Vísir - 25.05.1967, Blaðsíða 3
WlíSíJfR . Fknmtsdagur 25. maí 1967.
Kappreiðar
SÖRLA
Kappreiðar hestamannafélags-
ins Sörla í Hafnarfirði voru
haldnar sl. sunnudag í blíðskap-
arveðri á skeiövelli félagsins viö
Kaldárselsveg.
1 Myndsjánni í dag birtast
nokkrar svipmyndir frá þessum
kappreiöum.
Formaður hestamannafélags-
ins Sörla í Hafnarfiröi, Kristinn
Ó. Karlsson, tjáði blaöinu aö
skeiövöllurinn væri sérstaklega
góður á þessu vori. Meiningin
væri að sá í völlinn, en ekki
væri ennþá búið að ákveða
hvort það yrði gert á þessu
sumri. Völlurinn við Kaldársels-
veg hefur m. a. þann kost að
skjólgott er við hann.
Kristinn sagði að kappreiö-
arnar hefðu í alla staöi farið
mjög vel fram og hefðu þátttak-
endur og áhorfendur verið hátt
í þúsundið að fjölda til.
1 fyrravor var völlurinn slæm
ur og fór þá einungis fram
firmakeppni, en sjálfum kapp-
reiðunum var frestað til hausts-
ins. Kristinn sagði að aðrar kapp
reiðar yrðu haldnar á hausti
komanda ef ekki yrði sáð í völl-
inn i sumar.
Efsta myndin á síðunni er
tekin í þann mund sem firma-
keppnin er að hefjast, en þar
varð hlutskörpust Grákolla Guö
bjargar Flygenring, en hún
keppti fyrir Hagtryggingu h.f.
Á 'næstu mynd sjáum við
nokkra káta áhorfendur, en þeir
eru taliö frá vinstri, Sigvaldi
Jóhannsson, Heröi, Ólöf Gísla-
dóttir, eiginkona Péturs Hjálms-
sonar ráðunauts, Úlfhildur og
Sigvaldi Haraldsson, Brúarhóli
og synir þeirra hjóna, Haraldur
og Lárus. Fimm síðast töldu eru
öll úr Mosfellssveit.
Næsta mynd sýnir okkur
stólpagripinn- Áka, Guðbjarts
Pálssonar, en Áki er aö koma
mannlaus í markið, eftir að hafa
kastað af sér knapanum í upp-
hafi hlaupsins.
Að lokum er mynd af Sigurði
Ólafssyni, landsfrægum hesta-
manni og söngvara, ásamt fríð-
um hestahópi. Næst honum á
myndinni er Buska ^uðmund-
ar Gíslasonar, dýralæknis, en
síðan koma þrír af afkomend-
um hinnar frægu Glettu: Hroll-
ur, Glettingur og Völsungur.
Glettu var lógað skömmu eft
ir Landsmót hestamanna að
Hólum s.l. sumar, en þar sigr-
aði hún í afkvæmasýningunni
í annað sinn.
Deilt var um aldur Glettu, en
álitiö að hún væri um þrítugt,
er henni var fargað.
■ ^V •• • V.-----