Vísir - 17.08.1966, Qupperneq 2
VI S X R . Miðvikudagur 17. ágúst 1966.
SÓTTI ÞJÁLFARANÁM-
SKEIÐIÐ í VEJLE
Rætt viö Sölva Úskarsson, þjálfara
Fyrir nokkrum dögum kom heim frá íþrótta-
skólanum í Vejle í Danmörku einn af þeim ungu
mönnúm, sem tilleiðanlegur hefur verið til
að veita sér yngri knattspymumönnum tilsögn.
Það er alkunna að þjálfaravandamálið er mál
málanna í íþróttaheiminum í dag og skiptir þar
engu hver íþróttagreinin er.
Þessi ungi maður er Sölvi Óskarsson í Þrótti
og tókst honum með aðstoð Björgvins Schram
formanns KSÍ að fá inni á hinu árlega námskeiði
danskra þjálfara í Vejle, en sjáifur kostaði hann
sig og varði sumarleyfi sínu frá störfum hjá verzl-
uninni Verðandi til að taka þátt í námskeiðinu.
íslandsmeistarar í
útihandknattleik
Útimeistaramóti Islands í handknattleik er nú lokiö. Sigurvegari í
meistaraflokki kvenna varð Valur, sem stgraði í þriðja sinn í röð,
en Valsstúlkumar hafa unnið 8 síðustu mótin í handknattleik, úti
og inni. I meistaraflokki karla sigraöi F.H. nú í 11. sinn í röð, sem
sennilega nálgast að vera heimsmet, ef það er það þá ekki.
Hér eru fyrirliðarnir með verölaunagripina, Guðbjörg Ámadóttir
og Birgir Bjömsson.
Bætt læknisaðstaða á
Eskifirði og Reyðarfirði
Spjallað við héraðslækninn, Jónas Oddsson
Skömmu eftir heimkomuna
tók undirritaður Sölva tali og
spurði hann um gang þjálfara-
námskeiðs þessa og þjálfara-
mála almennt í Danmörku.
„Þetta var geysierfitt nám-
skeið. Að vlsu hafði ég heyrt
það eftir I’slendingum, sem ver-
ið höfðu í Vejle á sams konar
námskeiði að þama væri unnið
sleitulaust, en ekki hafði ég
haft hugmynd um að þetta yrði
svona erfitt, Við vorum komnir
á faetur kl. 7 á morgnaná og
í rúmið vart fyrr en um mið-
nættið og allan þennan tíma
var unnið að þeim verkefnum,
sem á dagskrá voru. Þáma var
allt tekið mjög föstum tökum,
úthaldsæfingar, tækniæfingar
og „taktík“. Til að hjálpa okkur
vom þama tvö af beztu ung-
lingaliðum Dana frá KB og Es-
bjerg og vorum viö látnir
stjórna piltunum i leik, látnir
kenna þeim undirstöðuatriðin
o.s.frv. Það verð ég að segja
að þessir piltar voru einstakir
í sinni röð. Þeir tóku leiðbein-
ingum mjög vel og fóru eftir
öllu, sem fyrir þá var lagt. Og
æfingamar, sem þeir voru látn-
ir framkvæma voru sannarlega
ekki auðveldar. Sérstaklega
varð þó markvörðurinn að slíta
sér út, en hann var mikið æfður
í sandkassa, þar sem hann var
látinn kasta sér sitt á hvað að
geðþótta þjálfarans“.
— 1 hverju eru þrekæfingam-
ar aðallega fólgnar?
„Lyftingar er undirstaðan má
segja og geysimikil áherzla lögð
á þær og var Bandarikjamaður 1
þama okkur til leiðbeiningar í
lyftingum. Leikfimi er og mjög
í hávegum höfð og fyrir knatt-
spymumenn eru lagðar erfiðar
æfingar".
— En hvað var á dagskránni
á kvöldin? '
„Þá fóru fram umfæður um
þau fjölmörgu vandamál, sem
uppi eru meðal knattspymu-
manna um allan heim. Þau
vom fyrst fædd í þröngum hóp-
um, en síðan söfnuðust menn
saman og ræddu sameiginlega
um þau eftir að fundargeröir
hópanna höfðu verið lesnar
upp. Urðu oftast nær mjög fjör
ugar umræður. Sem dæmi um
það, sem þarna var rætt, má
nefna vandamál smáfélaganna
gagnvart þeim stærri, skapgerð
leikmanna og það hvemig efna-
legar ástæður, f jölskylduástæður
og annað getur haft áhrif á
knattspymúmanninn, þá var
rætt um reglusemi íþrótta-
manna og fleira. Þá kom dóm-
ari á fund og lagði spurningar
fyrir þjálfarana og urðu um-
ræðurnar það kvöld hvað heit-
astar, og á annan fund kom
Erik Vig Larsen, sem hefur um-
sjón með þjálfaramálum DBU.
Þá kom læknir og gaf mörg góð
ráð. Og undirstaða lfkamsbygg-
ingarinnar var sýnd á sérstök-
um „gervimanni", og þar var
hægt að sýna Vöðvabygginguna
og kennt hvemig þekkja má
venjulegustu meiðsl knatt-
spyrnumanna. Læknirinn sagði
að fyndi þjálfari að þrátt fyrir
mikla æfingu yrði ekki um fram
för að ræða hjá leikmanni, væri
ráðlegt að láta lækni fjalla nán-
ar um leikmanninn því þá
væri eitthvað athugavert við
heilsuna.
Sami læknir tók glas af
Sloans, sem var þama á næstu
grösum, og sagði: „Þetta er al-
veg eins gott að hafa í rusla-
fötunni. Að þessu getur ekkert
gagn orðið. Leikmenn reyna að
nudda sig upp úr þessu, en
sannleikurinn er sá, að þetta
hefur enga þýðingu og verra
en það, því þetta veldur slæmu
lofti £ búningsklefunum og gerir
leikmönnum erfiðara fyrir held-
ur en hitt.
Þá sagði læknirinn að upphit-
un væri þaðnauðsynlegastafyrir
leikmenn, sem vilja forðast
meiðsli. Það væri misjafnt hve
mikla upphitun menn þyrftu,
sumir 10 mínútur, aðrir 20 mín-
útur o.s.frv., en upphitun væri
atriði, sem knattspyrnumenn
skyldu aldrei gleyma, bæði
vegna meiðslanna og eins vegna
getu sinnar £ leiknum".
— Hve lengi stóð námskeið-
ið?
„Það stóð í 10 daga, knatt-
spvrnan sjálf í 7 daga en 3
dagar að auki voru teknir í
líkamsfræðina. Þama var um
að ræða þjálfara 2. stigs og verð
ég að segja að undirstaðan frá
Karli Guðmundssyni á nám-
skeiðum KSl hér var mjög hald
góð. Þetta voru erfiðir dagar
í Velje og menn urðu fyrstu
dagana hreinlega að velta sér
fram úr rúmunum en þetta lag-
aðist þegar á leið, og það er ó-
trúlegt hve mörgu var hægt
að koma fram á svo stuttu
námskeiði og hve vel allt var
fram borið“.
— Og hvað með framtíðina?
„Ég ætla mér vitaskuld að
halda áfram f þjálfarastarfinu
og vona að einhver sjái sér fært
að nota starfskrafta mína“,
sagði Sölvi.
Að lokum sagði hann: „Ég vil
nefna eitt atvik á fundi með
gömlum landsliðsmanni Dana,
gamalli stórstjömu, Kurt Niel-
sen. Hann var að segja okk-
ur frá atvinnumennsku sinni í
Frakklandi og svo vildi til að
hann ræddi mikið um Albert
Guðmundsson. Hann kvað Al-
bert hafa verið bezta sóknar-
mann Evrópu á þessum tíma.
„Það var reglusemin, dugnað-
urinn og sjálfsafneitunin, sem
gerði Albert að því sem hann
varð,“ sagði Nielsen, „hann
æfði í frítímum sínum sem sum
um í hans hópi þótti skrýtið og
af þessu eignaðist hann öfund-
armenn. Ég gæti bezt. trúað að
svo viljasterkur maður eigi enn
marga slíka", sagði hann. Þetta
yljaði mér um hjartarætumar,
því félagar mínir höfðu fengið
að heyra aö ísland ætti líka sína
knattspymumenn".
— jbp —
Innan tíðar flytur læknir-
inn á Eskifirði f nýtt og glæsi
legt hús, þar sem jafnframt
verður lyfjaverzlun, læknis-
stofa og sjúkrastofa með 2-3
rúmum, sem nota má í neyð-
artilfellum. Af þessu tilefni
átti Vfsir tal við héraðslækn-
inn, Jónas Oddsson, sem búinn
er að starfa f Eskifjarðarlækn-
ishéraði í 5 ár. Verður það að
kallast gott úthald miðað við
það sem gerist og gengur ann-
ars staðar úti á landi, ekki
sfzt á Noröur- og Austurlandi,
þar sem læknaskortur er orð-
inn mikið vandamál.
— Já, ég tók við héraðs-
læknisembættinu hér eftir að
ég útskrifaðist fyrir 5 árum.
Umdæmið nær yfir Eskifjörð,
Helgustaðahrepp og Reyðar-
fjarðarhrepp.
— Hvernig hefur læknisað-
staðan verið á Eskifirði til
þessa?
— Slæm, hún hefur verið i
gömlu húsi frá þvl um alda-
mót. Nýja húsið verður tekið
f notkun um eða eftir næstu
mánaðamót. Það leysir mjög
aðkallandi vandamál og bætir
úr brýnustu þörfum.
— Og er svo ekki verið að
undirbúa byggingu sjúkraskýl-
is á Reyðarfirði?
— Jú, þar á að byggja hús
fyrir viðtalsstofu og lyfjastofu
að einhverju leyti, en þar verð
ur ekki aðstaða til að taka við
sjúklingum til legu.
— Þetta kemur að sjálf-
sögðu að góðu gagni, ekki sízt
ef tillit er tekið til þess,
hve langt er f næsta sjúkra-
hús?
■— Það kemur til með að
gera það, þegar það er komið
í rétt horf. Næsta sjúkrahús er
i Neskaupstað og það er eina
sjúkrahúsið á öllu Austur-
landi.
Húsnæði til leigu
Húsnæði fyrir iönað, teiknistofur, skrifstofur o.fl. er til
leigu í Síðumúla 10. (Gunnar Þorleifsson).