Vísir - 19.04.1966, Side 3
VlSIR . Þriðjudagur 19. aprl 1966.
•>
Geir Hallgrímsson skýrði í gær heildarskipulag Reykjavikurborgar fyrir borgarstjóra Grimsby, sem klæddist embættisbúningi sínum. Að
bakl borgarstjóra Grimsby stendur einn æðsti embættismaður Grim sby-borgar og ber hann veldissprota. Auður Auðuns situr fyrir miðri
myndinni, en lengst til hægri er Páll Líndal borgarlögmaður.
-
GRIMSB YGES TIR /
>. ' ♦*♦<>;$
:
mwmm
iWm
Borgarstjóri Grimsby, Dennis
Petchell og kona hans, frú
Kristín, sem er af íslenzkum
ættum, borgarritari, varaborgar
stjóri, fjórir borgarfulltrúar og
þrír togaraútgerðarmenn frá
Grimsby eru í heimsókn í
Reykjavík í boði borgarstjórn-
arinnar. Komu þau á sunnu-
dagskvöld og munu dvcljast hér
til föstudagsmorguns.
1 gær óku gestimir um borg
ina og skoðuðu ýmsar borgar-
stofnanir svo og sýninguna á
myndum úr minjasafni borgar-
innar. Síödegis hélt Geir Hall-
grímsson borgarstjóri gestunum
síðdegisboð aö heimili sínu og
um kvöldið héldu borgaryfir-
völdin kvöldverðarboð að Hótel
Borg.
í morgun fóru gestirnir og
skoðuðu fiskvinnslustöðvar,
Hafnarbúðir, hús Slysavamafé-
lagsins og Bæjarútgerö Reykja
vfkur hélt þeim hádegisverðar-
boð í Nausti. Síðdegis var á-
formað aö heimsækja verk-
smiöjuna að Kletti og Fiskifé-
lag tslands.
Gestimir munu á morgun fara
í útsýnisflug með flugvél Land-
helgisgæzlunnar og snæða síð-
an hádegisverð í boði Reykja-
víkurhafnar. Síðdegis er svo mót
Það snjóaði, þegar borgarstjórahjónin í Grimsby, Dennis og Kristfn
Petchell, komu til Reykjavíkur á sunnudagskvöld.
VINA RBOÐI
taka hjá brezka sendiherranum
og annað kvöld sitja gestirnir
kvöldverðarboð Félags fsl. botn
vörpuskipaeigenda og Sölumið-
stöðvar hraöfrystihúsanna í Sig-
túni.
Á fimmtudag verður farið í
ökuferð austur fyrir fjall, kom-
ið að Þingvöllum, Hveragerði og
víðar og um kvöldið heldur
sjávarútvegsmálaráöuneytið boð
í ráðherrabústaðnum.
Gestimir halda heimleiöis á
föstudagsmorgun.
S" \ V ■ y\ < *
-wfA
Gunnlaugur Pétursson borgarritari ræöir við nokkra gestanna frá
Grimsby um myndir á sýningunnl á myndum úr mlnjasafni Reykja-
víkurborgar.
Lausar stöður
Staöa deildarstjóra og yfirtollvarðar við toll-
gæzluna í Reykjavík eru lausar til umsóknar.
Einnig nokkrar tollvarðastöður vegna fyrir-
hugaðrar aukningu tollgæzluliðsins.
Umsóknarfrestur til 10. maí n.k.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Ungir menn með góða undirbúningsmenntun
ganga fyrir um tollvarðastöðurnar.
Umsóknareyðublöð fást hjá skrifstofustjóra
tollstjóra, Arnarhvoli, og tollgæzlustjóra,
Hafnarhúsinu, og skulu umsóknir sendar til
annarshvors þeirra.
TOLLSTJÓRINN í REYKJAVÍK