Vísir - 06.10.1966, Side 3
VfSTlt . FiiiMm«nL=guf 6. o'Któfeer
hcr u
Þingað um
mál hins
Nefndir störfuðu af fu'llum krafti í hverju homi á Bræðraborgarstíg 9 á mánudagskvöld, en þar hefur BSRB skrifstofur sfnar. Skipulags-
málanefnd sat á fundi í baðstofu SÍBS á efstu hæð hússins og hér s jáum við nefndarmenn frá vinstri: Kristján Sigurðsson, Lögreglufé-
lagi Reykjavíkur, Páll Hafstað, Starfsmannafélagi ríkisstofnana, Inglbjörg Magnúsdóttir, Hjúkrunarfélagi Islands, Valdimar Ólafsson, Fé
lagi flugmálastarfsmanna ríkisins, Gísli Teitsson, starfsmannafélagi Reykjavíkur, Björn Bjarman, Landssambandi framhaldsskólakennara,
Bjami Ólafsson, Félagi íslenzkra simamanna, Magnús Jónsson, Félagi menntaskólakennara og Sturla Halldórsson, Félagi opinberra starfs
manna á ísafiröi. Að baki nefndarmönnum standa Kristján Thorlacius formaður bandalagsins og Haraldur Steinþórsson 2. varaformaður.
Allsherjamefndin sat á fundi i einu skrifstofuherberginu. Frá vinstri: Karl Guðjónsson, Sambandi ís-
lenzkra barnakennara, Ingimar Jónasson, Félagi starfsmanna Stjómarráðsins, Frlðrik Stefánsson
Starfsmannafélagi Siglufjarðar, Sigurjón Bjömsson, Póstmannafélagi fslands og Ævar ísberg, Skatt
stjórafélagi fslands.
Þrír úr starfskjaranefnd stungu saman nefjum áður en þingfundur var settur á þriðjudag: Páll Berg
þórsson, Starfsmannafélagi ríkisstofnana, Sigurður Sigurjónsson, Starfsmannafélagi Vestmanna-
eyja og Kristján Jónsson, Starfsmannafélagi Reykjavíkur.
opinbera
Á annaö hundraö fulltrúar
starfsmanna ríkis og bæja komu
saman til 24. þings B. S. R. B.
sem sett var í Reykjavík s.l.
sunnudag. Stóð þingið þar til í
gær. Aðalmál þingsins voru
launa- og kjaramál og endur-
skoðun laga um kjarasamninga
opinberra starfsmanna, en mörg
fleiri mál voru tekin til með-
ferðar.
Þingfundir voru haldnir í
Súlnasal Hótel Sögu, en þess
á milli störfuðu nefndir og héldu
þær fundi í húsakynnum B.S.R.
B. að Bræðraborgarstíg 9. Mynd-
sjáin brá sér kvöldstund aö
Bræðraborgarstíg 9 og 1 Súlna-
sal, rétt áður en þingfundir
hófust einn daginn, og birtir
svipmyndir frá báðum stöðun-
Þessir tveir brunaverðir voru vafalaust að ræða hagsmunamál sinn-
ar stéttar: Bjarni Bjarnason, Starfsmannafélagi Reykjavíkur og
Guðmundur Guðmundsson, Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins.