Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 16

Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 27. september 1966 „Síðustu Ijóð" Duvíðs komin út „Síðustu Ijóð“ eftir Davíð Stefáns son frá Fagraskógi eru komin út hjá Helgafelli og er þetta aðaljóla bók forlagsins í ár. 1 bókinni eru síðustu ljóð Davíðs og ýmis ljóð, sem áður voru ort en ekki fullfrá gengin. Ljóðabók bessi var að heita mátti tilbúin til prentunar, þegar skáldið lézt, en dregizt hefur að gefa hana út. Bókin er yfir 300 blaðsíður að stærð eða eins og tvaer venjulegar bækur í Ijóðasafni Davíðs. Ljóðin í bókinni eru alls 145 og hefur ekkert þeirra birzt áð ur. Valgerður Bára innbyrðir verðlaunafiskinn, 23 punda Crupa, úti fyrir Gíbraltar. Samtal við Valgeröi Báru Guðmundsdóttur, sem vann kvennaflokkinn á Gíbraltarmótinu íslendingar eignuðust ó- vænt Evrópumeistara fyrir skömmu, þegar Valgerður Bára Guðmundsdóttir hlaut Evrópumeistaratitil kvenna í sjóstangaveiðimóti, sem hald- ið var í Gíbraltar dagana 29. ágúst - 3. september. Val- gerður kom til landsins í fyrri nótt og í morgun náði Vísir tali af henni og óskaði henni til hamingju með sigurinn og bað hana að segja svolítið frá mótinu. — Þegar ég fór suður eftir vissi ég eiginlega ekki í hve harða keppni ég var að Ieggja. Ég fór ein til Gíbraltar og ætl- aði að keppa sem einstaklingur en svo komu þrír íslendingar, sem höfðu verið á ferðalagi meö konum sínum á Spáni og þá gát um við keppt sem „landslið“. Það voru þeir Einar Ásgeirsson Jónas Halldórsson og Ásgeir Jónsson. — Fyrstu tvo dagana fékk ég ekki fisk, það var vont í sjóinn og ég sjóveik — en svo beit skyndilega á hjá mér. Ég dró fiskinn. Hann var gulur með Framh. á bis. 6. ■Ksau Loftbrú úr Reykjn- vík í Öræfosveit Undanfama daga hefur Douglas flugvél frá Flugfélagi Islands hald- ið uppi „loftbrú“ milli Fagurhóls- mýrar og Reykjavíkur. Hafa ýmsar vörur verið fluttar frá Reykjavik, matvæli, byggíngarefni og áburður, en ýmsar sláturafurðir oggrænmeti flutt úr Öræfinn. Tekur flugvélin 3 tonn í ferð, og verða þessir flutningar samtals eitthvað nálægt 120 tonnum. Á BRÆÐSLUSÍLD 06 SAL TSÍLD Á fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins s.l. laug ardag varð samkomulag um, að lágmarksverð á síld í bræðslu, veiddri norðan- og austanlands þ. e. frá Rit norður um að Hornafirði, skuli véra kr. 1.37 hvert kg tíma- bilið 1. október til 31. október 1966 að báðum dögum meðtöldum. Heimilt er aö greiða kr. 0.22 lægra á kg fyrir síld, sem tekin er úr veiðiskipi i flutningaskip utan hafna, enda sé síldin veg- m eða mæld eftir nánara sam- komulagi aðila við móttöku í flutningaskip. Verðbreytingin tekur gildi kl. 24 þann 30. september miðað við afhendingu. Framh. á bls. 6. Mikið líf og fjör var við höfn ina í gær eftir rólega fyrri viku. Þyrptust skipin inn um helgina, þannig að í gærdag var ekkert legupláss ónotað við höfnina. Fjórir fossar voru inni, Gull foss, Fjallfoss, Brúarfoss og Bakkafoss, en auk þess voru inni työ leiguskip á vegum Eim skip. Litlafell, Aarnarfell og Jök ulfell voru bundin við bryggju. Af sérkennilegum skipum við höfnina má nefna Tristan sænskt bílaflutningaskip, sem kom með yfir 80 ameríska bíla til landsins, tvö skjannahvít bandarísk hafrannsóknarskip á vegum bandaríska hersins, sem lágu við Ægisgarö. Auk þess lágu margir togarar og sand- dæluskipið Sandey við festar. Síldarflutningaskipið Síldin og rússneska skemmtiferðaskip ið Baltica lágu á ytri-höfn. Beiö Síldin eftir því að uppskip unarpláss losnaði við Granda- garð. Viðskipti við Pólland með frjálsum gjaldeyri í nýjum greiöslu- og viðskipta- samningi, sem var undifritaður milli íslands og Póllands í Wars- zawa í gær er horfið frá jafn keypissamningum, sem viðskipti landanna hafa byggzt á síðan frá lokum síðasta stríðs. Er í þess stað horfið að marghliða greiðslugrund- velli og fara viöskiptin hér eftir fram í frjálsum skiptanlegum gjald- eyri. Samningnum fylgja þó árlegir vörulistar og eru þar m. a. kvótar fyrir frysta og saltaða síld. Gildis- tími samnings þessa er frá 1. jan. 1967 til 31. desember 1969. Samkvæmt samningsgerð þessari var gengið frá bankatæknilegum atriðum, svo sem uppgjöri á greiðslu clearingreikninga o. fl. Ennfremur var undirrituð bókun um viðskiþti landanna á síðasta ársfjórðungi 1966 og sérstök bókun um viðskipti fyrir áriö 1967. Samninginn undirritaði af íslands hálfu dr. Oddur Guðjónsson, við- skiptaráðunautur, en af hálfu pólsku samninganefndarinnar, dr. W. Jurasz, forstjóri í samningsdeild utánríkisverzlunarráðuneytisins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.