Vísir - 24.02.1967, Síða 2
1
V í S I R . Föstudagur 24. febrúar 1967.
Talið frá vinstri: Matt
hías GuðrrAindsson og
Ragnar Haraldsson, er
kepptu fyrir Tryggingu
h.f., Robert Turton og
Einar Jónsson, er sigr-
uðu í firmakeppninni
fyrir Ölgerðina Egil
Skallagrímsson h.f.,
Ragnar Thorsteinsson
og Gísli Guðlaugsson,
sem kepptu fyrir Skó-
söluna og Guðm, Ingi-
mundarson fulltrúi Tré-
smiðju Birgis Ágústsson
ar, sem var eitt þeirra
fjögurra fyrirtækja er
verðlaun hlutu.
HÖFÐU ALDREI
vífnkösf
Það er heldur óvenjulegt af
iið, sem faer dæmd á sig 10 víta-
köst fái ekki mörg rnörk á sig
úr þeim. KR fékk á dögunum
ekkert mark úr 10 vttaköstum
í röð, i leikjum gegn Ármanni
og Akureyri,
Markvörður KR i 2. deild ei
Sæmundut Pálsson og varði
hann mörg þessara víta, önnur
fóru í stengur eða fram hjá, er
í 10. tilfellinu truflaði Sæmundur
vítaskyttuna svo að skotið gjör
samiega mistókst. Sem sagt
10 skotum tókst skyttunuro
aldrei að sigra Sæmund.
Sæmundur kom tyrst fram á
sjónarsviðið í haust með KR
handknattleik og enda þótt hann
hefji feril sinn nokkuð seint
(nær þrítugur), hefur hann náð
ágætum árangri í markinu og
sýnt vaxandi leikni. Hann hef-
ur áður stundað frjálsar íþróttir
og knattspyrnu.
Tveir iR-ingar
skipfu aneð sér
meistarastigunum
Firmakeppni Tennis- og bad-
mintonfélags Reykjavíkur lauk
s.l. laugardag í íþróttahúsi Vals.
Þau 16 fyrirtæki, sem ósigruð
voru, kepptu þá til úrslita, en
alls tóku þátt í keppninni um
190 fyrirtæki.
Að venju var eingöngu keppt
í tviliðaleik karla í úrslitamót-
inu, og var keppendum raðað
með það fyrir augum, að liðin
yrðu sem jöfnust að styrkleika.
Viröist það hafa tekizt vel, þar
sem flestir leikir voru mjög
jafnir og þurfti oft að leika
aukalotur til að útkljá þá.
Úrslitakeppnin fór fram með
útsláttarsniði, og eftir tvær um-
ferðir stóðu því uppi 4 fyrirtæki
ósigruð.
Þau voru: Trygging h.f., Tré-
smiðja Birgis Ágústssonar, Skó-
salan Laugavegi 1 og Ölgeröin
Egill Skallagrímsson h.f. Höföu
þá þrjú hin fyrst töldu orðið að
íeika aukalotur í flestum sínum
leikjum, svo hörð var keppnln.
í næstu umferð sigraði Trygg-
ing h.f. Trésmiðju Birgis Ágústs-
sonar, en ölgerðin sigraði Skó-
söluna. Var þá komið aö úrslita-
leiknum og erfitt að spá fyrir
um það, hvor sigra mundi í þeim
átökum. Fyrir Trýggingu h.f.
léku þeir Matthias Guðmunds-
son og Ragnar Haraldsson, báð-
ir slagharðir og sókndjarfir
meistaraflokksmenn, en óvanir
sem samherjar, en það gilti
raunar um alla þá, er saman léku
í þessu móti. Fyrir Ölgerðina
léku þeir Einar Jónsson, hinn
trausti og gamalreyndi bad-
mintonmeistari, og ungur Glas-
gow-búi, sem hér starfar, Robert
Turton að nafni, og er félagi
í T.B.R.
Fljótt kom í ljós, að þeir
Einar og Robert féllu betur sam-
an, þótt aldrei hefðu þeir áður
sézt, enda hefur það löngum
verið einn af mörgum hæfileik-
um Einars í íþróttinni, að eiga
létt með að samstilla leik sinn
og samherjans. Þeir Einar kom-
ust í 6:1 í upphafi en þeim
Matthíasi og Ragnari tókst með
miklum sóknarþunga að snúa
taflinu naumlega sér í hag, 7:6.
Einar fann þó brátt nýjar sókn-
arleiðir, og skoruðu þeir félagar
6 síðustu stigin í lotunni. Vann
Ölgerðin þar með fyrri lotuna
15:9.
Síðari Iotan var mun jafnari.
Trygging h.f. skoraði 4 fyrstu
stigin. Þá komst Ölgerðin í 6:4,
7:5 og 10:8 og munaði loks ekki
nema hársbreidd, að leika þyrfti
aukalotu, en leiknum lauk með
sigri Ölgerðarinnar 15:14.
Mótið fór allt hiö bezta fram
undir stjórn Lárusar Guðmunds
sonar formanns keppnisráðs.
Að keppni loklnni efndi T.B.R.
til kvöldskemmtunar í félags-
heimili Kópavogs, þar sem verð-
laun voru afhent bæði fyrir-
tækjum og keppendum. En þau
4 fyrlrtæki sem lengst náðu í
keppninni fengu fagra farand-
gripi að verðlaunum.
Þá afhenti formaður T.B.R.,
Kristján Benediktsson, 3 félags-
mönnum gullmerkí T.B.R. fyrir
farsæl störf í þágu félagsins og
góðan árangur í keppnum. Að
þessu sinni hlutu gullmerkiö
þeir Emil Ágústsson, Guðmund-
ur Jónsson og Kolbeinn Krlst-
insson. Hafa þá ails 34 félagar
T.B.R. verið heiðr-aðir á þennan
hátt.
Bréf frá London:
Fulltrúi Rslands í Alþjóða olympíunefnd
Eftirfarandi hefur borizt frá,
Birni Bjömssyni í London:
„Herra ritstjóri!
I grein í blaði yðar frá 15. des.
1966, er minnzt á „FULLTRÚA
OLYMPÍUNEFNDA NORÐUR-
LANDANNA FIMM“,“ sem hefðu
verið á fundi í OSLO nýlega og að
GÍSLI HALLDÓRSSON forseti ÍSÍ,!
hafi verið fulltrúi íslands þar, enj
Benedikt heitinn Waage gegndij
fulltrúastarfi fyrir ísl. Olympíu-Í
nefndina um árabil, eins og kunn-!
ugt er, en fulltrúi i hans stað hef- •
ur enn ekki verið tilnefndur ..
Má ég vinsamlega benda á, að'
formaður ÓLYMPÍUNEFNDAR ÍS- j
LANDS er BIRGIR KJARANl
(NATIONAL OLYMPIC COMM-
ITTEE). Fulltrúi íslands í AL-
ÞJÓÐANEFND OLYMlULEIK-
ANNA var Benedikt heitinn Waage
(INTERNATIONAL OLYMPIC
COMMITTE). Sá fvrri er kosinn af
viðkomandi aðiljum í hverju landi,
vanalega fyrir hverja OLYMPÍU-
LEIKA, en hinn síðarnefndi er
kosinn af ALÞJÓÐNEFNDINNI
sjálfri, og er ævistarf. Fráfarandi
meðlimur hefur leyfi til að til-
nefna „arftaka“ sinn, en ekki veit
ég hvort BENNO vinur minn gekk
þannig frá málinu.
Virðingarfyllst
Bjöm Björnsson“.
Það fór eins og vænta mátti að
ÍR-ingarnir Júlíus Hafstein og Er-
lendur Valdimarsson unnu stökk-
greinarnar á unglingameistaramóti
Islands innanhúss, sem fram fór í
íþróttahúsi Háskólans um síðustu
helgi. Nokkra athygli vekur hin
slælega mæting skráðra keppenda
til mótsins. Áf skráðum keppend-
um i stökkgreinamar fjórar mættu
aðeins 19 af 32 skráðum.
Júlíus Hafstein, ÍR. vann lang-
stökk án atrennu, stökk 3.01
metra, en annar varð Bergþór
Hajldórsson, HSK, 2.97 Erlendur
Valdimarsson, IR, stökk 2.96. Þri-
stökk án atrennu vann Júlíus sömu
leiðis, stökk 9.11, Páll Dagbjarts-
son, iR, varg annar með 8.92 og
Bergþór Halldórsson, HSK, þriðji
með 8.89 metra.
Erlendur Vaidimarsson, ÍR, vann
hástökk án atrennu, stökk 1.55
metra, en jafnir urðu þeir Páll
Björnsson, USAH, og Bergþór
Halldórsson, HSK, stukku 150
metra Var hlutkesti varpað um
önnur verölaunin og kom upp
hiutur Páls. Erlendur vann hástökk
með atrennu og stökk 1.80 metra.
Bergþór Halldórsson, HSK, 1.70 og
Rúnar Steinsen UBK, þriðji með
1.70 metra.
Fresta varð kúluvarpinu, þar eð
kúluvarpshringurinn reyndist vera
i viðgerð. þegar til átti að taka.
Áætlunarflug með
Boeing 727 hefst 1, júlí
Tryggið farítíma
Áætlunarflug Boeing 727 þotu Flugfélags
íslands hefst 1. júlí. Flugfélagið vill vekja
athygli væntanlegra viðskiptavina á, að
þeir geta tryggt sér far nú begar með
Boeing 727 hjá Flugfélagi Islands ög
öllum IATA ferðaskrifstofum.
Boeing 727 mun halda uppi áætlunarflugi
á flugleiðum félagsins milli landa.
Aukinn hraði og þægindi.
Flugtimi;___________________________
ReykjaVík —Kaupmannahöfn 2 klst. 40 mín.
Reykjavík —London 2 klst. 30 mín.
Reykjavík-Oslo 2 klst. 10mín.
Reykjavík-Glasgow 1 klst. 50 mín.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
ICEL/K/VDJVIH
FLUCFELAC.
wg727i
nBTuzxtw m