Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 6

Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 6
6 V1SIR. . Þriðjudagur 27. september 1966. Reykianes — Framh. af bls 9 Öll framhaldsrannsókn reynd ist torveld eftir aö þannig var komið málum. Kom þó landlækn ir suður í Garð, lét grafa iík Elfnar upp, en taldi sig þess ekki umkominn að geta gefiö afgerandi úrskurð um dánar- orsökina. Þann eftirmála hafði þó þessi atburður, að Jón bóndi var dæmdur til fjárútláta, en tveir aðstoðarmenn hans við dysjunina til tugthúsvistar, Eg- ill Útskálaprestur mun og hafa hlotið nokkurt ámæli af afskipt um sfnum í þessu máli, en þá var tekið að styttast í embættis- rekstri hans þar í prestakallinu. VII EMtt sinn þegar verið var að taka gröf í Útskálakirkju- garði, líklega um 1750-60, urðu graftarmenn alvarlega skelkaðir, að þvf er sagnir herma. Höfðu þeir aðeins stungið fáar skóflu- stungur þegar þeir komu allt í einu niöur á órotnað lík eða mann, og vissu þó engan hafa verið grafinn þar síðustu áratug ina. Var maður þessi ekki í kistu, en með hatt á höfðinu og parruk, í svartri mussu, sortu lyngslituöum stuttbuxum og í mórauðum sokkum. Sá mussu- klæddi hvessti glymumar á graftrarmennina, enda var þeim þá nóg boðið, flýttu sér að moka ofan á hann og tóku gröf á öðr um stað í kirkjugaröinum. Annaðhvort þessi sami mað- ur, eöa annar honum áþekkur sást á ferli í bæjargöngunum að Útskálum seint á öldinni sem leið. Ögmundur Sigurðsson kenn ari sá hann um albjartan dag og lýsti honum sem nokkuð á- lútum, kkeddum stórri mússu og stuttbrókum, með hattkúf á höfði og flaksandi grátt hár und I an hattbörðunum. i VIII fjað er sízt að undra þótt svip * ir sjáist á Útskálum, því oft hefur þar í grendinni svip- lega atburði borið að höndum, ekki sízt tíð og váleg sjóslys undan Garðsskaga, og hafa hin ir sjóreknu þá iðulega verið jarð settir að Útskálum. Eitt sviplegasta sjóslys sem sögur fara af við Garðsskaga varð á útmánuðum 1685. Þá fórust 7 skip frá Stafnnesi meö samtals 60 manns, að undantekn um tveim mönnum sem komust lífs af. Strax nóttina eftir rak j 47 lík, sum í Garðinum, önnur j á Miðnesi. Voru þau öll jarðsett j að Útskálakirkju á einum degi, ! gerðar að þeim þrjár grafir og voru í eina þeirra lögð 42 llk, hvert við annars síðu og án þess að sett væru í kistu. 1 hinar tvær grafimar voru formennim ir jarðaðir, að þeim voru kist- ur gerðar og þeir hjúpfærðir. Aðrar heimildir herma að líkin hafi verið 89 sem grafin hafi verið að Útskálum eftir þetta voðaveður sem bátamir hrepptu, og hafi þau verið grafin á tveim dögum. Síðast í febrúar 1758 varð annað mikið sjóslys við Garðs- skaga, en þá fórust sex bátar með samtals um 40 manns í einu og sama veðri. Samkomulag — Framhald af bls. 16 Verðin eru miðuð viö, aö sild- in sé komin í löndunartæki verk smiðjanna eða umhleðslutæki sérstakra síldarflutningaskipa, er flytji sfldina til fjarliggjandi innlendra verksmiðja. Inneign sú, sem verður í flutn ingasjóði síldveiðiskipa þann 30. september 1966, skal yfirfærast til hins nýja verötímabils og vera til ráðstöfunar, ef nauðsyn krefur, samkvæmt reglum sjóðs- ins, sem birtar era í tilkynningu Verðlagsráðs sjávarútvegsins nr. 9/1966. Ekki er gert ráð fyrir greiðslum í sjóðinn af bræðslu- sildarverði þetta verðtímabil. Þá varð samkomulag á fundi ráðsins f dag um óbreytt verð á síld til söltunar norðan- og aust anlands tímabilið 1. til 31. októ- ber 1966, þ. e.: Hver uppmæld tunna (120 lítrar eöa 108 kg.) kr. 278.00 og hver uppsöltuð tunna (með þrem lögum f hring) kr. 378.00 Evrópumoistari — WMMMnw MMajnwaMa Framhald af bls. 16 svörtum röndum og þegar ég ætlaö) aö taka hann hrópaöi skipstjórinn aö ég mætti ekki snerta hann, hann væri eitraö- ur. En honum var ekki fleygt, þvi aö f haröri keppni er allt vigtaö sem maður dregur, og það varö að taka hann með töngum og setja á vlgt. — Hvaða fiska veiddiröu annars? — Eftir þetta fór allt að ganga betur en ég þekkti engan af flskunum nema skötu. Svo veiddi ég rauöan fisk likan karfa, hvitan fisk svo og Ijótan svartan fisk. Crupa, en þaö var stærsti fiskurinn minn, 23 pund og jafnframt stærsti fisk urinn, sem kona veiddi. — Veitti hann þér Evrópu- meistaratltii? — Ég fékk sérstakan bikar fyrir hann, siöan fékk ég bikar fyrlr bezta dagsaflann einn dag inn, og svo fékk ég Evrópu- meistarabikarinn fyrir beztan heildarárangur. — Hvað voru margir þátttak endur? — 180 og þar af 30 konur. — Hvernig gekk ykkur ís- lendingunum sem „landsliði“? — Mjög vel. ViÖ vorum efst þar til siðasta daginn aö Gíbralt armenn drógu 53 punda fisk og það gerði útsiagiö — viö urðum númer tvö. — Hver varð númer tvö af<s> konunum? — Hún heitir Segunda og er frá Marokkó. Maðurinn hennar er rikur hóteleigandi og á eftir, er ég fór i ferðalag um Mar- okkó meö nokkrum þátttakend um bjó ég á einu af hótelum þeirra hjóna. Ég verö aö segja aö það ferðalag, og mótið í heiid var stórkostlegt ævintýri fyrir mig. Kórferð — Framh af bls. 1. vel fyrir þessa ferö, sem hann vonaði aö yröi ekki hin síðasta meö fslenzkt ferðafóik. „Mun- um við gera okkar bezta til þess að gera ferðina ánægjulega“. sagði skipstjóri. Lýsti hann síö- an skipinu, sem er 26 ára gam- alt. Skipið er niu þúsund tonn, 137 metrar á lengd, 18% á breldd og hámarkshraði þess er 21 hnútur. í því eru tveir veit- ingasalir, tveir barir og 425 far- þegarými. Þar af eru í skipinu, fyrsti kiassi og „túristaklassi“ j auk tveggja íbúða. Auk þess era ORÐSENDING TIL NÚPVERJA Ungmennaskólinn að Núpi í Dýrafiröi, sem nú heitir Héraös- skólinn að Núpi, var stofnaður fyrir 60 áram síðan. Afmælisins verður minnzt vlö setningu skólans um miðjan október n.k. Nokkrir gamlir nemendur og aör ir velunnarar skólans komu saman á fund hér í Reykjavík á sl. vori til í skipinu kvikmyndasalur, bóka- safn þar sem eru bækur á ýms- um málum og fyrir þessa ferð var gerð sérstök sundlaug. Hef- ur skipstjóri veriö með skipið í ellefu ár og alls stundaö sjóinn í 28 ár. Kemur skipið núna beint frá London en þaö hefur undan- farin ár verið i siglingum á leið- inni Leningrad-London auk ann- arra hafna á noróurslóðum. Ahöfnin var sögð tala ýmsum tungum, og kom það á daginn að þar var m. a. íslenzkumæl- andi maður Igor Nikoiajvitsj Usov eöa Ingvi Nikulásson Usov eins og hann vildi iáta kalla sig. Sagði Igor að hann skildi samt meira í íslenzku en hann talaöi. fslenzkuna lærði hann í Lenin- grad. Voru fréttamönnum sýnd salar kynni skipsins og vistarverur farþega. Virtist sem ferðin myndi verða hin ægilegasta fyr ir farþegana í rúmgóðum káet- um, virðlst skipið hið traustasta en ber merki sins tíma. þess að ræöa um á hvern hátt þeir gætu heiðraö skólann á þessum tímamótum. Bar margt á gftma. Sumir vildu fá leyfi til að endur- byggja gamla skólahúsið og geyma það síðan til minja um upphaf skól ans. En upplýst var, að kostnaður inn við það yrði svo mikill, að ó- kleift mundi reynast aö fram- kvæma þá áætlun. Var þá sam- þykkt að láta gera líkan af gamla skólahúsinu og gefa það skólanum á sextugsafmælinu. Skyldi það vera vísir að minjasafni, ef stofnað vrði við skólann. Kosin var nefnd manna til að hrinda þessu máli í framkvæmd. Þessi skipa nefnd- ina: Stefán Pálsson, formaður, Jón- ína Jónsdóttir, ritari, Jón I. Bjama son. gjaldkeri, Baldvin Þ. Kristjáns son, Ingimar Jóhannesson, Jens Hólmgeirsson og Laufey Guð- jónsdóttir. Nefnd þessi gengst nú fyrir þvi aö haldinn verði fundur n.k. miö- ^ikudag 28. sept. í Átthagasalnum að Hótel Sögu. Hefst hánn kl. 21. Þar verður líkanið af húsinu til sýn is, nefndin skýrir frá störfum sín um og sýndar verða kvikmyndir frá Núpi m.a. kvikmynd af hátíöa- höldunum 1963, þegar minnzt var aldarafmælis séra Sigtryggs Guð- laugssonar. Áskriftarlisti liggur frammi fyrir þá, sem vilja taka þátt í afmælisgjöfinni. Þess er vænzt, að nemendur skól ans og aörir velunnarar í Reykjavik og nágrenni sæki fund þennan og leggi þannig lið sitt til þess að heiðra skóla sinn á merkilegum tímamótum. Nefndin. Skólinn tekur til stnrfn ■ nýju húsnæði Miðbæ Húuleitisbruut 58 - 60 Kennt verður: Söng- og hringdansar. Það hefur safnazt mikið af alls konar efnis- bútum og verður því haldin Bútasala nokkra næstu daga. Verzlun H. TOFT, Skólavörðustíg 8 Stúlka óskast til aðstoðar í prentsmiðju. Á sama stað óskast Sendill hálfan eða allan daginn. Prentverk Bolholti 6. Sími 19443 Barnadansar. Nýjustu táningadansamir: Vatusi, Jerk Fmg, Hoppel Poppel. Latin American dansar. Gömlu dansamir. Alþjóðadanskerfið, 10 hag- nýtir dansar. Einkatímar og smáhópar eftir nánara samkomulagi. Reykjavík: Innritun og upplýsingar daglega í síma 33222 og 35221 frá kl. 10 —12 f. h. og kl. 1—6 e. h. Upplýsingarit Iiggur frammi í bókabúðum. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS Akranes: Innritun daglega í síma 1560. Njarðvík og nágrenni: Innritun daglega í síma 91-33222 og 91-35221.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.