Vísir - 05.07.1966, Blaðsíða 5
5
V í SIR . Þriðjudagur 5. júlí 1966.
Steinar undir Eyjafjöllum —
Framh. af bls 9
nafni fjárloga, sem öðru hverju
sást hjá Steinahelli. Hafði stærö
ar bjarg hrapað ofan úr fjall-
inu, en staðnæmzt fyrir framan
hellismunnann. Seinna óx upp
á honnm gróðurþúst grasi vax-
in og var sagt aö í henni væri
fjársjóöur fólginn. Þar sáu menn
oft vafurloga brenna.
/ Ekki mátti róta viö þústunni.
Þá átti einhver ógæfa að ske.
I hverju sú ógæfa var fólgin
vissi enginn. Þetta olli því að
færri leituöu guilsins uppi á
steininum en vildu. Þó er sagt,
að tveir ungir menn frá Stein-
um hafi langað í sjóðinn og
freistingin oröiö það sterk aö
þeSr ákváöu að hefjast handa.
En rétt þegar þeir voru nýbyrj-
aöir aö grafa í þústina sýndist
þeim Steinabæir standa í björtu
báli. Hættu þeir við gröftinn til
að bjarga því sem bjargað yrði
heima á bænum, en þegar þang
að kom, stóðu bæimir með
sömu ummerkjum og áður og
enginn hafði orðið eids var. —
Þótti þeim, sem þama væri á-
minning til þeirra um að láta
guílið í þúfunni í friði, og það
geröu þeir.
VIII.
/'jtinnar Ólafsson í Vestmanna-
eyjum segir frá höfðingja-
djörfum bónda á Steinum und-
ir Eyjafjöllum, sem Jón Valda-
son hét. Átti Jón aö gæta reka
á fjörum fyrir þeim hluta jarö-
arinnar, sem hann bjó á. Ein-
hverra hluta vegna féll grunur
á Jón að hann skilaöi ekki rek-
anum sem vera bæri. Fyrir þær
sakir var Jón handtekinn og sett
ur, ásamt öðrum manni, í hest-
hús til geymslu. Um annaö fang-
elsi var ekki að ræða. Þar urðu
þeir að dúsa meöan á rannsókn
í máli þeirra stóð. Þótti þeim fé-
lögum hesthúsvistin ill, einkum
vegna kulda og kærðu þeir yfir
valdið, Pál Briem, síðar amt-
mann, fyrir ómannúðlega með-
ferð á sér. En málið ónýttist
vegna ritvillu, sem þeim hafði
orðið á I stefnunni, og þar sem
þeir kölluðu yfirvaldið Breim í
stað Briem, héldu sumir að þaö
hefði verið af ásettu ráði gert.
Seinna uröu sýslumannsskipti
í Rangárvallasýslu, en áfram
hélt Jón Valdason að vera undir
smásjá hins nýja yfirvalds.
Eitt sinn kom sýslumaður að
Steinum og bað Jón bónda aö
fylgja sér austur að Þorvalds-
eyri, hvað Jón gerði. En þegar
þangað kom lét sýslumaður
handtaka Jón og byrgja hann
inni. Nokkru seinna átti að setja
rétt yfir honum, en þá var Jón
allur á bak og burt, haföi tekizt
aö flýja. Ekki þótti sýslumanni
það hiýða að fangar sínir
strykju og lét strax menn fara
ríðandi eftir honum. Náðu þeir
Jóni og báðu hann aö koma
með góðu, en hann var hinn
þverasti og haröneitaði. Urðu
málalyktir þær, að eftirreiðar-
menn lögðu hendur á Jón og
hnýttu honum aftan í einn hest-
inn. Þannig fóru þeir meö Steina
bónda heim að Þorvaldseyri og
settu undir lás og slá þar til
sýslumanni þóknaðist að taka
hann til yfirheyrslu.
Þegar réttur hafði verið sett-
ur og Jón verið leiddur fyrir
sýslumann, birtust fjórir ungir
og vasklegir menn í stofunni á
Þorvaldseyri þar sem sýslumað-
ur ætlaöi aö fara að yfirheyra
fangann. Voru þar synir Jóns
Valdasonar komnir, búnir til
alls og heimtuðu föður sinn
lausan. Og enda þótt sýslu-
manni þætti súrt í brotið varð
hann að láta undan ákveðnum
vilja og kröfum bræðranna. Ekki
er þess getið, að mál þetta hafi
haft neiiiar eftirhreytur í för
með sér.
IX.
seinni hluta aldarinnar sem
leiö geröist einstæður at-
buröur hjá Steinum, sem ekki
átti sér neina hliðstæöu á því
tímabili. Þar bundust Eyfellskir
bændur samtökum að ganga í
berhögg við stjómarvöldin og
þverskallast við boöum þeirra
og fyrirmælum.
Þannig var málum háttað, að
fjárkláði hafði herjað á bústofn
bænda í vissum landshlutum og
átti að gera tilraun til að lækna
hann með fjárböðun. Meðal ann
ars var Eyfellingum fyrirskipað
að baða fé sitt, enda þótt fjár-
kláðinn hefði ekki borizt þang-
að. Fyrirmæli stjómarvaldanna
voru lesin á manntalsþingi í
Steinahelli um vorið, en bænd-
ur tóku dauflega undir, og sýslu
mann renndi þegar grun í að
þeim yrði slælega framfylgt.
Það fór og svo að enginn
bænda baðaði fé sitt þetta vor.
Gerðu stjómarvöldin ítrekaðar
tilraunir til að fá bændur til að
baða og hótuðu þeim með ströng
um viðurlögum ef ekki yrði
hlýtt. En ekkert dugði — Ey-
fellingar sátu við sinn keip.
Þar kom að sýslumaður taldi
sig ekki geta við svo búið leng-
ur, gerði boð eftir
Trampe stiftamtmanni og bað
hann að koma með sér austur að
Steinahelli, þar sem þessum
þrjózkufullu bændum skyldi
sýnt í tvo heimana.
Trampe grerfi fór austur og
samtímis var bændum stefnt á
þingstaðinn við Steinahelli á á-
kveðnum degi og ákveðinni
stund. Eyfellingar fjölmenntu á
staðinn, en voru hins vegar á-
kveðnir í að láta ekki hlut sinn,
hvað sem á dyndi. Mættu þarna
um 80 bændur.
Þegar menn voru komnir var
þingið sett. Trampe stiftamt-
maður hóf máls og hvað þing-
heimi kunnugt hverra érinda
hann væri þangað kominn, það
væri að endurtaka skipun sýslu
manns til bænda um að baða
sauðfé sitt allt án frekari tafa.
Hafði Trampe og eins
sýslumaður tekið sér stöðu á
sléttum grasbala vestan við hell-
isdymar, en skammt þar fyrir
sunnan og neðan er mýrlendi,
sem Dýjamýri nefnist og viö
suðurenda hennar djúp tjöm,
svokaflað Hellisvatn.
Þegar stiftamtmaður hafði
lokið máli sinu tók sýslumaður
til máls og bað þá sem andvígir
væru fyrirmælum stjómarinnar
að gefa sig fram, því þeir myndu
verða skrifaðir upp. Gerði hann
sig jafnframt líklegan til að taka
upp blað og blýant og skrifa upp
Varmahlíð er næsti bær vestan við Steina. Þangað átti að liggja
göng úr Steinahelli. Sýnilegt er, að fjallið fyrir ofan bæinn hefur
rutt skriðum á láglendi.
nöfn þeirra sem hæfu mótbárur.
En áður en sýslumaður haföi
áttað sig, höfðu bændur slegið
um hann hálfhring með svipur
og keyri á lofti og kölluðu {
einum kór aö þeir myndu ekki
baða hvað sem í húfi væri. Jafn-
framt tóku bændur að berja niö-
ur svipuólunum Og' við þaö
hrökk sýslumaður undan, fyrst
út af grasbalanum, síðan út í
mýrina og loks var hann kom-
inn út á tjarnarbakkann. Hann
gerði hverja tilraunina á fætur
annarri tij að brjóta sér leið út
úr hringnum óg til stiftámt-
mannsins, en þess var vendi-
lega gætt að honum tækist það
ekki og bændur höfðu jafnvel
við orð að í staö þess aö baða
féð skyldu þeir sjá um að sýslu-
maður fengi bað í Hellisvatni.
Trampe greifi horfði fyrst á
þessar aðfarir með forundran,
en síðan með ótta og skelfingu.
Þegar hann sá að sýslumaður
var kominn niður í miöja mýr-
ina gerði hann bændum boö um
að þeir þyrftu ekki að baða fyrr
en um haustið. Því vildu þeir
ekki sinna og kváöust ekki
sleppa sýslumanni úr kvfnni
fyrr en þeim yröi gefin alger
undanþága frá böðun þar tíl
kláða yrði vart í fé þeirra. Þá
var sýslumaður kominn niður
undir tjarnarbakkann og ekki
annað fyrirsjáanlegt en að hann
myndi lenda í vatninu þá og
þegar. Taldi Trampe þá ekki
lengur fært að þverskalíast viö
kröfum bændanna og sagðí að
þeir þyrftu ekki aö baða fyrr
en kláðinn kæmi í hreppinn. En
austur undir Eyjafjöll komst
kláöinn að því sinni aldrei.
Var sagt að þá hafi rriöur-
lútir menn og sneypulegir riðið
brott frá Steinahelli, þar sem
stiftamtmaður og sýshimaður
fóru, en beendur að sama skapi
gunnreiftr og fóru mikinn.
- X.
^ð lokum er hér gamall hós-
gangur:
„Rýkur nú á Steinastað hjá
stórum bændum,
veizla mun þar vera í vændum,
vinnufólkið hrósar sæmdum“.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að steypa gangstéttir, reisa
götuljósastólpa o. fl. við nokkrar götur í aust-
urbænum.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Vonarstræti 8, gegn 3000 króna skilatrygg-
ingu.
Tinjoðin verða opnuð á sama stað mánudag-
inn 11. júlí n.k. kl. 11.00.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
ÓDÝRT - ÓDÝRT
Vinnuskyrtur kr. 125. — Vinnubuxur frá kr.
250. — Terelyne-buxur frá kr. 400. — Stretch
buxur frá kr. 295. — Drengjaskyrtur frá kr.
87.
Verzl. Njálsgötu 49
Akraborgin —
Framh. af bls. 4
Siglingar skipsins hófust að
nýju 11/2 að lokinni viðgerðinni
af völdum árekstursins 24/12.
1965: Til Borgamess 44 ferð-
ir (518), til Akranss (34.501).
Viðkomur á Akranesi 88. Sigld
vegtarlengd 19.426 sjómílur.
1/3—10/4 fer fram 8 ára
flokkunarviðgerð.
„Þessi greinargerð nær til 20.
okt. 1965“, segir Þórður, „en þá
hætti ég starfi sem skipstjóri
hjá h.f. Skallagrími. Ekki hefi
ég haldið saman hve margar
ferðir ég hefi farið í Borgames
sem skipstjóri, en skip sem ég
hefi verið skipstjóri á hafa farið
3905 ferðir í Borgames og 6726
sinnum á Akranes. Ég hefi ekki
hirt um að draga frá þær ferðir,
sem farnar hafa farið, er ég
hefi verið í frii. Og í þessum
ferðum hafa farið með þessum
skipum samtals 652.250 farþeg-
ar, þar af með Akraborginni
400.250 og með Suðra, e/s Sig-
rfði og m/s Laxfossi 252.000.“
Axel Thorsteinson.
II. DEILD
MELAVOLLUR
í kvöld (þriðjudag) kl. 8.30 leika
VÍKINGUR - HAUKAR
Dómari: Eysteinn Guðmundsson.
MÓTANEFND
Auglýsing
Opinber stofnun óskar að ráða stúlkur til af-
leysinga í sumarleyfum. Um framtíðaratvinnu
getur orðið að ræða.
Umsóknir sendist blaðinu meikt „7890“.
ML SS
I