Vísir - 27.10.1966, Blaðsíða 4

Vísir - 27.10.1966, Blaðsíða 4
Hf aífen © Ný aðferð hefur verið tekin upp við þvott bíla hjá Ólafi Jó- hannessyni, sem hefur þvotta- stöðina hjá Skeljungi við Revkja nesbraut. Hann hefur fengið ný tæki frá Bandaríkjunum, há- Íírýstisprautu, sem nær óhrein- ndum mjög vel jafnvel undan krómlistum. Áður en háþrýst- ingi er beitt er bíllinn úðaður með sápu. Ólafur á von á að fá, siðar fljótandi bílabón, sem verður úð- að á bílana og mun sú aöferð koma til með að lækka stórlega kostnað við hreinsun bíla og auk þess stytta að mun tímann sem fer í verkiö. Ekki minnsta atriðið fyrir Öl- af og hans ,menn: Puðiö í sam- bandi við þessa vinnu er nú aö verða úr sögunni, en bílabónun og þvottur hefur löngum verið einhver erfiðasta vinna sem þekkzt hefur. Tvær nýjar bækur 'i Alfræðasafni AB Ronnsókn nauðg- unnrókærunnar ólokið Rannsókninni vegna nauögunar- ákærú 16 ára stúlku úr Reykjavík á hendur fjórum sjóliðum á Kefla- víkurflugvelli er enn ekki lokið, samkvæmt því, sem fulltrúi lög- reglustjóra á Keflavíkurflugvelli tjáði Vísi í morgun. Verður rann- sókninni haldið áfram í dag, en bú- izt er við að upplýsingar liggi fyrir á morgun. Um daginn höfðu tveir sjólið- anna viðurkennt að hafa haft mök við stúlkuna, en samkvæmt því sem upplýstst hefur síðan er það talið ósennilegt og að sjóliðarnir hafi sagt það til að gera stúlkuna tortryggilega. ekki nema fá þeirra og hafði ekk- ert fundizt í morgun. Heildarveiðin er þá orðin rúm 522 þi&UritÍ íestii- það 'serii af! er þessu sumri og ailgott útlit um veiði, ef veður helzt sæmilegt. Því að milcið sddarmagn er út af Aust- fjörðum, eins og vitað er. Skólaraál LítiE síldveiði Síldveiði var með minnsta móti síðustu viku, enda ógæftir lengst af og ekki veiðiveöur utan einn sólarhring, þann 19. en þá fengust tæpar 4 þúsund lestir. Síðan hefur ekki gefið á sjó fyrr en í nótt að skip tóku að tínast á rhiðin og þó Enginn sótti um Möðruvelli Fjögur prestaköll þar á meðal Möðruvallaprestakall í Hörgár- dal voru auglýst laus til umsókn ar í haust. Sótti enginn um Möðruvelli né neitt hinna prestakallanna, sem voru þessi: Eskifjöröur 4 Múlaprófasts- dæmi, Hvammur í Dalaprófasts- dæmi og Saurbær í Borgarfjarð- arprófastsdæmi. Rann umsýknarfresturinn út þyjnn 15. okt. Framhald al bls. 9. unnar, þar sem einn kennari ] kennir allt að 300 nemendum, en við hinn hluta skólastarfsins er nemendum skipt í minni hópa, fimmtán manna t.d., allt eftir því hvaða verkefni nem- endurnir fást við. Hvort hægt er að framkvæma eitthvað af þessu hér, skal ég ekki segja,: en hins vegar er nauðsvnlegt fyrir okkur að hafa opin eyru og augu og fylgjast með því, sem 1 er að gerast í kringum okkiir. Um framkvæmdir í skóla- [ byggingum má benda á, aó reynt hefur verið að haga störfum þannig, að hægt sé að taka nýja áfanga f notkun sem fyrst. Skólalóðirnar eru í auknum mæli gerðar þannig, að aðstaða^ til leikja sé /fjölbreyttari en áð- ur var, vellir gerðir fyrir fót- bolta, handbolta og körfubolta og ýmis leiktæki sett upp fyrir vngri nemendurna. Er skortur á kennurum í Reykjavík við bama- og ungl- ingaskólana og hafa þeir allir tilskilda menntun? Ég mundi segja, að ekki væri um að ræöa skort á kennurum á barnaskólastigi hér í Reykja- vlk. Engir kennarar kenna nú við barnaskólana nema þeir, sem hafa full réttindi, þ.e.a.s. eru útskrifaðir úr kennaraskóla eða öðrum hliðstæöum skólum En á unglinga- og gagnfræöastigi er mikill skortur á kennurum. Hvaö vilduð þér svo segja um kennaramenntun og launasam- ræmi kennara? Margir skólamenn á Norður- löndum og viðar telja, að allir kennarar á skyldunámsstigi eigi að hafa sömu eða svipaða menntun, sömu laun og sama starfstíma. Sumir eru þó þeirrar '‘'“'Skoðunar,1 'aö kennarár tvéggja til þriggja yngstu aldursflokk- anna i barnaskóia gætu ‘ haft' lfIi nokkuö aðra menntun en hinir, sem kenna eidri nemendum, þar sem meira reynir á sérhæfni í einstökum greinum. Viðast hvar er kennaranámið byggt á stúdentsmenntun eða annarri menntun hliðstæðri, og finnst mér það eðlilþg og sjálfsögð þróun. En ég tel brýna nauðsyn á að samræma laun og starfsemi þeirra kennara, sem kenna nem- endum á skyldustigi. Þessa dagana koma á markaðinn tvær nýjar bækur í Alfræðasafni AB og fjalla báðar um efni, sem eru í senn forvitnileg og taka í sívax- andi mæli til allra mannlegra sam- skipta. Þessar bækur eru Stærð- fræðin eftir David Bergamini, víð- kunnan rithöfund á vísindaleg efni, og Flugið eftir þá H. Guyford Stev- er, prófessor í tæknivísindum, og James J. Haggerty, verðlaunahöf- únd, sem gert hefur flugmál. og geimferöir að sérgrein sinni. Hefur Björn Bjarnason mcnntaskólakenn- ari íslcnzkað fyrri bókina, en Bald- ur Jónsson lektor hina síðari. Stærðfræðin er 8. bókin í Al- fræðasafninu. Er þar komið að þeirri fræðigrein, sem talin er eitt elzta og markverðasta viðfangsefni mannlegrar hugsunar, enda stund- um nefnd drottning vísindanna. Fyr ir tilvist hennar og atbeina hefur mönnum tekizt aö ráöa margar flóknustu gátur rúms og tíma og hún hefur öldum saman staðið und- ir og átt meginhlut að flestum fram förum í raunvísindum og tækni. Samt hefur vald hennar og áhrifa- máttur aldrei verið stórkostlegri en á vorumidöeum, öid geimsiglinga, kjarnork'u og rafreikna, eða varðað hvern eiustakling jafnmiklu. Það er þvf’ekki vonum fyrr, að bók sem þessi sé gefin út hér á landi, og ugglaust kemur hún mörgum í góð- ar þarfir. Hún eyðir sjálfkrafa þeim misskilningi, sem mörgum hefur ver iö fjötur um fót, að stærðfræðin sé ekki á valdi annarra en sérstakra „r,eikningsheila'‘. í Fluginu, sem er 9. bók Alfræða- safnsins, er að upphafi sagt mjög skemmtilega frá mörgum misheppn- uðum tilraunum hins jarðbundna mannkyns til að sigrast á líkams- fjötrum sínum og fljúga að eigin geð þótta „um loftin blá“. Sennilega hafa þó fæstir lagt í einlægni trún- að á, að þesfei ævarandi draumur mannanna mundi rætast, og allra sízt að hann yrði sá stórfenglegi veruleiki, sem komið hefur á daginn En þó að nú hafi það ævintýri gerzt, að íslendingar séu samkvæmt alþjóðaskýrslum mesta flugþjóð ver aldar, hefur æðifátt verið skrifað fræðilega um þessi efni hér á landi. Má því ætla, eins og Agnar Kofoed Hansen flugmálastjóri lætur um mælt í formálsorðum, að „með út- gáfu þesarar glæsilegu. bókar sé bætt úr brýnni þörf", enda muni hún „eignast góövini í öllum stétt- um og aldursflokkum" og opna þús- undum æskumanna þann „undra- heim flugvisindanna, sem tekur fram öllum ævintýrum". Eins og fvrri bækur í Alfræða- safni AB er bæði Stærðfræðin og Flugið hið mesta augnayndi. í hvorri bókinni um sig eru á annaö hundrað myndir, þar af meiri hlut- j inn heilsíðulitmyndir. SILKINETIÐ í ÚTVARP Nýtt framhaldsleikrit hefur göngu sína 1 útvarpinu í kvöld. Er það „Silkinetið“. eftir Gunn- ar M- Magnúss og fjallar um ferðir Islendinga til Vesturheims frá árinu 1875 að aldamótum. Er þetta þriðja framhaldsleikritið, sem útvarpað er eftir Gunnar. Hin voru í múrnum og Herrans hjörð. Nýja framhaldsleikritið vérður flutt á miðvikudagskvöld um. Sneri blaðið sér f morgun tll dagskrárstjóra útvarpsins Har- alds Ólafssonar, sem sagði, að löngu hefði verið ákveðið að setja framhaldsleikritið á þetta kvöld vikunnar og stæði það ekki í neinu sambandi við sjón- varpsútsendinguna íslenzku sem þeir hefðu ekki vitað um, þeg- ar dagskráin var samin. Á æfingu íútvarpssal á Silkineetinu. Frá vinstri Helga Valtýsdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir, Guðmund ur Pálsson og Árni Tryggvason. Fyrir aftan hann er Klemenz Jónsson og þá höfundur Gunnar M. Magnúss, sem ræðir þarna við Jón Sigurbjömsson. ecg FLUGIÐ ^T" 1 rjpiji jfljl 'f ^ í u tSOWf | V1 S IR . Fimmtudagur 27. október 1966. E'ESSí:

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.