Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 2
Vonbrígði og gleði að
loknum úrslitaleik
Þama voru 22 þreyttir og út-
taugaöir leikmenn að yfirgefa
LaugardalsyöHinn á sunnudag-
inn. Þetta voru liðsmenn Vals
og Keflavikur, sem börðust um
Islandsbikarinn, en síðustu-
mínútu-mark Vals kom í veg fyr
ir aö bikarinn færi af borði
Baldurs Jónssonar vallarstjóra í
þetta skiptiö, en búið var að
koma fyrir boröi undir bikarinn
andspænis stúkunni og hátalara-
kerfiö stillt þannig aö Björgvin
Schram, formaður KSl mætti
betur ná eyrum áhorfenda. En
af þessu varð ekki að sinni...
Það er oft skemmtilegra aö
horfa á áhorfendur að leik, held-
ur en leikinn sjálfan, sagði maö-
ur nokkur við mig um daginn.
Þessa mynd er gaman að athuga
nánar. Sá glaöasti á myndinni
er vitaskuld Bjöm Carlsson, for-
maður knattspyrnudeildar Vals,
sem réttir hendurnar á móti
Bergsteini og hinum frábæra
markverði, Siguröi Dagssyni, all-
glaður viröist Sveinn Bjömsson,
einn af forystumönnum KR
vera, enda fá 1. deildarliðin nú
enn annan stórleik til að auka
heldur litlar tekjur sumarsins
(hann stendur aftast á myndinni
miðri, en milli hans og Bjöms
er Páll Jónsson úr Keflavík, gam
alkunnur leikmaður og forystu-
maður Keflvíkinga, — hann er
þungbúinn aö sjá vitandi það
aö Keflavík er nú með 3 menn
á sjúkralista, Kjartan markvörð
sem fékk slæmt spark, Grétar,
sem liggur nú heima hjá sér
með gifsumbúðir um slitið lið-
band og Rúnar Júlíusson, sem
varð að fara út af slæmur í hné.
Á sunnudaginn mætast liðin
á ný í Laugardal, og þá er engu
hægt að spá um úrslitin.
Um þetta leyti árs er íþrótt, sem ekki er íslendingum mjög kunn,
f fullum gangi. íþrótt þessi er keppniköst (Toumament casting).
Eina félagið á íslandi, sem eingöngu helgar sig íþrótt þessari, er
Kastklúbbur lslands og átti 10 ára afmæli um sfðustu áramót.
Aðalhvatamaður að stofnun
' lúbbsins var Albert Erlingsson
' aupm. og var hann formaður hans
10 ár, eða þar til s.l. vetur, að
Jann óskaði þess aö drága sig í hlé.
Hið upphaflega markmið stofn-
mda var að efla veiðimenningu
leðal þeirra, er iðka lax- og sil-
ngsveiði sem íþrótt og örva áhuga
eiðimanna á kastæfingum og kast-
íötum.
Árið 1959 fékk Kastklúbburinn
mgöngu í Alþjóöakastsambandið
Tntemational Casting Federation,
irmlega skammst. I.C.F.), Breytt-
;t þá starfsemin í hrein keppni-
'óst, þar sem haldin voru kastmót
kv. reglum I.C.F., en átti ekki
mgur neitt skylt við stangaveiði,
:em stTka.
Síðustu 8 árin hefur klúbburinn
' aft kastæfingar á hverjum vetri í
IR-húsinu. Kastmót hafa verið
haldin hvert sumar og síðan 1959
hafa einn til þrlr félagsmenn tekið
þátt í hverju heimsmeistaramóti,
sem haldið er árlega á hinum ýmsu
stöðum.
Framförina I kastíþróttinni má
bezt sjá á eftirfarandi samanburði
á árangri fyrstu og síðustu kast-
móta:
1956 1966
Einh. flugust. 24,16 m 47,85 m
Tvíh. flugust. 35,50 m 56,40 m
Beitukast 30 gr. 63,33 m 121,40 m
Kastíþróttin þekktist ekki hér á
íslandi fyrr en Kastklúbbur Is-
lands hóf starfsemi sína, en hefur
verið stunduð um áratugi í fjölda
landa, bandaríska kastsambandið
átti t. d. 50 ára afmæli fyrir nokkru.
Áhugi manna á þessari íþrótt
hefur aukizt mjög á síðari árum
og hafa konur sem karlar og gaml-
ir sem ungir sömu möguleika á því
að njóta skemmtilegrar íþróttar og
fá um leið holla og nauðsynlega
hreyfingu.
Kastklúbbur íslands er opinn öll
um þeim, sem áhuga hafa á kast-
fþróttinni og veitir fúslega nauð-
synlegar upplýsingar um hana.
Núverandi stjórn klúbbsins skipa
þeir Bjami Karlsson, Sverrir Elfas-
son, Björgvin Farsæth, Jóhann Guð
mundsson og Kolbeinn Guðjónsson.
Á þessu ári var heimsmeist-
aramótið haldið 19. sept.—26.
sept. í Scarborough í Englandi, og
tóku tveir félagar klúbbsins þátt
í þvf.
Sendisveinn
Piltur óskast til sendiferða, hálfan eða allan
daginn.
H.f. Hampiðjan
Stakkholti 4. Sími 11600.
„Verðið að bíða
eftir flautunni"
— sagði dómarinn og dæmdi af mark Breiða-
bliks gegn Hafnarfirði i „Litlu bikarkeppninni"
Um helgina kepptu
lið Breiðabliks og Hafn-
arfjarðarfélaganna í
„litlu bikarkeppninni“ í
knattspyrnu og fór leik-
urinn fram í Hafnar-
firði. Lauk leik svo að
jafntefli varð, 1:1, en
heldur voru leikmenn
Kópavogsliðsins sárir í
garð dómarans, enda
ekki að ástæðulausu.
Eftir tíðindalítinn fyrri hálf-
leik byrjuðu Kópavogsmenn á
þvf að skora og var Grétar Guð-
mundsson að verki. Jóhannes
Larsen jafnaði síðar fyrir Hafn-
arfjörð 1:1.
Þá kom að deiluatriðinu. Dóm
arinn dæmdi aukaspymu á víta-
teig, og Grétar Guðmundsson
var ekki lengi að átta sig,
stillti boltanum upp og skaut
þegar að marki og lenti skotið
óverjandi efst í homið. En dóm-
arinn var ekki ánægður: „Þið
verðið að bfða eftir flautunni",
er haft eftir honum.
Nú er það vitað mál að sú
regla er úr gildi numin fyrir
nokkrum árum og kom þetta
leikmönnum því undarlega fyrir
sjónir og mótmæltu þeir kröft-
uglega án þess þó að minnsta
mark væri á þeim tekið.
Hins vegar má reikna dómar-
anum það til „tekna“ í þessum
leik að hann breytti ákvörðun
sinni f eitt skipti, þegar honum
varð ljóst að hann væri að
gera rangt. Boltinn hrökk þá f
Breiðabliksmann innan vftateigs
og gat verið að hér væri um
hönd að ræöa. Nú var boltinn
aftur á móti mjög blautur og
sást greinil. far eftir hann á búk
leikmannsins og sannaði að ekki
var um hönd að ræða.
Lauk leiknum með jafntefli
1:1, og máttu Kópavogsmenn
raunar vel við una, því að
Hafnfirðingar áttu mun meira f
leiknum. Var þetta fyrsta stig
Breiðabliks í keppninni í fimm
leikjum, en hins vegar misstu
Hafnfirðingar af mikilvægu stigi,
þvf þeir hafa nú 6 stig eftir 5
leiki, en möguleikar Akumes-
inga eru stærstir f keppninni.
3 herbergja íbúð á hæð
við Laugarnesveg
Höfum til sölu 3 herb. íbúð á efstu hæð í tvf-
býlishúsi ca. 85 ferm. Sérinngangur, suður
svalir. íbúðin er nýstandsett og teppalögð.
Lóð ræktuð, fallegt útsýni.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10 a, 5. hæ8. Sími 24850. Kvöldsimi 37272. y
Námskeið
8 vikna námskeið fyrir framreiðslu- og aðstoðarfram-
reiðslustúlkur hefst 4. okt. 1966 í Matsveina- og veit-
ingaþjónaskólanum. Innritun fer fram í skrifstofu skól
ans mánudag 3. okt. og þriðjudag 4. okt. kl. 5-7 síðdeg
is. Nánari uppl. í síma 19785 kl. 4-6 alla virka daga
nema laugardaga.
Félag framreiðslumanna.
Moskvitch bifreiða-
eigendur athugið
Geri við Moskvitch-bifreiðir. — Fljót og góð
afgreiðsla. — Uppl. í síma 14113.
Röska og áhugasama
Stúlku
sem getur séð um daglegan rekstur að nokkru
leyti (í forföllum), vantar í vefnaðarvöruverzl
un. Tilboð óskast send afgr. Vísis sem fyrst
merkt: „Vefnaðarvöruverzlun 1633“