Vísir - 27.10.1966, Side 8
•\
8
VISIR
Utgefandi: BlaOaútgátan VISIR
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
AðstoOarritstjóri: Axe) Thorsteinson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, simar 15610 og 15099
AfgreiOsla: Xúngötu 7
Ritstjóm: Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 Unur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðja VIsis — Edda h.f.
Áfengi og unga fólkið
Lengi hefur það verið umhugsunarefni hér á landi,
hvernig efla megi heilbrigða félagsstarfsemi unga
fólksins og halda því frá margvíslegum hættum, eink-
um áfengisneyzlu. Áfengisneyzla á sér rætur í siðum
og venjum þjóðfélagsins og í sálarlífi fólksins og ger
ir það vandamálið miklu stórf elldara en ella. Hins veg-
ar bendir ekkert til þess, að þetta vandamál sé meira
hér á landi en gengur og gerist meðal menningarþjóða
þar sem ungt fólk hefur mikil fjárráð. Sú staðreynd
þarf samt ekki að letja, að margvíslegra úrræða sé
leitað tií að halda áfengisneyzlu manna, og þá eink-
um unga fólksins, innan ramma hófsemdár.
Virkasta ráðið í þessum efnum er að efla félags-
líf unga fólksins, skapa því samastað til að koma sam-
an og skemmta sér við dans og önnur áhugamál. Mikl-
ar tilraunir hafa verið gerðar í þessa átt í Reykjavík
og víða úti á landi og þykja hafa gefizt vel, svo langt
sem þær ná. Æskilegast væri, að ríkisvaldið taki þessi
mál föstum tökum og vinni skipulega að því að skapa
æsku landsins athvarf í frístundum, bæði með fjár
framlögum og með hvatningu til sveitarfélaga um
framkvæmdir á þessu sviði.
Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra, lagði fram á
Alþingi fyrir þremur árum stjórnarfrumvarp um breyt
ingar á áfengislögunum, þar sem m.a. voru sett ýmis
ákvæði, sem snerta áfengisneyzlu æskumanna, og
skýrt var ítarlega frá á sínum tíma. Áfengismála-
nefnd þingsins hefur síðan haft þetta frumvarp til með
ferðar og var það nýlega lagt fyrir Alþingi að nýju
með nokkrum breytingum. Helzta breytingin er sú,
að vínveitingahús verði skylduð að hafa fulla þjón-
ustu án vínveitinga fjórða hvern laugardag. Með
þessu ákvæði á að skapa æskulýðnum tækifæri til
að skemmta sér á laugardögum á þessum stöðum, án
þess að áfengið sé látið freista hans.
Það liggur í augum uppi, að vandamál áfengis-
neyzlu unga fólksins verða ekki leyst með lagasetn-
ingu einni saman, því að í þessu efni eru það einkum
framkvæmdaatriðin, sem skipta máli. í greinargerð*
inni með frumvarpinu er fjallað um ýmis slík fram
kvæmdaatriði, sem ekki eru tekin fyrir í frumvarpinu
sjálfu. í greinargerðinni er m.a. lagt til, að hafnar
verði hér á landi víðtækar vísindalegar rannsóknir á
áfengismálum/bæði frá félagslegu og læknisfræðilegu
sjónarmiði og komið verði upp rannsóknastofnun í á-
fengismálum, sem hafi þetta verkefni. Þá er lagt til,
að æskulýðsstarf verði eflt og hið opinbera stuðli að
því með fjárframlögum. Alls eru í greinargerðinni níu
tillögur til úrbóta í þessum efnum.
Me£ vaxandi frístundum og fjárráðum unga fólks
ins eykst þetta vandamál og kallar á samstarf ríkis-
valds, sveitarfélaga og áhugamannafélaga til mikilla
átaka við að efla heilbrigt félagslegt sjálfsuppeldi
unga fólksins.
V1SIR . Fimmtudagur 27. október 1966.
———■Wlilllilllll'illl I I »
£r íslenzkt æskufólk í dag
drykkfelldara og á annan hátt
spilltara en það hefuráður verið?
Um þetta mál eru skoöanir
mjög skiptar — segja sumir aö
heimur fari versnandi og æskan
meS, en aðrir segja aö æskan
hafi aldrei verið eins efnileg og
einmitt í dag.
Skólastjórar framhaldsskóla
eru þeir menn, sem hvað mest
afskipti hljóta að hafa af ungu
fólki og því er fróðlegt að heyra
hvert þeirra álit er á þvl hvort
áfengishneigð og áfengisneyzla
nemendanna fari vaxandi eður
ei. i
í skýrslu áfengismálanefndar
eru birt bréf 11 skólastjóra, þar
sem þeir svara fyrirspumum
ur bragði áfengi, enda mun þaö
jafnan hafa verið svo í íslenzk-
um menntaskólum að nemendur
neyttu eitthvað áfengis. Era ára-
skipti að því og fer eftir bekks-
ögnum, og mun löngum mega
rekja til fárra manna, hvaöa
andi ræður hópnum. Þó ætla ég,
að þeir muni nú færri en áöur,
sem ekki bragða áfengi. Aldar-
andinn er sá, að ungl. semja sig
sem fyrst að siðum hinna full-
orðnu. Þá mun það heldur ekki
til þess fallið að draga úr áfeng-
isneyzlu á Akureyri, að tveir
veitingastaðir hafa nú vínveit-
ingaleyfi. Slíkar „framfarir"
munu vart til þess gerðar að
stuðla að því, að Akureyri verði
valinn skólabær.
Skólastjóri Bændaskólans á
Hvanneyri, Guðmundur Jónsson:
Brot gegn áfengisneyziu fara
ekki vaxandi, en að sjálfsögðu
er þar mismunur milli ára.
Skólastjóri Gagnfræðaskólans í
Neskaupstað, Þórður Kr. Jó-
hannsson:
Áfengisneyzla nemenda er yf-
irleitt hverfandi lítil, en viröist
þó heldur fara vaxandi og er
það þá einkum á dansleikjum
utan skólans.
Skólastjóri Gagnfræðaskóla
Austurbæjar, Sveinbjör n Sigur-
jónsson:
Ég hef ekki orðið þess var i
samskiptum skólans við nemend
Drykkjuhneigð nemend-
anna vex ekki
— að áliti nteiri hluta skólastjóra
nefhdarinnar um áfengisneyzlu
nemenda skóla sinna. Eru bréf-
in rituö vorið 1965, af þáver-
andi skólastjórum 03 birtum viö
hér stuttan kafla úr hverju bréfi
þar sem rætt er ufn hvort á-
fengishneigð sé meiri nú en hún
hefur áður verið. Hér verður að
taka tillit til þess að nemend-
ur eftirtalinna skóla eru ekki
allir á sama aldri — t. d. eru
nemendur Stýrimannaskólans
um og yfir tvitugt.
Rektor Menntaskólans í Reykja-
vik, Kristinn Ármannsson:
Eftir rúmlega 40 ára kynni af
nemendum skólans held ég, að
mér sé óhætt að fullyrða, að
áfengishneigö og áfengisneyzla
nemenda hafi farið stórum
minnkandi hin siðari ár. Að visu
era því miður alltaf einhverjir
örfáir ofdrykkjumenn í hópi
nemenda. En langoftast hafa
þeir vanizt ofdrykkju, áður en
þeir komu í þennan skóla, og
oftast hrökklazt þeir burt úr
skólanum, án þess að Ijúka fullr.
aðarprófi.
Skólameistari Menntaskólans á
Akureyri, Þórarinn Bjömsson:
1 reglugerð fyrir menntaskóla
stendur: ,
„Nemendur mega aldrei ölv-
aðir vera eða á þeim sjást, að
þeir hafi neytt áfengis. Áfengi
má eigi hafa um hönd i húsa-
kynnum skólans. Brjóti nemend
ur gegn þessu, skal skólastjóri
vanda um við þá og áminna og
gera forráðamönnum þeirra að-
vart um brotið. Skipist nemend-
ur eigi við endurtekna áminn-
ingu, ber aö víkja hinum* brot-
lega úr skóla“.
Þessi eru ákvæði reglugerðar
um áfengisneyzlu nemenda í
menntaskóla. Hér er ekki lagt
algert bann við því, að nemend-
Skólameistari Menntaskólans á
Laugarvatni, Jóhann S. Hannes-
son:
Ég'tel ekki ástæðu til þess að
ætla, að drykkjuhneigð nem-
enda sé aimennari nú en þegar
ég var sjálfur í skóla fyrir 25—
30 árum. Mér virðist sem nem-
endur neyti áfengis í svipuðum
mæli og þá, við svipuð tilefni og
af svipuðum hvötum. Einnig
virðist mér sem þeir I þessum
efnum njóti enn svipaðs stuðn-
ings og svipaðrar hvatningar til
drykkju frá þjóðfélaginu utan
skólanna. Ef um nokkum nýjan
vanda er að ræða, mun hann
helzt sá, að nemendur komast
nú í kynni við áfengi öllu yngri
en áður tíðkaðist, en breytingu
í þessa átt mátti greina þegar á
mínum skólaárum.
Skólastjóri Verzlunarskóla ís-
lands, Jón Gíslason:
Þótt ótrúlegt sé, ber meira á
áfengisneyzlu meðal yngri nem-
enda en hinna eldri. Hefur sú
breyting orðið á nú hin allra sfð-
ustu ár. Áöur var þetta Öfugt.
Að öðru leyti tei ég drykkju-
hneigð f sjálfu sér ekki almenn-
ari nú en áður. Hitt er annað
mál, að nú hafa miklu fleiri en
áður næga peninga til að láta
margt eftir sér, sem áður var
flestum ókleift.
Skólastjóri Stýrimannaskólans,
Jónas Sigurðsson:
Varöandi það, hvort drvkkju-
hneigð sé almennari og útbreidd
ari en áður var, vil ég taka fram,
að ég hef ekki orðiö var við
nein meiri brögð að áfengis-
neyzlu nemenda á síðari árum,
að minnsta kosti hpfur ekki bor-
ið á því. af nemendur mæti
verr f skólanum en áður var,
og hefur þó fjöldi þeirra vaxið
mikið á síðari árum.
ur að drykkjuhneigð hafi aukizt.
Það hefur þvert á móti á sföustu
áram æ sjaldnar komið fyrir, að
nokkur nemandi reyndi að
smygla áfengi inn á skemmtun
haldna f skólanum. Hvort nem-
endur kunna að brjóta af sér á
þessu sviði í Lfdó eða öðram al-
mennum samkomuhúsum hefur
skólinn þvf miður enga aðstöðu
til að fylgjast með.
Skólastjóri Gagnfræðaskólans á
Akureyri, Sverrir Pálsson:
Ekki get ég annað sagt en
mér virðist bindindissemi og
víndrykkja meðal nemenda skól
ans litlum breytingum hafa tek-
ið í fjöldamörg ár, og tel ég að
ástandið í heild sé sfzt verra en
annars staðar, þar sem ég hef
spumir af.
Skólastjóri Skógaskóla, Jón R.
Hjálmarsson:
Ekki sýnist mér drykkju-
hneigð unglinga almennari en
áður, en þvf ber sízt aö leyna.
að cpinberir dansleikir, sem
unglingar sækja mjög, eru miö-
ur heppilegir né æskilegir til
uppeldis.
Skólastjóri Alþýðuskóians á
Eiðum, Halldór Sigurðsson:
Um það atriði, hvort drykkju-
hneigð nemenda f- skólanum sé
meiri eða hafi aukizt, vil ég
segja þetta:
Það er vafasamt að svo sé.
Hins vegar er það á allra vit-
orði, að drvkkjutízka hefur
færzt óhugnanlega í aukana, og
allt umhverfið er bókstaflega
fljótandi f áfengi. Þess vegna
getur aðeins skilyrðislaust bann
og ptrangur agi í skólanum hald-
ið þessu f skefjum.
★
Ef þessi svör eru borin sam-
an verður ekki annað seð en að
æskan, skólaæskan, neyti á-
fengis í svipuðum mæli og fyrr
og þá „við svipuð tilefni og af
svipuðum hvötum" eins og
einn skólastjóranna komst að
orði.