Vísir - 23.06.1966, Blaðsíða 3

Vísir - 23.06.1966, Blaðsíða 3
VISIR. Fimmtudagur 23. júnt 1966 3 Etnn — tveir — áfram gakk, taktfast og ákveðlð þrömmuðu htair söngelsku norrænu lög- regiuþjónar niður Laugaveg í fyrrakvöld. Þeir viku hvorki til hægri né vinstri — já, sjálfir iaganna verðir, sem sifellt eru á hlaupum á eftir þeim, sem brotlegir gerast við umferðar- reglumar, gerðust nú brotiegir sjálfir. En þeim var fyrirgefið í þetta skiptið, enda ekkl á hverjum degi sem norrænt lögreglukóra mót er haldið hér á landl. Má búast viö aö hið næsta veröi haldiö hér að aldarfjórðungi Iiðnum, verði liö lögregluþjóna hér og á htaum Norðurlöndun- um eins söngelskt og það er nú. Skrúðganga lögregluþjónanna vakti að sjálfsögðu mikla at- hygli og hafði fjöldi manns tek ið sér stöðu á gangstéttum með fram Laugavegl til þess að fylgj ast með er þeir fóru framhjá, með bláklædda lúðraþeytara í fararbroddi. Áfangastaðurinn var Mennta skólinn í Reykjavík og þar röð uðu kóramir sér upp, hver und ir fána lands sins. Frá raddböndum eitt hundr- að fjörutíu og fjögurra nor- rænna kappa hljómaði nú nýja lagið hans Páls ísólfssonar, sem hann gerðj við „Á samhljóma- vængjum“, Steingríms Thor- steinssonar og helgaði mótinu — en mál söngsins skildu allir mótsgestir, hvort sem móður- mál þeirra var íslenzkan, tunga víkinganna, eða finnskan, af úral-uppruna. Eftir að kóram- ir höfðu skipzt á að syngja, og sungið allir saman urðu þeir að tvítaka lagiö, sem fyrst var sungið — lag mótsins. Borgarbúum þótti þetta skemmtileg upplyfting, enda veöur eins gott og kosið varð við slíkt tækifæri, hlýtt og kyrrt veður — og þeir sem gengu meðfram Tjöminni heyröu fbúa Tjarnarhólmans taka undir með lögreglumönn- unum. © O MYNDATEXTAR: o Einn-tveir-einn-tveir-ókunnugir hcfðu getað haldið að hér væri um hersýningu á þjóðhátíðardegi að ræða, en ef betur var aö gáð mátti sjá að vopnabúnaðinn vantaði. 0 Þótt þessir höfðingsmenn séu alvarlegir á svip eru þeir hvorki að kalla á eða yflrheyra afbrotamenn. Fjórir raddmenn lög- regluliðsins, þeir: Rudolf Axelsson, Guðbjöm Hansson fyrrv. yfir- varðstjóri, Hilmar Þorbjömsson og einn hinna norrænu gesta. 0 Norræn ættjarðarlög hljómuðu í kvöldkyrröinni — en það reynd- ist misjafnlega miklum erfiölelkum bundið að koma þeim frá sér, ef dæma má af svipbrigðum kórmanna. o Neðan frá Menntaskólatúninu séð virtist röð lögregluþjónanna óað- finnanleg — en myndavél ljósmyndarans, sem brá sér upp á efri hæð skólahússins kom upp um „löggumar.“ Þrjár þeirra stóöu ekki alveg á sínum stað — liklega framsæknar „löggur.“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.