Vísir - 30.01.1967, Síða 16
VISIR
I Mánadagar 30. janúar 1967.
Ný saga — TOPKAPI
• Á morgun hefst ný kvik-
mynda-framhaldssaga í Vfsi —
„TOPKAPI“, byggð á skáld-
sögu eftir hinn kunna höfund
Eric Ambler. Veröur hún., eins
og slíkar framhaldssögur, sem
Vísir hefur birt áður, með mörg
um myndum úr kvikmyndinni,
sem sýnd verður í Tónabíó ein-
hvem tíma á næstunni.
• Skáldsaga Erics Amblers,
og þá kvikmyndin., gerist að
mestu leyti i Istanbui og er hin
æsilegasta frá upphafi til enda.
Þess má geta, að hinn frægi og
fiölhæfi leikíistarmaður Peter
Ustinov leikur eitt af helztu
hlutverkunum i myndihni, en
fyrir þan.n leik sinn hlaut hann
hln eftirsóttu Oscars-verðlaun —
hann leikur hinn aldna og sein-
heppna bílstióra, sem höfund-
urinn lætur segja sögima, og
er meðfylgiandi mynd af honum
í því hlutverki. Hin aðalhlut-
verkin tvö eru leikin af Melina
Mercouri og Maximilian Schell.
• Sem sagt — bráðvel skrif-
uð og spennandi saga, sem les-
endum mun þykja nokkurs um
vert að fylgiast með frá upp-
hafi.
Þorsteinn Jósepsson,
biaðamaður, látinn
Þorsteinn Jósepsson blaðamaður
andaðist í gærkvöldi í Landspítal-
anum eftlr langa og erfiða sjúk-
dómsbaráttu.
Þorsteinn var fæddur 18. júlí
1907 á Signýjarstöðum í Borgar-
firði, sonur Jóseps G. Elieserssonar
bónda þar og konu hans Ástríöar
.... .... . ..
Þorsteinn Jósepsson.
Þorsteinsdóttur, bónda á Húsafelli
Jakobssonar.
Þorsteinn vakti fyrst athygli á
sér sem ungmennafélagi heima í
héraði, varð ágætur íþróttamaöur,
fékk mikinn áhuga á Ijósmynda-
gerð, og varð síðar kunnur ljós-
myndari, hér og erlendis, og þjóð-
kunnur blaðamaður og rithöfundur.
Þorsteinn dvaldist erlendis um
nokkurt skeið, í Þýzkalandi og
Sviss.
Laust fyrir 1940 réðst Þorsteinn
að Vfsi, í ritstjórnartíö Kristjáns
Guijlaugssonar, og réð hann Þor-
stein að blaöinu sem Ijósmyndara
og blaðamann, en Þorsteini var
hugleikið þá og hafði raunar lengi
verið aö gerast blaöamaður. Og
við Vísi starfaöi Þorsteinn síöan
eða um meira en aldarfjórðungs
skeið, vann blaðinu vel og sam-
vizkusamlega og sinnti jafnframt
hugðarmálum af áhuga, kappi og
festu, sem öðru, en þeir kostir voru
honum í blóð bornir.
Hér hefur verið stiklaö á stóru
um æviatriði Þorsteins og verður
þessa hugþekka og góða samstarfs-
manns okkar minnzt ýtarlegar síð-
ar. — A. Th.
unni á Kefíavíkarvelli
Breytingar og endur-
bætur eru fyrirhugaðar
af hálfu Flugmálastjórn-
ar á Flugvallarhótelinu
á Keflavíkurvelli. Verð-
ur sennilega hafizt
handa á næstunni eða
eins fljótt og útvegað
hefur verið nægilegt
fjármagn til fram-
kvæmda.
„Við reiknum með því fast-
lega, að hægt verði að ljýka
breytingunum fyrir sumarið",
sagði Pétur Guðmundsson, flug-
vallarstjóri við Vísi í gær, „það
er verið að afla peninga til
framkvæmdanna“.
Flugvallarstjóri sagði, að þeg-
ar Flugmálastjóm tók við flug-
stöðvarbyggingunni 1964, hafi
henni verið breytt til þess að
geta hýst Loftleiðir og annað
borgaralegt flug, sem fer um
„völlinn“. Á síðastliðnu ári
Framh. á bls 10
Loftleiðamálið í norska
Stórþinginu
Hvers vegna var umsókn Loftleiða um að fá að
nota RR-400 i Skandinaviu hafnað? Samgöngu-
málaráðherra Noregs svaraði fyrirspurn
Loftleiðamálið var til umræðu^
í norska Stórþinginu í s.l. viku. |
Hafði komið fram fyrirspurn
frá cínum þingmannanna um á-
stæðurnar fyrir því að umsókn
Loftleiða um að fá að nota hin-
ar stóru flugvélar sínar, RR-400
á flugleiðum til Skandinaviu var
hafnað. Fyrirspurnin kom frá
elnum þingmanni Miðflokksins,
Erling Engan.
Samgöngumálaráðherrann Ha-
kon Kyllingmark sagði, að
skandinavisku löndin hefðu gert
sitt til að stuðla að uppbygg-
ingu Loftleiða með bví að le^fa
félaginu, sem er utan við hin
alþjóðlegu samtök fiugfélaga
IATA, að hafa mun lægri' far-
gjöld en ákveðin eru af IATA-
flugfélögum. Forsenda þessarar
undanþágu var tvímælalaust sú,
- sagði ráðherrann, að Loftleiðir
notuðu gamlar flugvélar með
stlmpilmótorum, sem eru ekki
sérlega heppilegar í samkeppni
flugfélaganna vegna þess hve
hægfara þær eru og ekki jafn-
Framh. á bls 10
Áfengisútsölur senn oph-
nðnr í Eyjum og Kefluvík
Eins og kunnugt er var kosið um
það á siðastliðnu vori í Keflavík
og Vestmannaeyium, hvort opna
skyldi áfengisútsölu á þessum stöð
um. Kosningarnar fóru þannig á
báðum stöðunum, að það var á-
kveöið.
Ráðnir hafa verið forstjórar fyr-
ir báðum útsölunum, Óskar Gísla-
son í Vestmannaeyjum, fyrrum út-
gerðarmaöur og Jón Bárðarson í
Keflavík, áður forstjóri áfengisút-
sölunnar á Jsafirði. Fréttamaður
Vísis hafði tal af Ragnari Jóns-
syni skrifstofu^stjöra ÁTVR og
innti hann frétta af væntanlegum
útsölum. Ragnar svaraði því til,
að innréttingar væru hafnar á báð
um stöðunum, en ekki væri hægt
að segja um það ennþá, hvenær
útsölurnar yrðu opnaðar, en það
yrði gert eins fljótt og hægt væri.
Philip Jenkins reynir hljóðfæri á Akureyri.
Skólabróðir Þórunnar Jóhanns-
dóttur leikur á Akureyri
Kennir við Tónlistarskóla Akureyrar i vetur
Það hljóp heldur betur á snær-
ið hjá tónlistarunnendum og tón-
listarnemendum á Akureyri í haust
er Tónlistarfélag Akureyrar fékk
brezka píanóleikarann Philip Jenk-
ins til að kcnna við Tónlistarskól-
ann í vetur. Kom han.n hingað í
nóvember og hóf starf sitt og mun
hann leika á fvrstu tónleikum Tón
listarfélagsins, scm haldnir verða
á Akureyri 7. febrúar.
Philip Jenkins er ungur að árum,
en er þó talinn í hópi beztu píanó-
leikara Bretlands. Hann stundaöi
nám í Konunglega tónlistarskólan-
um í London, hiá Harold Craxton,
og var þar skólabróðir Þórunnar
Jóhannsdóttur en síðan var hann
við framhaldsnám i París. Hlaut |
Jenkins margsinnis verðlaun fyrir
frammistöðu sína í Konuglega tón
listarskólanum i London og hefur
oftar en einu sinni borið sigur úr
býtum í tónlistarképpni. Jenkins
hefur haldið tónleika víða i Bret-
landi og öðrum Evrópulöndum og
leikið inn á hljómplötur og marg-
sinnis komið fram í brezka útvarp-
inu.
Árið /1964 stofnaði Jenkins, á-
samt tveimur öðrum ungum tó«-
listarmönnum, Lundúnatrióið, sem
getið hefur sér frægðar víða.
Hinn kunni tónlistarmaður 6-
hann Tryggvason, sem búsettur er
í London, var milligöngumaður um
ráðningu Jenkins til Akureyrar.
I