Vísir - 30.03.1966, Síða 9

Vísir - 30.03.1966, Síða 9
V I S I R . Miðvikudagur 30. marz 1966. 9 Tekið var við þrotabúi vinstri stjórnarinnar Jókvæð stefha hefur bjargað þjóðarhag Ræða Ingólfs Jónssonar landbúnaðarróðherra við út varpsumræðurnar ú Alþingi ú föstudogskvöldið Vantraustið hefur vakið furðu manna, einnig meðal liðsmanna Framsóknarflokks og Alþýðu- bandalags. Vitaö er, að stjóm- arandstæöingar hafa ekkert aö bjóða þjóöinni. Sundurlyndi og úrræðaleysi þessara flokka muna flestir, þótt liöin séu 8 ár frá því að þeir gáfust upp við að stjórna landinu. Þegar núverandi ríkisstjóm komst til valda tók hún við þrotabúi vinstri stjórnarinnar. Allir sann- gjamir menn viöurkenna að stjómarflokkunum hefir tekizt að leysa ýmsa þætti efnahags- vandamálanna og vinna þjóð- inni á ný traust og álit sem áður var glatað vegna skulda og vanskila erlendis. Höfuðverk | efni núverandi ríkisstjómar hef- ið verið annars vegar aö bjarga fjármálunum út á viö og hins vegar að byggja upp atvinnulíf- ið og bæta lífskjör almennings Spumingin er þá sú hvort þetta hefur tekizt. Um fjárhaginn út á við þarf ekki að ræða, þar sem gjaldeyrisvarasjóður yfir tvö þús. millj. kr. talar sínu máli. Atvinnuvegir landsmanna voru í strandi þegar núverandi ríkisstjóm tók við. Fram- leiðsla landbúnaðarvara hafði dregizt saman svo að flytja varð inn smjör i ársbyrjun 1960 í þingtíðindum frá 1959-1960 má lesa þingræður Framsóknar manna þar sem því er haldið fram, að landbúnaðurinn hljóti að dragast saman, að innflutn- ingur á landbúnaðarvörum veröi varanlegur vegna þess að ríkisstjórnin muni búa illa að landbúnaöinum. Staðreyndim- ar eru aðrar. Með tilfærslu í fram- leiðslu verður landbún- aðarframleiðslan ekki of mikil. Nú hafa margir áhyggjur af því að landbúnaðarframleiðslan sé of mikil. Það er vitanlega á- stæðulaust að hafa áhyggjur af því, þótt rétt megi telja að færa nokkuð til milli framleiðslu- greina eins og rætt hefur veriö um af hálfu Bændasamtakanna. Sú tilfærsla þarf að fara skipu- lega fram með nákvæmri athug un, svo ekki verði mjólkurskort ur á aöalmarkaðssvæðunum. Ef lítil framleiðsla á landbúnað- arvömm stafar af því, að illa er búið að bændum, en tæplega þarf að efa að sú hlyti ástæðan að vera, þá er augljóst að mikil framleiðsla stafar af því að sæmilega hefur verið búið að landbúnaðinum. Ræktunin mun hafa verið á sl. ári nærri því helmingi meiri en hún var 1958. Vélakaup og ýmsar framkvæmd ir í landbúnaðinum hafa aukizt að sama skapi. Þetta er lofs- vert og kemur þjóðinni allri til góða nú þegar, en ekki sízt þeg- ar frájlíöur, það mun sannast síðar. Bændunum hefur fækkaö nokkuð vegna þess að lélegar jarðir og afskekktar hafa farið í eyði og smærri jarðir lagöar undir aðrar til þess að gera skil yrðin betri til búrekstrar. Verö- lagsmál landbúnaðarins voru leyst með heppilegum hætti á sl. hausti, eftir að verðlagslög- gjöfin varð óvirk. Þingmenn Framsóknarflokksins reyndu að magna upp óánægju meöal bænda með búvöruverðið. Til- raunir í þá átt fengu ekki hljómgrunn hjá bændum. Ríkis stjómin skipaði nefnd sl. haust til þess að vinna að endurskoð- un verðlagslöggjafarinnar, með það fyrir augum að endurvekja samstarf framleiðenda og neyt- enda um verðlagningu búvöru. Nefndin varð ekki sammála. Til lögur og álit meirihluta og minnihluta eru nú í athugun hjá ríkisstjóminni. Nauðsynlegt að hafa meira fé til vegamála, þrátt fyrir mikla aukn- ingu í seinni tíð. Oft er talaö um samgöngu- málin og lélega vegi hér á landi Til vegamála var varið á sl. ári um 400 millj. kr. en ekki nema 80 millj. kr. 1958. Vega og vísitala 1965 hafði hækkað um 86% frá þeim tíma. Þótt þetta sé miklu meiri hækkun heldur en nemur aukinni um- ferð og hækkuðum vegagerðar- kostnaði má segja að brýn nauö syn sé á að auka tekjur Vega- sjóðs frá því sem nú er. Vega- gerð i okkar strjálbýla landi er mjög dýr. Reykjanesbrautin var dýr en vitnar um hvað koma skal og hvernig vegir eiga að vera, þar sem umferðin er mest. í okkar stóra og strjál- býla landi er erfiðara að leysa þessi mál með hraða, heldur en i hinum þéttbýlu löndum. Á ís landi eru aðeins tæpir tveir menn á ferkílómetra. í hinum þéttbýlu löndum eru 50-100 manns á hvern ferkílómetra, í Danmörku um 80 manns. Þaö er ekki undarlegt þótt vegimir séu aö jafnaði betri þar sem margmennið er. Þótt stjómar- andstæðingar og þá helzt Fram sóknarmenn tali oft af vandlæt- ingu um hversu litlu fé sé var ið til vegamála verður það tæp lega tekið alvarlega þegar tek ið er tillit til þess hvemig búið var að þessum málum þegar þeir höfðu völdin. Til flugvalla gerða verður varið á árinu 1966 56 millj. kr. Mun það vera tólf sinnum meira heldur en veitt var til þessara mála 1958. Hef- ur mikið áunnizt í framkvæmd þessara mála. Þótt mikið sé ó- gert til þess að fullnægja þörf- inni til frambúðar. Góðæri og uppbygging. Stjórnarandstæðingar hafa oft rætt um góðæri sem verið hafi undanfarið og þess vegna hafi ríkisstjómin lifað. Góðæri hefur vissulega verið og ber að þakka það og vona að svo verði Ingólfur Jónsson landbúnaðarráðherra áfram. Aflabrögð síðari árin hafa' veriö ágæt sérstaklega á síldveiðum. Reyndir sjómenn segja að síldin hafi því aðeins veiözt, að til voru stór fiskiskip með nýtízku tækjum. Síldin hef ur oft verið langt frá landi og ekki mögulegt fyrir smærri skip að stunda veiðar á fjar- lægari miðum. Fiskiskipastóll- inn hefur verið stóraukinn bát ar um og yfir 100 brúttólestir voru aðeins 49 að tölu 1958 en hefur fjölgað um 123, en rúm- lestatalan þó ennþá meira eða um nærri 300%. Um verksmiðj ur og iðjuver má segja að aukn ingin sé í samræmi við vöxt skipastólsins. Ef ekki hefði ver ið skipt um stefnu í fjárhags- og gjaldeyrismálum var úti- lokað aö þjóöin gæti aukið skipastólinn og byggt verk- smiðjur. Fyrir hendi var hvorki gjaldeyrir eða lánstraust til þess að ná tækjunum heim. Þjóð in hefði orðið að vera án síldar- innar sem sótt var á djúpmið og án þeirra tekna og gjaldeyris sem fyrir þessi verðmæti hefur komið. 1 atvinnumálum þarf að vera raunsæi, hyggindi og fram- tak við aukningu vinnuaflsins í landinu. Þjóðinni fjölgar ár- lega um nærri 4 þús. manns og það verður að tryggja at- vinnu fyrir alla. Það verður að efla þær atvinnugreinar sem eru fyrir í landinu eftir því sem unnt er. Vinnsla sjávarafurða og landbúnaðarvara getur tekið við auknu vinnuafli. Þótt að þessu sé unnið og hagræðing og hvers konar viðleitni til aukinnar tækni og nýtingar hrá efna verði notuð, er nauösyn- legt eigi að síður að taka upp nýjar atvinnugreinar ef þær reynast hagkvæmar. Virkjun stórfljótanna gefur þá raforku sem þjóðin þarf til venjulegra nota og aukins iðnaðar. Vatnsorkan því aðeins verðmæt, að hún verði notuð. Nú stendur fyrir dyrum stór- virkjun í Þjórsá. Er það vissu- lega gleöiefni. Miöað við aörar þjóðir nota íslendingar mikiö rafmagn. Rafknúin heimilistæki eru notuð hér á flestum heimil- um, þar sem aöeins efnaðri heimili Ieyfa sér slíkt víöa er- lendis. Rafvæöing landsins er vel á veg komin. Eftir aö 10 ára áætluninni lauk hefir verið unnið að lagningu rafmagns til bæja með meðal fjarlægð 1-1.5 km. Síðar verður sennilega tek in fyrir vegalengdin 1.5-2 km. Þess veröur ekki langt að bíða aö allir Islendingar hafa raf- magn. Frá Þjórsárvirkjun fær stór hluti landsmanna ráforku. Meö því að virkja á hagkvæman hátt verður raforkuverðið 62% lægra fyrstu árin heldur en ef virkjunin væri smærri og eingöngu miðað við venjulega notkun landsmanna. Með því að leyfa byggingu álverksmiðju er mögulegt að virkja á ódýrasta máta og tryggja almenningi hagkvæmara raforkuverð. Verk smiðja er einnig spor í þá átt að gera atvinnuvegina fjöl- breyttari og skapa gjaldeyris- tekjur í þjóðarbúið. Stjórnar- andstæðingar segja að ekki sé tímabært að byggja verk- smiðjuna hérlendis. Norðmenn hefðu gjarnan tekið við henni. Þeir taka við erlendu fjármagni og selja erlendum aðilum raf- orku til stóriðju, Norska þjóðin hefir notið góös af því. Stjómar andstæðingar vilja með and- stöðu sinni við hagkvæma virkj un við Þjórsá leggja þungar byrðar á almenning með 62% hærra raforkuverði en vera þarf Fjölbreytt atvinnulíf, góð lífskjör. Stefna ríkisstjórnarinnar hef- ir verið sú að efla atvinnuveg- ina. Að tryggja öllum lands- mönnum nægilega vinnu og bæta lífskjör. Til þess að fá svör við því hvort þetta hefir tekizt er auðveldast að spvrja menn úr öllum stéttum hver reynslan er f þessum efnum. Ég hefi rætt við marga um þessi mál. Verka- maður með 5 manna fjölskyldu segir m. a.: „Það hefur aldrei verið mögulegt að komast af með 8 stunda vinnudag, ef menn vildu veita sér margt umfram brýnustu nauðsynjar. Áður var oft atvinnuleysi en nú hafa allir vinnu. Ríkisstjómin hefir unnið að því að efla atvinnuvegina og tryggja þannig nóga atvinnu fyrir alla. Sú stefna horfir til heilla og framfara fyrir þjóðina. Kjörin eru nú jafnari og betri en áður. Öryggi þeirra sem minnst eiga er stóraukið með atvinnuöryggi og eflingu al- mannatrvgginga. Við treystum því að ríkisstjómin vinni áfram að framförum og bættum lífs- kjörum almenningi til handa. Þannig talaði verkamaðurinn, þannig tala aðrir launþegar, sem skoða málin á hlutlausan hátt. Bændur gera sér á sama hátt grein fyrir þvi að mögu- leikar þeirra eru aðrir og betri heldur en var áður. Nú efast enginn, sem þekkir til landbún- aðar um gildi hans fyrir þjóð- félagið og framtíðarmöguleika. Sjómenn og útgerðarmenn vita hvers virði uppbygging sjávar- útvegsins er og sú aukning á skipastól og vinnslustöðvum sem hvarvetna hefur orðið. Kaupsýslumenn þurfa nú ekki að eyða hálfum vinnutímanum á biðstofu nefnda til þess að fá innflutnings- og gjaldeyris- leyfi eins og áður var. „Hin Ieiðin“ skönuntun, höft. Með auknu frelsi i verzlun og viðskiptum hefur komið vöru- úrval og bætt aðstaða fyrir all- an almenning að velia og hafna í stað þess að taka áður við þvf sem á boðstólum var eða fá ekkert að öðrum kosti. Hafta- og skömmtunarstefnu Fram- sóknarflokksins hefur verið kastað fyrir borð og verður von andi aldrei aftur tekin upp. Það hefur þó komið greinilega fram, að „hin leiðin“ sem Fram sókn vill fara er leið hafta- og skömmtunar. Þjóðin hefur heil- brigða dómgreind og lætur ekki blekkjast. Þess vegna er al- mennt brosað að vantrausttil- lögu uppgiafar og kreppuflokk- anna. Þjóðin vill ekki vfkja af vegi framfara og uppbyggingar. Hún vill ekki kalla vfir sig ráð- leysi Framsóknar og Alþýðu- bandalags, sem virðast ekkert hafa lært á þeim átta árum, sem þessir flokkar hafa búið við valdaleysi. Það er skylda að vinna ávallt ákveðið að alhliða uppbyggingu atvinnulífsins, hvers konar framförum og bætt- um lífskjörum þjóðarinnar. Með þvf að efla almannatryggingar eins og nú hefur verið gert, er hagur þeirra sem ver'st eru sett- ir bættur. Ólafur Thors lýsti því sem stefnuatriði Sjálfstæð- isflokksins að tryggja bæri alla íslendinga gegn skorti. Sjálf- stæðismenn hafa fylgt þeirri stefnu og munu ávallt fvlgja henni. Það verður bezt gert með þvf að efla atvinnulífið og al- mannatryggingamar: Þá munu þeir, sem þarfnast hjálpar fá nægilega aðstoð og þjóðfélags- heildin eflast. ☆

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.