Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 4
I
y
V í S IR. . Þriðjudagur 27. september 1966.
Frá Varúð á vegunt:
AKSTUR 1
Myndin er af bílhjóli á blautum vegi.
egar hausta tekur, taka veð-
ur að breytast og rigningar
verða langvarandi. Þá er nauð-
synlegt, að ökumenn hafi vak-
andi athyglr á því breytta á-
standi, sem slík veðrátta veldur
á ökutækjum og ástandi við
akstur.
Rúðuþurrkur verða að vera í
góðu lagi. Gúmmíhimnu og ó-
hreinindi þarf að fjarlægja af
framrúðum, meö rúðulöig eða
öðru efni, sem til þess er notað.
Rúðuþurrkurnar verða að
Á teikningunni sést, hvemig
vatenselgurinn þrýstii dekkinu
upp og minnkar viðfiámsflöt
þess, ef raufarnar eru ekki nógu
djúpar til að hleypa vatninu í
gegn.
þurrka bleytuna jafnt af öllu
því svæði, sem þær ná yfir á
framrúðunni og þurrkublöðin
' \.. \ -
mega ekki vera skemmd. Þurrk-
urhar verða að vera rétt stillt-
ar svo þær nái yfir sem mest
af flatarmáli rúðunnar. Því hver
sá blettur á framrúðunni, sem
ekki þurrkast, ekki sízt til hlið-
ar báðum megin. getur hulið út-
sýn, þar sem mest ríður á.
Rúðuþurrkur veröa að hreinsa
meginhluta framrúðunnar.
Ökumenn eiga ávallt að hafa
nægilegt af tvisti eða afþurrkun
arklútum í bifreiðinni. Og aldrei
nota sama tvist á framrúðuna
og notaður er til að þurrka af
bifreiðinni almennt. Bón má
ekki koma á framrúðuna, en
auðveldlega berst það meö
tusku eða tvisti, sem jafnframt
er notaöur við að þurrka af
yfirbyggingu bifreiðarinnar. —
Þurrkið ávallt vel af hliðarrúð-
um og ekki sízt afturrúðu. Hald-
til að taka við bleytunni situr
vatnið á milli barða og yfir-
ið ljóskerum ávallt hreinum
bæði fram- og afturljóskerum.
Ef aur sezt á ökuljósker minnk-
ar Ijósmagn ökuljósanna um allt
að 50%.
Þegar ekið er í röku veðri,
hafið þá ávallt báðar hliðarrúð-
úr eilítið opnar, svo loftstraum-
ur leiki um bifreiðina og taki
með sér rakann, sem setzt hef-
ur innan á rúðurnar. Notiö ó-
spart rúðublásarann. Forðizt að
bleyta komist inn í bifreiðina,
til dæmis í mottur. Blautar mott
ur halda í sér bleytunni og í
röku og köldu veðri gufar rak-
inn upp og sezt inn á rúö-
urnar.
Athugið vel ástand hjólbarð-
anna, hvort þeir eru ekki of
slitnir til að geta gripið í aur-
uga götuna. Ef raufarnar eru
næstum eða alveg uppslitnar er
mjög lítill möguleiki á aö hjól-
in fái snertingu við yfirborð
götunnar.
Meginvinningur með raufum
í hjólbörðum er, að við'þunga
farartækisins á yfirborði vegar-
ins pressa snertifletir hjólbarð-
anna vatniö og aurinn jafnóð-
— ■ ■ ■ ■ f ii
um upp í raufarnar og undan
barðanum. Ef þaö er ekki hægt
vegna þess, að engar raufar eru
borðs vegarins og barðinn fær
ekki nægilegt grip í veginn.
Hafið hugfast hve áríðandi er
að hemlar verki vel og jafnt á
öll hjól. Það á ekki sízt við á
blautum og þá hálum vegi. Ef
átakið er ójafnt, er miklu hætt-
ara við hliðarskriði'. Hafið ríkt
í huga, að hemlunargeta öku-
tækjanna rýrnar mjög mikið á
blautum vegi. Og ef aurblettir
eða olíu- og fitublettir eru í
bleytunni getur vegurinn verið
sem háll ís.
Sigurður Ágústsson.
Skólafólk
CONSUL 1531 og 1533
SKÓLARITVÉLARNAR
eru alltaf fyrirliggjandi.
Léttar í meðförum, léttur ásláttur,
traustbyggöar og fallegar.
Vélarnar eru allar úr málmi og
í hentugri tösku sem hlífir vél-
inni vel.
Er mest selda skólaritvélin sl.
tvö ár.
EINS ÁRS ÁBYRGÐ
Várahluta- og viðgerðarþjónusta
hjá aðalumboðinu.
Verð í Reykjavík með söluskatti:
Model 1531 kr. 2.950,00
Model 1533
með dálkastilli kr. 3.550,00
Greiðsluskilmálar.
Útsölustaðir í öllum stærra kaup-
stöðum landsins og Reykjavfk.
1 Reykjavík:
AÐALUMBOÐIÐ
og Baldur Jónsson sf.
Hverfisgötu 37. Sími 18994
Vil ráða eina eða tvær
Afgreiðslustúlkur
í vefnaðarvöruverzlun til starfa hálfan eða aíl
an daginn. Umsóknir óskast sendar afgr.
blaðsins fyrir mánaðamót merkt: „Afgreiðslu
stúlkur 1632.“
nSld eldhús
Síaukin sala, enn meiri fjölbreytni og fleiri
gerðir.
Þessi stærsta sýning á eldhúsinnréttingum
hér á landi er nú flutt í ný húsakynni í mið-
biki borgarinnar að Suðurlandsbraut 10
gegnt íþróttahöllinni.
Ennfremur: Úrval af stálhúsgögnum, eldhús
borðum og -stólum. Nýjustu gerðii af vegg
skápum og skrauthillum.
SKORRI H.F.
Suðurlandsbraut 10. Nýr sími: 3-85-85