Vísir - 28.12.1966, Side 2
V1SIR . Miðvikudagur 28, desember 1966.
EKKI NÓG AD BERJAST EINS
OG GRENJAND! UÓN VIÐ FRAM
jnnilega var það of mikil
íerzla, sem lögð var á
irku í vamarleik en heil-
rigða skynsemi, sem varð
1 þess að Haukar töpuðu
; /o stórt í gærkvöldi fyrir
i.'ram í 1. deild í handknatt
:ik í Laugardalshöllinni,
ftir að staðan var nokkuð
jfn í hálfleik. Hvað eftir
nnað gleymdu Haukamir
ér og hugsuðu um menn
n ekki leik.
Þaö kom í ljós í þessum leik
sem oft áður, aö sá sem brýtur
nest af sér kvartar einnig mest
indan hörku mótherjans. Þannig
brauzt þaö út hjá þeim ágæta
narkverði Haukanna, Loga Krist-
jánssyni, þegar hann ávarpaði
blaðamenn í „stúku“ sinni í miðjum
seinni hálfleik og sakaði þá um
eínhvers konar persónudýrkun á
Gunnlaugi Hjálmarssyni. „Blöðin
hampa þessum rudda, — sáuð þiö
ekki að hann sló manninn vilj-
andi?“ Sjálfur hafði hann þó ekki
verið áhorfandi að þessu umrædda
„höggi“.
Haukamir hugðust sem sé
berjast eins og grenjandi ljón, en
Fram-liðið er of vel upp byggt til
að láta slíkt brjóta sig niður, —
einhver skynsemi þarf aö vera í
leiknum. Línumennimir leystust úr
læðingi og hvað eftir annað söng
boltinn í netinu frá þeim, — oft
eftir frábærar sendingar Guöjóns
Jónssonar, sem átti nú einn sinn
bezta leik.
í fyrri hálfleik náðu Framarar
yfirburðastöðu, fyrst 4:0, en Hauk-
ar skoruöu sitt fyrsta mark á 13.
mínútu, slðan var staðan 7:1 fyrir
Fram, en Stefán Jónssonar skorar
á 25. mínútu 7:2 og þær rúmu 5
mínútur, sem vom til leikhlés
notuðu Haukar vel, skoruðu nú
fjögur mörk í röð og var staöan
þá 7:5 fyrir Fram, en staðan í hálf-
leik var 9:7, síöasta mark Fram
var beinlínis Val dómara að þakka
(eða kenna).
1 seinni hálfleik voru Framarar
áberandi betri aðilinn og sýndu
hvað eftir annað mjög góðan leik.
Eftir 10 mínútur höfðu þeir skorað
7 mörk í striklotu og staðan var
orðin 16:7 fyrir Fram. Fyrst eftir
tæpar 12 mínútur tókst Matthíasi
að skora fyrir Hauka, áður höföu
línumenn verið óhittnir og klaufsk-
ir og vítakast farið í stöng. Það
sem eftir var af hálfleiknum var
leikurinn jafnari hvað tekur til
markanna, en Framarar1 þó greini-
lega sterkari aðilinn og sigurinn
26:14 veröskuldaður.
Þó er greinilegt að Haukar búa
yfir meiri getu en þeir sýndu í
þetta sinn. Þeir hafa líka talsvert
Ásgeir Þorsteinsson kemst inn á línu.
ÁRMENNINGA R AUD-
VELDIR
FH
Ármenningar voru enn einu sinni
auðveld bráð i 1. deildinni. FH
vann þá stórt í gærkvöldi með
30:13 og verður ekki annað sagt
en að Ármenningar hafi verið
heldur nöturlegir, eins og þeir léku,
enda vantar mjög í liö þeirra vegna
meiðsla, eins og skýrt hefur verið
frá áður.
FH náði þegar undirtökunum
og komst yfir I 8:1 eftir 15 mín-
útur og I hálfleik var staðan 17:6
fyrir FH. I seinni hálfleik var eins
og leikurinn jafnaðist nokkuð fyrst
i stað, en þegar leið að lokum
komu yfirburðir FH bezt i Ijós og
þeir skoruðu hvert markið á fætur
öðru og unnu leikinn 30:13.
Ármenningamir gera sér greini-
lega Ijósa hættuna, sem þeir eru í
í 1. deild. Liðið er mjög veikt,
fátt um verulega sterka einstak-
linga og í heild nær liðið ekki
saman. í gær var greinilegt að
liðsmenn reyndu heldur að halda
boltanum en að reyna að komast
í gegnum vörn FH og skora, —
tilraun til að halda markatölunni
niðri, sem þó tókst ekki nema að
litlu leyti.
FH er hins vegar greinilega í
mjög góðu „formi“ og það verðúr
eflaust gaman að leik þeirra við
Fram, sem mun verða 5. janúar
n.k. Geir Hallsteinsson var í gær
langbezti maöur liösins og skoraði
hann 9 mörk, en Ragnar Jónsson
er í stöðugri sókn og átti góð til-
þrif í gær. Þá var Kristófer ágæt-
ur í markinu. Af Ármenningunum
ber mest á Ástþóri, ungum og há-
vöxnum leikmanni, sem á margt
ólært f handknattleik, en skoraði
þó 5 mörk fyrir liö sitt. Skemmti-
fegur leikmaður er Grímur Vafdi-
marsson.
Óli Olsen dæmdi leikinn og fórst
það í heild allvel.
úthald, líklega betra en Framarar,
en Fram ávaxtaði betur sitt pund.
Eflaust hefur það líka sitt að segja,
að Haukar hafa ekki verið með f
neinum leikjum að ráði fyrr en
nú, en Framarar staðið í stórræð-
um.
Af Frömurum var Guðjón Jóns-
son beztur með stórfallegar línu-
sendingar, Gunnlaugur átti og
góðan leik og varð ekki greint að
hann væri ólöglegur, þó svo megi
vitanlega vera. Gunnlaugur skoraði
9 mörk fyrir Fram, en allir leik-
menn utan markvarðanna, skoruðu
mörk í leiknum. Ingólfur átti og
ágætan leik og Siguröur Einarsson
sömuleiðis. Mörkin: Gunnlaugur
9, Ingólfur 5, Sigurður E. 4, Gylfi
3, Guðjón, Tómas, Sigurbergur,
Hinrik og Amar eitt hver.
Haukaliðið á áreiðanlega eftir að
sýna betra en þetta í vetur. Liðið
á eftir aö sverfa af ýmsa agnúa
f sókn og vöm, og það á eftir að
læra hvemig stór salur er nýttur
til fullnustu á breiddina, en það
geröi liðið heldur illa í þessum
leik. Matthías Ásgeirsson rar bezti
maður Hauka í þessum leik, en
leikmenn annars nokkuð jafnir.
Enginn vafi er á að Þórður og Ól-
afur styrkja liðið mjög, en þeir
voru báðir með aftur í þessum leik.
Matthfas skoraði 5 mörk fyrir
Hauka, Ásgeir 3.
Dómari var Valur Benediktsson.
— jbp —
Þórólfur Beck —
tíl Frakklands.
Þórólfur gerir
samning við
franskt atvinnulið
Þórólfur Beck hefur nú gert
hálfs árs samning við Roen F.C,
franskt 1. deildarlið. Fer Þórólf-
ur því frá Glasgow Rangers, en
þar hefur Þórólfi vegnaö heldur
illa undanfama mánuði. Fór Þór
ólfur skömmu fyrir jólin til
Frakklands með tveim mönnum
frá félaginu og lauk viðskiptum
svo að samningar vom undir-
ritaðir.
Tvö skozk lið munu hafa haft
áhuga á Þórólfi svo og amerisk
lið eins eg áður hefur verið frá
greint.
Þórólfur mun hefja æfingar
með hinum nýju félögum sín-
um 2. janúar n.k.
Danskur dómari
dæmir FH—Honved
Alþjóðasambandið « hand-
knattleik hefur nú ákveðið
hvaða dómarar skuli dæma
næstu umferð Evrópubikar-
keppninnar í handknattleik.
Dómarinn, sem á að dæma Ieik
FH og ungverska liösins Hon-
ved hér í Reykjavík er danskur.
Hann heitir Áage ^rmann
og er frá Arhus, en hann hefur
ekki dæmt hér leik áður. —
Ármann er talinn einn bezti
dómari, sem lengi hefur komið
fram í Danmörku. Fagna dönsk
blöð því að hann skuli nú fá
stórt verkefni á erlendri grund,
og benda jafnframt á að hann
fái sennilega erfiðasta verk
allra dómaranna 1 þessari um-
ferð.
Til leigu
nýleg 3 herb. íbúð við Digranesveg frá næstu
áramótum, sé'r inngangur, sér hiti (nálægt
Hafnarfjarðarvegi). Uppl. veittar í síma 37841
eftir kl. 6. Fyrirframgreiðsla.