Vísir - 30.01.1967, Síða 8
8
-u—---- ,
■BUL.
VISIR
Utjfefandi: BlaOaðtgðtan VISIR
framkvæmdastjóri ■ Dagut Jóoassoo
Ritstjóri: Jónas Kristjánssoo '
ABstoóarritstjórt: Axel rhorsteinsor
Frfttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson.
Auglýsingan Þingholtsptræti 1. sfmar 16610 og 15099
Afgreiðsku Túngötu 7
Rltstjórn: Laugavegi 176. Sim> 11680 (5 Unur)
Askriftargjald kr. 100.00 á mánuffi initanlands
i lausasðlu w. 7,00 eintakiO
PrentsmiOia Vlsis — Edda h.f
Hvoð álítur jb/oð/n?
J flestum menningarlöndum heims vita menn, hvaða
álit fólk hefur almennt á þeim málefnuhi, sem ofar-
lega eru á baugi, og hvaða afstöðu það muni taka til
vandamála og nýjunga. Menn vita, hvort fylgi stjó’m-
málaflokka er að vaxa eða minnka. Og menn vita,
hvaða málefni em fólki efst í huga, þegar það velur
sér stjórnmálaflokk í kosningum. Hér á landi er slík
vitneskja aftur á móti ekki tií nema í mjög óljósri
mynd. Stafar það af því, að hér eru skoðanir manna
ekki kannaðar með vísindalegum hætti, eins og gert
er annars staðar, t.d. í Gallup-könnunum.
Hér í blaðinu var fyrir nokkra rætt um möguleika
skoðanakannana á íslandi. Svo virðist sem slíkar
kannanir séu ekki dýrari en svo, að hugsanlegt sé að
beita þeim hér í fámenninu' Mörg b’rennandi mál eru
afar umdeild hér á landi og um leið erfitt að henda
reiður á, hvaða skoðanir eru útbreiddastar. Oft er fá-
mennur hópur afar hávær og því talinn márgfalt fjöl-
mennari en hann er í raun og vera. Kosningar til Al-
þingis og sveitarstjóma sýna ekki skoðanir manna
á einstökum málum, því þar blandast saman margvís
leg óskyld mál. Því er næsta þokukennd vitneskja
manna um fylgi einstakra mála hé’r á landi.
Óneitanlega væri forvitnilegt að vita almennt um
skoðanir þjóðarinnar á Keflavíkursjónvarpinu, á er-
lendu einkafjármagni í atvinnulífinu, á braggun og
sölu áfengs öls í landinu, á þjóðkirkjunni og starfs-
háttum hennar, á ýmsum eriendum málefnum, svo
sem styrjöldinni í Vietnam og valdabáráttunni í Kína,
á aðild íslands að alþjóðlegu efnahagssamstarfi. Og
þannig mætti lengi telja. Könnun á slíkum atriðum
mundi vafalaust leiða í ljós í mörgum tilvikum allt
aðra skoðanaskiptingu en almennt er talin.
Efalaust hefðu skoðanakannanir heilbrigð áhrif á
stjómmálin í landinu. Leiðtogar flokkanna kæmust í
mun nánari snertingu við þjóðina. Lýðræðiö ykist,
því stjómmálaforingja'r mundu taka afar mikið tillit
til slíkra kannana. Þær mundu auðvelda þeim að taka
afstöðu í samræmi við vilja meirihluta þjóðarinnar.
Atvinnulífið þarf líka á skoðanakönnunum að halda.
Það stoðar lítt að hefja framleiðslu eða innflutning á
nýrri vöm, ef ekki er hægt að vinna markað fyrir
hana. Með könnun er hægt að komast að raun um
markaðsmöguleikana, og í sumum tilvikum að spara
dýra fjárfestingu, sem annars hefði verið kastað á
glæ. Þannig em skoðanakannanimar á ýmsan hátt
þáttur í þeirri þróun, að sem mest skynsemi ríki í
þjóðlífinu og atvinnulífinu.
Þjóðin þarf að eignast menntaða menn á sviði skoð
anakannana til að ganga fram fyrir skjöldu-og efna til
pjonustu á því sviði. Til þess þarf vissulega framtak
og áræði, og byrjunin yrði ekki umfangsmikil, en mik-
il framtíð er vafalaust á þessu sviði, ef rétt er á haldið
og ef augu manna opnast fyrir nytsemi skoðanakann-
ana.
I
lí
u
Margrét FriOrlksdóttir, Hanna María Karlsdóttir og Ema Sigurbergsdóttir í hlutverkum Marja, Þór-
dísar og Önnu.
Leikfélag Keflavíkur
SYNDIR ANNARRA
55
EFTIR EINAR H. KVARAN
Ijríðjudaginn 24. þ. m. frum-
sýndi Leikfélag Keflavíkur
leikritið „Syndir annarra" eftir
Einar H. Kvaran fyrir troðfullu
húsi áhorfenda í Félagsbíói í
Keflavík. Þessi sýning sýndi þáð
áþreifanlega, að margt af því,
sem góðir höfundar skrifa stenzt
tímans tönn furðu vel. Einar H.
Kvaran var einn mikil'hæfasti
rithöfundur sinnar samtíðar, en
leikrit þetta skrifaði hann fyrir
u. þ. b. 50 árum. Engu að síður
hefur það efnislega fullt gildi
enn í dag og kenningar þær,
sem höfundur túlkar, eiga engu
síður erindi til nútímans en þær
áttu fyrir hálfri öld.
Leikritið fjallar að öðrum
þræði um hin eilifu átök efnis-
hyggjunnar og andlegra verð-
mæta og að hinum um mikil-
vægi umburðarlyndis og fyrir-
gefningar í samskiptiun manna.
Þetta er vandasamt dramatískt
verk, sem krefstmikils af leik-
endum.
Leikstjóri var Ævar R. Kvar-
an, sonarsonur skáldsins, og bar
öll meðferð 'leikenda á hlutverk-
um sínum þess ljósan vott, að
stjómað hafði verið með festu
og mikilli kunnáttu. Val leik-
stjórans f hlutverk og þjálfun
lítt reyndra leikenda, ber ótví-
rætt vitni um alúð þá, sem hann
hefur lagt við starf sitt, enda
kom áhorfendum mjög á óvart,
hve traustum tökum leikendur
tóku hlutverk sín. Hei'ldarsvip-
ur sýningarinnar var hreinn og
sterkur og áberandi hnökraiaus.
Framsögn leikenda var sjaid-
gæflega skýr og góð og setn-
ingameðferð þróttmikil og lif-
andi hjá þeim, sem beztir voru
og nákvpmni í „timing", þ. e.
hvemig setningar féllu hver á
aðra þar sem það átti við, var
furðugóð og vakti athygli áhorf-
enda. Er ljóst, að sterk áherzla
hefur verið lögð af leikstjórans
hendi á innlifun leikenda í hlut
verk sín eins og átakamestu at-
riði leiksins bám greinilega með
séf.
Meðferð hlutverka var óvenju
jöfn og góð í þessu vandasama
verkefni og man ég ekki eftir
betri frammistöðu keflvískra
leikenda á leiksviði en f þetta
sinn.
Tvenn hjón bera leikinn að
mestu uppi, Þorgeir ritstjóri,
sem túlkar aS mestu leyti lífs-
viðhorf höfundar, og kona hans
Guðrún annars vegar, en hins
vegar Grímur lögmaöur, sem er
mælskur fulltrúi efnishyggjunn-
ar, og kona hans, Anna.
Svo að segja alveg óreynd
leikkona, Þórdis Þormóðsdóttir,
lék hið vandasama hlutverk Guð
rúnar og gerði því góð skil, en
þó bezt þegar mest á reyndi. Er
hún vafalaust gott leikkonuefni.
Þorgeir, mann hennar, lék
Sverrir Jóhannsson af skilningi
á hlutverkinu og viðkvæmuni
inniléik. Var frammistaða hans
með ágætum.
Einna athygli sverðastur var
Ieikur Péturs Jóhannssonar f
hlutverki Gríms lögmanns. —
Hann lék af miklum skaphita
og naut karlmannleg rödd hans
sín vel í hlutverkinu. Var eftir-
tektarvert að heyra þeiiftb „áma-
tör“ halda svo vel uppi'^hirmm
löngu ræðum lögmannsins, enda
átti hann athygli áhorfenda 6
skipta. Voru átök þeirra vin
anna Gríms og Þorgeirs hið ris
hæsta í leiksýningunni. Emi
Sigurbergsdóttir lék Önnu, koni
Gríms. Vegna veikinda annarr
ar konu, sem leika átti þett:
hlutverk, tók Ema við hlutverk
inu með örskömmum fyrirvara
En þrátt fyrir það skilaði húi
því með ágætum, enda hefui
hún mjög góða sviösrödd og
skýra framsögn. Jónína Krist
jánsdóttir lék ömmu Guðrúnar
frú Berg. Var þetta henna
frumskím á leiksviðí, end'
gætti f fyrstu nokkurs tauga
óstyrks, en hún náði brátt tök
um á hlutverkinu og lék þessí
góðu konu af mikilli hlýju oj
góðum skilningi, en hún flytu;
hluta af hinum kristilega boð
skaþ höfundarins, mikilvxg: :tr
burðarlyndisins og fyrirgefning
arinnar. Unga parið er leikið a.
Þorsteini Eggertssyni og Hönm
Framh. á bls. 13
II Pétur Jóhannsson i hlutvcrld Gríms iögmanns og Sverrir Jóhannsson í hlutverki Þorgeirs rltstjóra.