Vísir - 17.08.1966, Side 11
SíÐAN
Bíflarnir fengu hlýjar móftökur
— af aðdóendum sínum og Ku Klux Klun
Þegar Bítlamir komu á flug
völlinn í Boston á föstudaginn
var, heyrðist aðeins hvinurinn
í þotuhreyflum og nokkur vein
frá aödáendum. Þetta var fyrsta
utanlandsferð Bítlanna eftir
hina frægu athugasemd John
Lennons, sem mestan úlfaþyt-
inn vakti. „Við erum vinsælli
en Jesús.“ '
Þegar Bítlamir lögðu af staö
frá London í feröina og flugvél
in fþr á loft veinuöu aðdáend-
umir í einum kór og ein stúlk
an kastaöi sér niöur og hróp-
' aöi um leið: „Farðu ekki John,
þeir drepa þig.“ Áður en Bítlarn
ir lögöu af staö fygldu þeim
fagnaðarlæti hundraða stúlkna
og á spjaldi stóð: „Varið ykkur
á Ku Klux Klan“ á öðm spjaldi
stóð: „Kanarnir eru brjálaðir.“
Hinar köldu móttökur í Bos-
ton má rekja til þess að hinir
500 aödáendur, sem vora mætt
ir á flugvellinum sáu skurögoð
in sin ekki nema eitt aúgnablik
og það i fjarlægð. Bítlamir
skiptu um flugvél á skammri
stundu og tóku vélina, sem fór
með þá til Chicago, fyrstu borg
arinnar af fjórtán, sem þeir
ætla að halda hljómleika í, í
Bandaríkjaferðinni.
Ráðgert var að Bítlamir biðu
í tvær klst. á flugvellinum, en
starfsmennimir flýttu förinni
svo að þeir lögðu af stað eftir
fimmtán mínútur. Öryggisverð
ir voru margir og aödáendunum
sem voru flestir stúlkur var
haldið frá flugbrautinni. Hópur
lögreglumanna lá í felum, ef til
óeiröa drægi.
Ekki var hægt að merkja mis
skilninginn, sem athugasemd
John Lennons vakti, á fyrstu
tónleikunum í Chicago. Ungl-
ingsstúlkur í hundraðatali vein
uðu og hoppuðu upp og niöur
í sætunum, þegar fyrstu tónam
ir I hinum velþekktu Bítlalög
um heyrðust. Lögreglubílar með
ýlfrandi sírenum fóru á undan
tónlistarmönnunum fjóram, á
leið þeirra til hins alþjóölega
hringleikahúss í Chicago.
180 lögreglumenn, 100 bruna
verðir og 200 öryggisverðir röð
uðu sér hringinn í kringum
sviðið meðan á hljómleikunum
stóð til þess að hindra áheyrend
urna ungu í að storma á sviðið.
En í ríkinu Suður-Karolína
brendu Ku Klux Klan bál til
vafasams heiöurs þeim John,
Paul, George og Ringo. Allt
vegna athug'asemdarinnar, sem
John lét frá sér fara. Setningar
innar, sem var misskilin, sem
frekar tjáði, að erkibítillinn
harmaði staðreyndina, en var
ekki yfirlýsing um óhemju
sjálfstraust.
*Setningin féll í góðan jarðveg
hjá sumum. Sl. fimmtudag fékk
Ku Klux Klan í Albany heim-
sókn af um hundrað stúlkum,
sem af rneira eða minna frjáls
um vilja köstuðu myndum og
blöðum um Bítlana á bálið.
Nokkrar útvarpsstöðvar héldu
áfram banninu á Bítlaplötum.
Sjónvarpsstöðvar í San Fran-
siso og Boston tilkynntu að
engu yrði sjónvarpað frá heim-
sókn Bítlanna.
Bítlamir, þegar þeir lögðu af stað frá London
Fyrir tónleikana i Chicago var fundur blaðamanna með Bítlunum og notaði John Lennon þá tæki-
færið tii þess að afsaka setninguna um Jesús og Bítlana sem vakti mesta gagnrýnina.
Unglingamir stóðu ekki aðeins f biðröð fyrir framan innganginn að hljómleikasalnum. Þeir slepptu
sér alveg — sumir grétu 1 taugaæsingi, þegar Bítiarnir komu fram og sönnuðu að þrátt fyrir allt
eru þeir vinsælir. 1
Það fordæma ekki alilir Bandaríkjamenn John fyrir athugasemd
hans um Jesús. „Við styðjum John“ stendur á skiltinu, sem að-
dáendurnir hefja hátt á loft.
Kári skrifar:
Effirfarandi bréf hefur dálk-
inum borizt
Vegurinn yfir Hellis-
heiði
„Vegurinn yfir Hellisheiöi er
harður í þurrkum og holóttur
í rigninga’rtíð, er nær ávallt
erfiður þeim sem aka og fer
illa meö bílana. Því er ekki haf
izt handa um endurbætur á þess
ari fjölförnu leið? Er ekki hægt
að setja á hana steypu- eða mal
bikslag Það er ekki einu
sinni rætt um leiöir til þess að
koma þessu í framkvæmd og
er þó þörfin brýn? Stendur á
því aö ekki sé fé fyrir hendi
til slíkra framkvæmda? Nú er
fengin reynsla af vegartolli á
Keflavíkurleiðinni. Ef lagður
yrði á vegatollur til þess að
standa straum af nútímaþjóð-
vegi yfir Hellisheiði, myndu
menn borga hann glööu geði.
Margs er spurt en „spyr sá,
sem ekki veit.“
Nútíma vinnuaðferðir
Það er stórkostlegt að sjá hve
vel miðar gatnagerð í Reykja-
vík með þeirri nútfmatækni,
sem menn ráða yfir. Vafalaust
yrði sömu eða hliðstæðri tækni
beitt, ef ráðizt yrði f að mal-
bika eða steypa veg austur. Er
hægt að biða öllu lengur.
Á. S.