Vísir - 27.10.1966, Blaðsíða 7
7
Til vinstra er Schramm að fljúga þyrlu sinni í garðinum heima hjásér.T. h. eru öll helztu mál hinnar nýju byrlu, til glöggvunar áhugamönnum,
h—'."..j.:janaz$gzajiiwgMW—<mw—wwwww iliiHi »—ii *
I-fC llngur Bandaríkjcnrinður hefur
hyggt handhægu litBa þyrlu,
sem komin verður á markað
Tekur þyrilvængja við hlutverki smábílsins innan tíðar?
Smábíh. sem hægt er að
fljúga, muin brátt verða að veru-
ieika. Ungur áhugamaður um
flug, B.J. Schramm, búsettur í
Kaliforníu í Bandaríkjunum, hef
ur gert litla og mjög handhæga
þyrilvængju, sem sameinar allt
það, sem menn hafa gert sér í
hugarlund, að fljúgandi smábíll
þurfi að hafa. Þessi fljúgandi
smábíll er reyndar lítil þyril-
vængja, aðeins rúmir 6 m á
Iengd, auðvelt að geyma hana
í bílskúr og auðvelt að hafa
hana á vagni, sem dreginn er af
fólksbíl. Þyrilvængja þessi hef-
ur vakið mikla athygli, eins og
nærri má geta. Kostnaður við
þessa reynsluþyrilvængju er
3-400.000.00 krónur, en það er
helmingur kostnaðar við hinar
venjulegu smáþyrlur, sem nú
eru á markaðinum.
Flugvélin getur flogið með um
74 hnúta hraða, og eldsneytis-
tankur hennar getur geymt elds-
neyti til 2 klukkustunda og 15
mín. flugs. Vélin í þyrlunni er
100 hestafla vatnskæld Mercury
vél, en þegar hafizt verður
handa um framleiðslu á vél-
inni fyrir markaðinn, er gert
ráð fyrir, aö í þyrlunr., i veröi 100
ha. loftkæld Continental flugvéla
mótor. Sá mótor mun gera vél-
inni kleift að hækka flugið um
allt að 400 m á mín. Um sjálfa
grindina hefur Schramm sett
straumlínulagað ál-hús (N.B.
'ál = enska orðið álúmiriiúmj, érf
þegar verður farið að framleiða
þyrluna fyrir almenning er'lík-
legt' að í stað álsins komi sér-
stök tegund plasts. Þá hefur
Schramm beitt ýmsum brögð-
um. sem, gera það að verkum,
að þy.lan er óvenju létt, án elds
neytis vegur hún aðeins 225 kg.
■Listir-Bækur-Menningarmál"
Hjörleifur Sigurðsson skrifar myndlistargagnrýni
í RÍKI LJÓÐSINS
Guömunda Andrésdóttir hef-
ur ætíð verið vaxandi málari.
Hún hefur stefnt upp í hljóðri
leit, þreifað sig áfram fet fyrir
fet, svo að sjá mátti djúpar rist-
ur og hrjúf för í slóð hennar.
Hún hefur sannarlega ekki far-
ið varhluta af erfiðleikunum,
sem tilurð listaverks heimtar.
Hin fjölmörgu vandamál tækni
og aðferðar hafa ekki sneitt
hjá henni og hún hefur ekki vik-
izt undan skyldunni að veita
þeim viðnám í hvert eitt sinn.
Teikningar, vatnslitam. og olíu-
málverk — allar greinimar hafa
oröið að gangast undir þrautir
svigbrautarinnar, þar sem hiið-
in eru mörg og undraþröng. Af
þessum ástæðum og vitaskuld
sakir þess, að Guðmunda er
gædd sérstæðum gáfum, hefur
list hennar bókstaflega sprung-
ið út á síðustu tímum og stend-
ur nú i fullum blóma. Gátum
við vænzt annars ?
í dag eru myndir hennar Ijóö-
rænni og stílfegurri en flest ann
að í íslenzkri myndlist. Þegar
ég nefni Ijóöið, vildi ég leggja
áherzlu á, að yndi litanna skip-
ar æðsta sessinn og aö allt ann-
að hlýtur að lúta boði þess og
banni. Hjá Guðmundu eru litirn-
ir tær lind. Þessum eiginleika
tapa þeir aldrej í hita deiglunn-
ar. Þvert á móti öölast þeir fyll-
ingu er verkið þokast áfram. Ég
hika ekki við að segia, að ein-
mitt þetta er einn af hornstein-
unum. Ég minntist einnig á stíl-
fegurð. Raunar mætti allt að
einu tala um stílfestu. Á fáum
listsýningum öðrum hef ég heft
jafneindregið á tilfinningunni
að öll listaverkin væru af sama
toga spunnin, gætu vafninga-
laust rakið upphaf sitt til sömu
persónunnatj og hvíldu þar að
auki á sérstakri hugmyndasam-
fellu, ef ég mættj komast svo
aö orði. Hver einstakur partur
samfellunnar kallar viðstöðu-
laust á annan og gerir heildina
magnaðri, þráðinn snurðulaus-
ari. Stundum er botninn í lista-
verkinu dökkur fláki, sem fáir
veröa tiltakanlega varir viö, en
smitar þó frá sér til allra átta
— stundum birtist hann okkur
í líki rauörar slæðu, sem heldur
þéttingsfast utan um létta miöju
Þetta voru aðeins lítil dæmi úr
huga mínum.
Öll sönn málverk mætti kalla
drama litanna. Þaö eitt, að lita-
flekkir snertast og tendra líf
í kringum sig er ógleymanleg-
ur viöburður. Hvað gefur um-
hverfi okkar- meiri fyllingu en
litimir í ýmsum myndum ? Væri
heimurinn nokkuð annaö en flat
neskja, ef litabúntin væru ekki
sífellt aö stokka hann upp og
hlaða hann hörku eða mildi,
heiðríkju eða þungri brún ? Mál-
verk Guðmundu eru auðvitað
dramatísk í þessum skilningi.
Hins vegar er hún komin all-
langt frá þeirri tegund drama-
tíkur, sem heilir fletir og vold-
ugir bera uppi. Ljósahöfin henn
ar tvö : hið dekkra aö ritan og
Ijósara um miöju, minna mig
stundum á gotneskan vef í suð-
rænni kirkiu. Þau eru í hæsta
máta frumtegur skerfur til nú-
tíðarlistar.
Áður en Schramm og hinir
þrír félagar hans hófu smíði
þyrlunnar, hafði Schramm al-
drei flogið þyrlu. En við að
reyria hana komst hann alveg
upp á lag með aö stjórna henni.
Meö þessu segiet Schramm hafa
orðið’ þesif'ás'kynja 'að til þess
að vera færir um að stjórna þyrl
unni þatfi 'ffienir aðeins venju-
lega heilbrigða skynsemi og
venjulega hæfileika, sem allflest
ir séu búnir.
Þá segir hann einnig, aö þess
ar staðreyndir bendi til, að þeg
ar framleiðslan á þyrlunni hefj
ist, muni hún brátt verða þarf-
w 'sti bjónn mannsins, og taka
.T með við hlutverki bifreiöar-
nar.
\meríska flugmálastjórnin
Aviation Aqency) hef-
ur nú farið þess á leit við
Schramm aö hann taki próf á
venjulega tveggja sæta þyrlu.
(Þess' nýja vél hans er aðeins
meö eitt sæti), og þá segja
þeir hjá sömu stjórn, að hún
.yeröi að samþykkja .ýmislegt i
sambandi við gerð og búnað þyrl
unnar, áöur en þyrlan verður
sett á markaðinn. Er það ósköp
skiljanlegt. Schramm og félagar
eru bjartsýnir á aö hún verði
komin á markaðinn á næsta ári
Segja þeir, að þyrlan geti veriö
til. margra hluta gagnleg, svo
sem mjög heppileg á búgöröum
þá sé hún og mjög handhæg til
löggæzlu á þjóövegum og einnig
ef til vill til hernaðarnota. Þeir
segja, að létt sé aö bæta einu
sæti í vélina, þannig að hún
veröi tveggja sæta.
Hafnarf jörður — Garðahreppur
Skrifstofustúlka
Viljum ráða til okkar skrifstofustúlku, vélrit
unarkunnátta nauðsynleg. Uppl. á skrifstof-
unni.
Sápugerðin Frigg
Lyngási 1, Garðahreppi.
Verkstjórnarnámskeiðin
Annað verkstjórnarnámskeiðið á þessum vetri
verður haldið sem hér segir:
Fyrri hluti 14.—26. nóv. n.k.
Síðari hluti 23. jan.—L febr. n.k.
Umsóknarfrestur er til 8. nóv. n.k. Allar upp-
lýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá
Iðnaðarmálastofnun íslands, Skipholti 37,
Reykjavík.
Stjórn Verkstjórnarnámskeiðanna.
inn á næsta ári
©