Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 5

Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 5
VlSIR . Þriðjudagur 27. september 1966. 5 morgun útl'dnd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd £ morgun útlönd Til sölu vegna brottflutnings sjónvarpstæki, Nordmende, með loftneti, ísskápur Bosch, stór þvottapottur 100 1., þvottavél og borð- stofuborð og stólar. Uppl. í síma 35942. Háseti — Stýrimaöur Háseta og stýrimann vantar á 56 tonna troll- bát. Uppl. í síma 23434 og 21030 Sendlar óskast Dagbl. Vísir óskar eftir að ráða nokkra sendla nú þegar. Vinnutími eftir hádegi. Vin- saml. hafið samband við afgreiðsluna. Sími 11660. Michigan ýtuskófla til sölu og sýnis við Ártúnshöfða. Óskað er eft ir tilboði. Uppl. í síma 33318 Geymsluhúsnæði Óskum að taka á leigu geymsluhúsnæði 50- 100 fermetra. Húsprýði h.f. Laugavegi 176. Sími 20440. Ballettskóli Eddu Scheving Austurbæ — Vesturbæ Kennsla hefst í byrjun október. Innritun dag- lega í síma 23500 kl. 2-5 e.h. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS fundum Yietnam í október Ferdinand Marcos forseti Filips- eyja hefur tilkynnt, aö hann hafi beðið leiðtoga sex þjóða að sitja fund í Manila í næsta mánuði til þess að ræöa leiöir til þess að koma á friði í Vietnam. Leiðtogum eftirtalinna landa var boðið: Bandaríkjanna, Ástralíu, Nýja Sjálands, Thailands, Malajsíu og Suður-Kóreu, og Filipseyjar eru sjöunda aðildarlandið. Leiðtogar allra landanna nema Bandaríkjanna eru búnir aö svara. Marcos skýröi frá þessu £ Hono- lulu á heimleiö frá New York, en á Allsherjarþinginu þar flutti hann ræðu og hvatti þá Sovétríkin til að efna til nýrrar „Tashjkent-ráð- stefnu“ og nú um Vietnam, en hin fyri leiddi til vopnahlés Pak- istan og Indlands. heims horna milli ,,BASSE-ntálIð#' aftur á forsíðum döasku blaðanna Kona / Álaborg játar að hafa tekið barnið, en „misst />að / vatn" Þrjátíu ára gömul kona frá Ála- borg hefur játað á sig barnsstuld- inn í Óðinsvéum. Hún var úrskurð- uð í 30 daga gæzluvarðhald, en vegna taugaveiklunar hennar var hún flutt á sjúkrahús. — Basse- málið sem vikum og jafnvel mán- uðum saman var forsíðuefni blaða, er það nú enn á ný. á þessu stigi verður ekki ekkert um það sagt, hvort konan hefir raunverulega stolið barninu og „misst það í vatn“, eins og hún seg- ir, eða þetta eru hugarórar and- lega bilaðrar manneskju. Tildrög játningarinnar voru, að taugaveiklun hennar ágerðist svo,1 að í fyrrinótt kvaddi maður kon- unnar til næturlækni, sem gaf henni róandi sprautu. Hún var þá búin að játa á sig stuldinn og þá hringdi maður hennar á lækninn, sem réð honum til þess að skýra! lögreglunni frá játningunni. Það var 7. febrúar, sem barns- j stuldurinn átti sér stað, — en móð-: irin hafði skiliö það eftir í barna- | vagni á gangstétt. I 9 Vínarborg: Franz Novak, fyrrverandi stormsveitarf oringi í Þýzka- landi í heimsstyrjöldinni síðari, veröur leiddur fyrir rétt sakað- ur um þátttöku i moröi á 400000 Gyöingum. Hann var sakaður um að vera meðsekur Eichmann og dæmdur í 8 ára fangelsi 1964. — Hin nýju réttarhöld munu standa 4 vikur. Novak er 53, ára. Hann- bjó eftir styrjöld- ina í Vínarborg undir fölsku nafni. Hann var handtekinn í janúar 1961. • Saigon: Mikið flóð er á Mekong-ósa- svæðinu og myndazt hefur stórt stöðuvatn, sem nær yfir bæði hluta af Suður-Vietnam og Kam bodiu, og eru þúsundir hektara af hrísgrjónaekrum huldir vatni. Vatniö hækkar óðum og meira en það geröi er það hækkaði mest í flóðunum 1961, er um það bil 200 manns fórust. Flóðin ná yfir hluta 4 héraða á ósa- svæöinu og kann aö verða aö flytja burt 80,000 af þeim 2 milljónum manna, sem þar búa. • London: Samband brezkra járnbrautarmanna hefir ákveð- ið að styðja efnahagsstefnu Wil- sons og að beita ekki verkfalls- rétti til þess að fá þá 3.5% kaup hækkun, sem búið var að lofa. • Moskva: Tassfréttastofan birt- ir frétt um það frá Peking, aö allir erlendir stúdentar í Kina hafi fengið fvrirskipun um að vera á brott úr landinu innan hálfs mánaðar. Vöruflutningar í lofti eru viðskiptaháttur nútímans Þér sparið Þér sparið Þér sparið tíma fé fyrirhöfn k“kindlrjáfPhk í stað daga, m þegar þér ■£“ flytjið vöruna | Flugfélaginu. Sérfarmgjöld fyrir sérstaka vöruflokka, örari unisetn- Einfaldari umbúðir, auðveldari meðhöndlun, fljót afgreiðsla. FLUGFELAG ISLAMDS wmsmmmmsm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.