kvinna boð fyrir okkur. Þar fyrir utan hitti ég gamla kenn- arann minn, Vilhelm Lansky- Otto og son hans Ib. Báðir eru þeir aktivir í grúppu, sem heitir Musica Nova eöa sama nafninu og okkar félagsskapur, þessi Musica Nova hjá þeim er innan Fílharmoníuhljómsveitarinnar. Okkur var einnig boðið á kon- serta hjá útvarpshljómsveitinni og var stjómandi hinn heims- frægi rússneski dirigent Fyrin Kondirasjin og einn- ig var okkur boöiö á lokaða gen eralprufu á Boris Godunov eft ir Moussorgsky og var höfuð- rullan sungin af Kim Borg, sem dó héma tvisvar um árið. Já, hann kom hingað og söng í óperu og dó svo sannfærandi að áhorfendur héldu hann í al- vöru dauðan. — Gafst ykkur ekki kostur á að hitta sænsk tónskáld og ræöa við þau um hugðarefni ykkar? Bæði hjá Gunnari Bucht, hjá sænska útvarpinu og hjá sendi ráðinu var samankomið ýmist áhrifafólk í sænska músíklif- inu. — Hvernig er afstaðan í Sví- þjóð til nútímatónlistar? — Svíar hafa mjög marg- þætta tónlistarstarfsemi og í sænska útvarpinu er rekinn tón listarskóli þar sem pensúmið er eingöngu nútímaverk, einnig gefa þeir út tímaritið Nutida Musik, og er ekki að sjá annað en að í Sviþjóð sé mikill áhugi á því að fylgjast vel með. Þeir hafa t.d. boðið til sín ýmsum Þorkell Sigurbjörnsson leiðandi persónum í alþjóðlega tónlistarlífinu, svo sem kennur um og fyrirlesurum og maöur heyrir oft frá sænskum komp- onistum á alþjóðavettvangi. I haust á svo I.S.C.M.-hátíðin að vera í Stokkhólmi og þar á að spila verk eftir Leif Þórarins- son. — Svo við snúum okkur aft- ur að Musica Nova, þá hafa þeir stofnað sinn félagsskap á eftir ykkar? — Já, en þeir hafa haft ann- an hóp, Fylkingen, sem ein- göngu hefur haft konserta með nútímatónlist. — Hvað má þá segja um stefnu Svía í tónlistarmálum? — Þeir láta sér a.ip.k. annt um sína komponista. Ríkið veit ir 10 leiðandi komponistum árs laun og er það akademían, sem veitir þessi laun til lffstíöar. — Nokkuð svipuð heiöurs- launaflokknum okkar? — Já, nema aöeins það að þeir lifa alveg af þessu. Auk þess nota þeir allar mögulegar útbreiðsluaðferðir til þess að kynna þessa menn umheiminum og sænska útvarpið og hljóm- plötufyrirtæki gefa út verk þess ara manna. — Aö hverju öðru beindist at hygli þín mest í tónlistarlífi Svla? — Hvað allt var vel skipu- lagt þar. Og einu tókum við eft- ir að við heyrðum á mörgum framámönnum f tónlistarlffi þar að þeim þótti mjög miður að við Islendingar skyldum hafa guggnað á því að halda norrænu tónlistarhátíöina núna f vor, Framh. a bls. 4 I. ý' ■' 1 í. i '■ 1 V t V '

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.