Vísir - 30.01.1967, Qupperneq 1
i
Annasöm helgi hjá lógreglunni:
ABSUGUR GERDUR AÐ LOGREGLUMONN-
UM Á SUNNUDAGSNÓTTINA
RÓSTUSAMT var í borginni aöfaranótt sunnudags. Bar ótrúlega
mikiö á óeirðum, spjöllum, innbrotum, slysum, slagsmálum og öðr-
um skrílshættJ.
Lögregluvaktin, sem þá var að skyldustörfum, minnist ekki jafn-
tíðra atvika af þessu tæi í mörg ár.
Voru það einkum óróasamir ungiingar, sem þarna voru að verki.
Setja sumir lögreglumenn það í samband við miðsvetrarprófin,
sem var að ljúka í skólunum, en aðrir gefa þá skýringu, að flestir
samkomustaðir utan Rekjavíkur voru lokaðir, en þó finnst mörgum
kunnugum hið síðarnefnda fráleit ástæða, vegna þess að ólætin
hófust eiglnlega ekki fyrir alvöru fyrr en sfðla nætur.
Ölvun var gífurleg, svo mikil, f ust á augabragði og ennfremur
aö fangaklefar í Síðumúla fyllt- „kja!1arinn“ í Pósthússtræti.
Átti lögreglan fullt í fangi með
að hafa hemil á ölvuðum ungl-
ingum, þvi að geymslupláss
skorti tilfinnanlega.
16 ára slasaðist í
ákeyrslu á ljósastaur
Ungur piltur slasaðist mjög
illa aðfaranótt sunnudagsins,
pegar hann ók oifreið föður
síns á ljósastaur rétt hjá Silfur-
túni á Hafnarfiarðarveginum —
PiltuHnn var ðkurétttnchlaus og
er talið að hann hafi verið und-
ir áhrifum áfengis. Farþegi, er
með piltinum var í bifreiðinni,
skarst í andliti en slasaðist ekki
hættulega. Bifreiðin eyðilagðist
að mestu og ljósastaurinn
hrökk i þrjá hluta. Lengi eftir
atburðinn blikkuðu Ijós við
Hafnarfjarðarveginn og í Silf-
urtúni. Pilturinn er nú talinn
úr allri hættu, en hann er víða
illa brotinn.
Annar piltur, réttindalaus,
olli árekstri á gatnamótum
Öldugötu og Lækjargötu í Hafn
arfirði, þegar hann virti að vett-
ugi stöðvunarskyldu fyrir bílum
sem koma Öldugötuna og lenfi
á leigubíl. Vildi leigubílstjórinn
kalla á lögregluna á vettvang,
en piltur fór fram á að hann
semdi við sig. Þegar leigubíl-
stjórinn vildi það ekki, stakk
pilturinn af. Lögreglan í Reykja-
vík hafði svo hendur í hári
piltsins að beiðni lögreglunnar
í Hafnarfiröi og játaði hann á
sig alla sök.
Kona ók á umferðarskilti í
miðbænum í Hafnarfirði rétt
upp úr miðnætti aðfaranótt
sunnudagsins, og skemmdi bif-
reið sfna svo að hún varð óöku-
Framh. á bls 10
Slítur Sovétstjórnin stjórnmála-
57. árg. - Mánudagur 30. janúar 1967. - 25. tbl.
tengsl við Pekingstjórnina?
Sóvétstjómin hefur sent harðorð
mótmæli til Pekingstjórnarinnar út
af óvirðingum í garð Sovétríkjanna,
sovétþjóðarinnar og leiðtoga henn-
ar, í fjögurra daga látlausum mót-
mælaaðgerðum fyrir utan sovézka
sendiráðið í Peking, en bær hafa
nú breiðzt til annarra kínverskra
borga.
Kveðst sovétstjómin grípa til
nauðsynlegra aðgerða, ef þetta
verði ekki stöðvað þegar í stað. —
í einni frétt NTB-fréttastofunnar
segir, að aldrei hafi verið eins hætt
við slitum stjómmálatengsla milli
Sovétríkjanna og Kína sem nú.
Mótmælaaðgerðir hafa einnig átt
' • 1
SeyiisfjarSarbæ heimilaS lögtak
fyrir eftirstódvum af aukavatnsskatti
í morgun var kveðinn upp fyrsti
dómurinn í vatnsmálinu svokali-
aða á Seyðisfirði, en málflutning-
ur hófst á laugardaginn fyrir hér-
aðsdómi, bæjarfógetanum á Seyð-
isfirði. — Málaferlin standa um
það, hvort heimila beri Seyðis-
fjaröarbæ að láta fara fram lög-
tak hiá fyrirtækium þeim, sem
skulda hinn umdeilda vatnsskatt,
sem lagður var á í sumar.
Fyrsti dómurinn féll á þá lund,
að Seyðisfjarðarbæ var heimilað
að framkvæma lögtak hjá Síldar-
verksmiðju ríkisins fyrir upphæð
að krónur 499 þúsund krónur, eft-
irstöðvum af aukavatnsskattinum,
en áður höfðu verksmiðjurnar borg
að nokkurn hluta skattsins. —
Næstu daga verða kveönir upp
dómar um það, hvort bærinn hafi
heimild til að taka lögtak hjá Haf-
síld, hinni síldarverksmiðjunni á
Seyðisfirði og 3 söltunarstöðvum,
sem eiga ógoldinn aukavatnsskatt-
inn, en tvær hafa borgað hann og
þrem ekki enn verið gert að greiða
hann.
Upphaflega gerði Seyðisfjarðar-
bær kröfur um samtals 12^4 millj.
króna aukagjald, á hendur þessum
fyrirtækjum, vegna nýrrar vatns-
veitu og olli sú krafa miklum deil-
um í sumar en þær enduðu með
samkomulagi í ágúst, þar sem fé-
lagsmálaráöuneytinif var falin
fullnaðarákvörðun reglugerðarinn-
ar um vatnsskattinn.
Ráðuneytið lækkað; skattinn um
20% og jafnframt skyldi ríkis-
styrkur til vatnsveitunnar hækka,
sem þvi svaraði. Þetta taldi bæj-
arstjórinn jafngilda eins konar
gerðardómi í málinu og byrjaði
á framkvæmd lögtaka nú eftir ára-
mótin.
Málið mun fara fyrir hæstarétt.
sér stað fyrir utan sendiráð Júgó-
slavíu og Mongólíu.
Samtímis berast fréttir um harðn
andi átök í innanlandsátökunum í
Kína. Sums staðar hafa stuðnings-
menn Maos náð aftur yfirráðum í
héruðum og borgum, annars staða:
ekki, og enn annars staðar er yfir-
ráðum stjórnarinnar ógnað, og í
Sinkiang er að mintiSta kosti hluti
hersins í beinni andstöðu við Mao
Það talar sinu máli um ótryggar
horfur, að stjómarvöldin hafa lagt
bann við, að nokkrir hermenn eða
lögreglumenn veröi fjarverandi frá
stöðvum sínum, er nýja árinu verð-
ur fagnað í næsta mánuði.
Margt um manninn
við innstahaus
Enn hrynur úr fjallinu
Margt var uni manninn við Steins
holtsjökul nú um helgina til að
skoða verksummerki eftir i]alls-
hrunið fyrir skömmu, sem olli
hlaupi í Markarflióti. — Var enn
að hrynja úr stálinu i Innstahaus
og úr bingnum, sem myndaðist
þegar fjallið hrundi.
Flestir, sem fóru ?.ð Innstahaus,
voru með Ferðafélagi Islands, eða
74 manns, en þar að auki fóru 24
jeppar inneftir. Leiðindaveður var
við norðanverðan Eyjafjallajökul,
Framh. á bls 10
Aðsókn csð „Rsiuðnj
skikkjunni" mjög
góð í Dnnmörku
• Aðsókn að „Rauðu skikki-
unni“ er góð í Danmörku, að því
er fregnir herma. Myndin var eins
og kunnugt er tekin á Islandi. —
Gagnrýr.endum bótti hún mis-
heppnuð að öllu leyti nema is-
lenzka landslaginu.
• Janúarmánuður þykir ekki
góður biómánuður i Kaupmanna-
höfn, cn bar hefur eitt stærsta
kvikmyndahúsið verið troðfullt á
sýningum Rauðu skikkiunnar. —
Einnig utan Kaupmannahafnar er
aðsóknin mjög góð, en bar fékk
myndin vfirleitt betri dóma en í
Minni myndin sýnir hvernig billinn var útleikinn ( ljósm. Magnús Axelsson), en sú stærri sýnir staurinn, aftursætið, sem kastaðist út
og skemmdir á bilnum (ljósm. Emil Jónsson).
i