Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 11
SíÐAN
„Anthony Quinn er sjálfur
Zorba“ segja margir sem séð
hafa kvikmyndina, sem veriö er
að sýna hér núna um Grikkjann
Zorba. „Það hefði enginn Grikki
getað gert hiutverkinu betri
skil“.
En Anthony Quinn virðist
geta túlkað menn af flestum
þjóðemum og nú er hann aö
leika Rúmena í kvikmyndinni
„25. stundin." Mótleikarinn er
engin önnur en Vima Lisi, feg
urðardísin fræga og leikstjórinn
er Carlo Ponti.
Úr Grikkja í Rúmena
Cháplin eðo
Chaplin?
Er þetta Chaplin orðlnn
ungur í annað sinn?
Víst er það Chaplin, en ekki
hinn gamli góði Charlie Chapl
in, heldur dóttir hans Geraldine
Chaplin. Hún þurfti ekkj nema
örlítiö yfirvaraskegg til þess
að líkiast föður sínum svo mjög
að margir héldu að Chaplin
væri orðinn ungur í annað sinn.
Þessi mynd var tekin fyrir
skömmu í London en þar er
Geraldine nú að leika í kvik-
myndinni „Casino Royal" ásamt
fjölda af frægum leikurum og
er hún hér 1 gervi lögregluþjóns
og virðist kunna vel við það.
Suður í Egyptalandi er veriö
að raða saman eins konar
„púsluspili‘‘ og það er ekkert
smáræði — heilt fjall.
Eins og kunnugt er er verið
aö gera geysimikla stíflu í Níl
við Aswan og þegar hún er full
gerð og „tekin til starfa“ mun
stórt landssvæði fara undir
vatn. Á þessu svæði stóð 3200
ára gamalt hof, Abu Simbel-hof
ið, sem höggviö var inn í klett
og Egyptar viidu ekki fyrir
nokkum mun láta eyðileggja
hofið eins og vonlegt var.
Þeir kölluöu því til sérfræð-
ina frá 6 löndum og þeir fóru
Ramses II. fœr
f andlitslyftingu
þegar að athuga hvemig flytja
mættj hofið án þess að þaö eyði
leggðist og ákváðu að höggva
það í marga hluta og flytja það
þannig og raða því síðan sam
an á góðum stað, utan áhrifa-
svæðist Aswan-stíflunnar.
Nú er flutningurinn í fullum
gangi og fyrir nokkru var veriö
44
aö flytja risastyttumar fjórar af
Ramses konungi öðrum og á
meðfylgjandi mynd má sjá er
verið var að koma einu af and-
litunum fjórum fyrir „inni f
höfðinu" sem búið var að koma
fyrir. Eftir myndinni að dæma
virðist andlitið vera meira en
tvær mannhæðir á hæð.
DAGBLAÐIÐ VÍSI vantar
Röska sendisveina
í vetur, hálfan eða allan daginn.
DAGBLAÐBÐ VÍSIR
Sími 11660
Kári skrifar:
Kafli úr bréfi, sem þættin-
um hefur borizt:
Skemmtikraftar
„Ég vil taka undir með þeim,
sem hafa lýst sig andvíga því,
að gjaldeyri þjóðarinnar sé var
ið til þess að fá hingað erlenda
skemmtikrafta, sem þjóðinni er
enginn akkur í menningarlega
að fá hingað, og virðist svo sem
skemmtikraftar séu sóttir í er-
lenda næturklúbba, þótt mikið
sé skrumið sem á borö er borið
um þetta fólk.
En það er annaö fólk, sem
akkur er í að fá hingað, lista-
menn, söngvarar, hljóöfæraleik
arar, dansarar — fólk sem er
fyrsta flokks — og slíkt fólk
höfum við iöulega fengið hing-
að í menningarlegum skiptum,
og fyrsta flokks fól'k hefur sýnt
hér fyrir frumkvæði stofnana
og einstaklinga (Þjóðleikhúsið,
Pétur Pétursson o. e. t.v. fleiri).
Spónleggjum fyrir fyri
Það er þakkarvert, og biöðin
ættu aö sjá sóma sinn í því, að
stuðla að aðsókn, þar sem úr-
valslistamenn koma fram, og
mætti að ósekju draga úr gaura
ganginum þegar bítlahljómsveit
ir og slíkt fólk er sótt til ann-
arra landa. Maður hefði haldið
að nóg væri orðið fyrir f land-
inu af slíkum iýð. — B.“