Vísir - 30.01.1967, Side 7
V I S I R . Mánudagur 30. janúar 1967.
%
nitlön'd , í raorgun
útlönd
útlönd í raorgun
útlörid
raorgun
Þrfr bandarískir geimíarar láta lífið í eldsvoða
Minningarguðsþjónustur í gær um gervöll Bunduríkin.
Áformuð sem óður uð sendu munnuð geimfur til
tunglsins fyrir 1970
,*»#!*'*““*
■ . '& j ■ ■■
v ' JHI. *"
Frá vinstri: Virgil Grissom, Edward White og Roger Chaffee. Hinn síðast nefndi var meðal geimfaranna,
sem komu tii ísiands 1965.
-»rir bandarísklr geimfarar Iétu
Iífið í eldsvoða á Kennedy-flug-
velli á föstudagskvöld, þeir Vir-
gil Grissom, Edward White og
Roger Schaffee.
I gær voru haldnar víða í
Bandaríkjunum minningarguðs-
þjönustur um bandarísku geim-
farana þrjá, sem létu lífiö á
föstudagskvöld, er eldur kom
upp í geimfarinu á tilraunastöð-
.inni á Kennedyhöfða, er þeir
höfðu komið sér fyrir í þvl í
æfingarskyni. Varð þetta með
svo snöggum hætti, að engri
björgun varð við komið, og aö
eins heyrðist er einn þeirra
sagði nokkrum sekúndum áður
en það stóð í björtu báli: Það
er kviknað í geimfarinu.
Þegar kviknaði í því voru
geimfaramir að æfingu undir
Appollo-geimferðina, sem ákveð
in hafði verið að hæfist 21.
febrúar.
Útför tveggja fer fram á
þriðjudag í Arlington-kirkju-
garði, þar sem þjóðhetjur Banda
ríkjanna hvíia óg hermenn, sem
féllu á orrustuvelli, en sá þriðji
í kirkjugarði liðsforingjaskólans
í West Point.
Samúðarskeyti bárust frá þjóða
leiðtogum víða um heim eöa
þeir minntust þeirra opinber-
lega og þeirra meðal Páll páfi
VI., U Thant framkvæmdastjóri
SameimiðH þjóðanna og margir
fieiri.
Opmber rannsúkn var þegar
fyrirskipuð á orsökom brunans.
Geimfarið er sagt allt kolbrunn-
ið innan og vafasamt, að þar
finnist neitt, er leiöi orsakirnar
í ljós.
1 fréttum brezka útvarpsins í
gærmorgun var sagt, að I engu
sem Johnson forseti sagði, er
hann minntist geimfaranna, né
öðru sem fram hafi komið af
opinberri hálfu, hafi komið neitt
fram um, að hætt verði viö
áformið að senda mannað geim-
far til tunglsins fyrir 1970, þrátt
fyrir að nokkur dráttur kunni
að verða á ýmsum undirbúningi
vegna brunans.
Johnson forseti kvað svo að
orði um geimfarana, að þessir
vösku menn hefðu látið líf sitt
í þágu þjóðarinnar. „Vér syrgj-
um vegna þessa mikla missis og
hugur vor er hjá fjölskyldum
þeirra", sagði forsetinn.
Dauða geimfaranna bar að
höndum þegar forsetinn og 60
erlendir ambassadorar voru aö
undirrita sáttmálann, sem legg-
ur bann við notkun kjarnorku-
vopna í himingeimnum og að
slík vopn veröi staðsett á tungl-
inu eða öðrum hnöttum. Sumir
voru ekki búnir aö undirrita sátt
málann, er sorgajrfregnin barst.
I einnig frétt NTB-fréttastof-
unnar segir, að geimfaramir
hafi trúlega kafnaö, en eldurinn
mun hafa komið upp undir þeim
hluta geimfarsins, sem súrefnis-
foröinn var geymdur í, og reyk-
ur borizt til þeirra gegnum súr-
efnisrörið svo snögglega, að þeir
hafi ekkert ráðrúm fengið til
þess að grípa til björgunarút-
búnaðar. • •>-
___________________!________________<s>r
Ohaffee 31 árs hafði ekki
tekiö þátt í geimferð fyrr.
Grissom 39 ára, fór fyrstur
bandarískra geimfara í tvær
geimferöir og White 35 ára fór
fyrstur bandarískra geimfara í
gönguferð í himingéimnúm.
d * i*3?- ** *'?::
HIN VINSÆLU AMERISKU BLÖNDUNARTÆKI I
ELDHÚS OG BAÐHERBERGI.
HAFNARSTRÆTI
Ný stjórnarskrá
í Rhodesiu
Ian Smith forsætisráðherra
Rhodesiu hefir tilkynnt á þingi,
að ríkisstjórnin hefði ákveðið að
skipa nefnd til þess að semja nýja
stjómarskrá fyrir landið.
Forsætisráðherra kvaö stjórnina
mundu afnema eftirlit með blöð-
um, og hann lýsti yfir, að stofnað-
ur yrði sérstakur dómstóll til með-
feröar á málum þeirra sem kyrr-
settir hafa verið samkvæmt undan-
þágulögunum. Hann neitaði að
Rhodesia hefði brotið iög meö því
að lýsa yfir sjálfstæði, — það
hefði verið eðlileg afleiðing stjóm-
arskrárinnar frá 1961, sem brezka
stjómin tók góða og gilda.
Notkun kjarnorkuvopna
í himingeimnum bönnuð
I Moskvufrétt segir, að Banda-'v-
ríkin, Bretland og Sovétríkin hafi j
undirritað sáttmála, sem skuld-,
bindur ríkisstjórnir þeirra til þess
að koma ekki fyrir kjamorkuvopn-
um úti í himingeimnum eða nota
þau þar, — hvorki á tunglinu
eða nokkm öðm himintungli eða
Wilson til
Brussel á
morgun
hnetti.
Undirritunin fór fram í skrif-
stofum utanríkisráðuneytisins að
viðstöddum Kosygin forsætisráð-
herra. Undirritendur voru Andrei
Gromyko utanríkisráðherra, Sir
Geoffrey Harrison ambassador
Bretlands og Llewellyn Thompson,
ambassador ’feandaríkjanna.
Það var vegna tímamismunar, að
fyrsta undirritun fór fram f
Moskvu. Undirritanir fóru svo einn
ig fram í London og Washington.
Allar þjóðir gete gerzt a&ilar að
sáttmálanum.
Harold Wilson forsætisráöherra
Bretlands kemur til BrUssel á
morgun (þriðjudag) til þess að ræða
aðild Bretlands að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu.
Talsmaður belgísku stjórnarinnar
segir, að hún vilji alls ekki breyta
á nokkum hátt gruhninum sem
starfsemi EBE hvílir á, og muni
beina til hans mjög ákveðnum
spumingum varðandi tilgang hans.
— Wilson er búinn að vera £
Rómaborg og Parfs til þess að ræða
aðildina eins og kunnugt er. —
■Stjómmálamenn í Bríissel telja ár-
angur viðræfea Wilson við de
Gaulle öllu jákvæðari en búizt
harfði verið við.
i.