Vísir - 26.05.1966, Síða 9

Vísir - 26.05.1966, Síða 9
V I S I R . Fimmtudagur 26. mai 1966. &r á Fyrir nokkru kom út ný ljóöa- bók eftir Matthías Johannessen ritstjóra. Bókin er út gefin af Almenna bókafélaginu og nefn- ist „Fagur er dalur“. Þetta er fimmta ljóðabók Matthíasar, þær fyrri voru: „Borgin hló“, sem kom út 1958, „Hólmgöngu- ljóö“ árið 1960, „Jörö úr ægi“ árið 1961 og „Vor úr vetri“ ár- iö 1963. Hin nýja kvæðabók hefst á tileinkunarkvæði er nefnist „Stúlka með brún augu“. Síöan skiptist hún niöur í sex hluta: Sálmur á atómöld, Ó, þetta vor, Myndir í Hjarta mínu, Hér slær þitt hjarta land, Goðsögn, Frið- samleg sambúð. Það er öirðugt, að lýsa með fáum orðum anda eða inntaki ljóöa Matthíasar, eöa aö hverju hann stefnir. Þegar litið er yfir Ijóðabækur hans virðist þó mega ráöa, að hann er að leita að nýj- um formum, kvæöi hans eru ennþá tilraun, eins og hann sé að leita að réttri nótu á píanó- inu. Það er eins og hann vilji segja: Við lifum á atómöld og við okkur blasir óráöin og ugg- vænleg framtíð. Nú þegar eru allt í kringum okkur í daglegu lífi okkar óteljandi hlutir og fyrirbæri sem við þekktum aldr- ei áður. Við verðum að hafa djörfung til að lifa í ókennilegum heimi nútímans og hættulegum heimi framtíðarinnar. Öðru vlsi verðum við ekki menn nútím- ans. Þó söknum við stöðugt þess sem var, þar standa rætur okk- ar, þar var allt það mannlega, sem við elskuðum og þráðum. Vísir vill gefa lesendum sín- um tækifæri til að kynnast skáld skap Matthíasar og birtir hér nokkur ljóð úr nýju bókinni hans, eitt úr hverjum hinna sex flokka. Úr „Goðsögn' Eður hvat? var spurt inn í kæfandi reyk frá gömlum kurllúnum hlóðum og kona með djúpar rúnir víkingahefndar í hörðum svip líkt og ristar á kefli ljóða og galdurs horfir spyrjandi augum til hafs, skýtur það kjóabríngum þar sem öldurnar búast til flugs, ávallt sama spurn egg kvíðans í kölkuðu brjósti — eður hvat? hv.ort sigur fold í mar eða rís hún aftur þessi gamla jörð gróin við lif okkar, spyrja slitnar konur, við sjáum augu þeirra enn: lýsandi kýndla í storknuðu hraunmyrkri, orð þeirra deyjandi ákall úr rótfúnum sverði tíma og stundar: Vituð ér enn — eður hvat? Við Galtará í huganum ég geng að Galtará er gleðin hlær í augum dals og hjalla. Viö eigum báðir eina og sömi: þrá til efsta tinds og jökulhvítra fjalla. Og stúlkan þín sem áður undi hér ber einnig ljúfa gleði hjarta minu. Og ennþá flytur þrösturinn frá þér sinn þýða klið og unað landl sínu. Og sólin leggur vorsins vinartraf á vínrautt landið nátengt þínu blóði. Og þar sem heiði hallar norður af ég heyri ennþá klið af þínu ljóði. Úr „Sálmar á atómöld' Asklok er ekki himinn. Og ég trúi því ekki að kistulok taki við af himni og heiðum stjörnum. En af dauðinn er stjörnulaust myrkur, yppti ég kæruleysislega öxlum og tek í nefið. Eöa hvaö á ég að gera þessa löngu nótt milli þfn og okkar. Farfuglar Augu mín eru farfuglar sem flugu inn i hjarta þitt. Nú sitja þeir á greinum trjánna og syngja þér vorljóð. Hjarta þitt er aldingarður með trjám og hlýju grasi og sól sem brosir í skuggalausri þögn. Þar hafa áður setiö fuglar og sungið, nú eru þeir flognir i aðra garða. Og seinna þegar haustvindamir taka að næða um garðinn þinn munu einnig mínir fuglar fljúga úr greinum trjánna. En ég hlakka ekki til því að þá verður þú vina mín aðeinr minning sem fylgir þeim yfir hafið. r r O þetta vor Ó þetta vor með hnegg . haga syrarrós milli vatnsslípaðra steina — jkunn hönd gáraði vatn milli skara, eygði eyrarrósina ijóði okkar — ;ygði hún sig ungur sproti, kyssti blæ yssti sól, nustaði á kvak fuglanna, nóttin björt af geislum vakandi sólar, en svo einn dag: myrkurdjúp þögn í mó og lyngi og viö vitiun timinn geymir harm okkar — sverð í slíöri. Úr „Friðsamleg sambúð' Við eigum sljóar mlnnlngar úr stríðinu, þeir báru dauða sjómenn á land úr sundurskotnum skipum. Englnn sagði neitt, vonlaust aö yrða á brostin andlit, augnalokin rammnegldi- hlerar á tómum yfirgefnum húsum. Sumh tóku ofan í kveðju skyni eöa til að biðjast afsökunar á því að þeir væru enn kvlkt nold undir laufguðum fingrum skemmtigaröstrjánna, en flestir gengu beint af augum eins og nýrisin morgunsól — rís hún hvern dag vekur land og himin til þátttöku í dagatali timans. Enn rís sól yfir land, enn kemur blár dagur yfir heiðina. Kemur drápsklyfjaður dagur yfir heiðina. I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.