Vísir - 27.06.1967, Side 2
2
V í SIR , Þriðjudagur 27. júní 1967.
KR lék glæsilega og vann 5:1
Valsvörnin réð ekki við
hrnðn frnmlínu KR
KR-liðið sýndi í gærkveldi einhvern þann bezta knatt-
spymuleik, sem íslenzkt lið hefur sýnt það sem af er
keppnistímabilinu. Sjaldan hefur sézt eins jákvætt spil
hiá nokkurri framlínu, sjaldan hefur uppskeran orðið
ríkulegri. KR-ingar verðskulduðu sannarlega 5:1 sigur
sinn yfir slöku Valsliði, sem þó í byrjun leiksins virtist
til alls líklegt, en var algerlega kveðið í kútinn af á-
kveðnu KR-liði.
Valur átti meira í leiknum fyrstu
15 mínútumar, en síðan
ekki söguna meir. Þegar eftir
5 mfnútna leik skora þeir sitt
mark, sem fæstir bjuggust við að
yrði þeirra eina í leiknum. Árni
Njálsson, h.-bakvörður Vals tók
aukaspyrnu mjög vel, eins og hon-
um einum virðist lagiö, og sendi
knöttinn vel fyrir markið. Þar
skallaði Ingvar óverjandi í vinstra
markhomið, og Valur hafði fengið
• í 7. deild er nú þessi
• KR—VALUR 5—1 (4—1).
J Vaiur 5 3 11 9—9 72
• KR 4 3 0 1 10—5 62
! Fram 3 2 1 0 6—4 5 •
2 Keflavfk 4 2 0 2 3—3 4 2
• Akureyri 4 1 0 3 6—7 2 2
2 Akranes 4 0 0 4 3—8 0 •
• •
1 NÆSTU LEIKIR:
2 Næstu leikir eru í kvöld. Á®
2 Laugardalsvelli leika Fram— 2
• ÍBK en á Akureyri leika Akur- •
2 eyri—Akranes. •
óskabyrjun og hrollur fór um
KR-áhangendur. Það var fyrst á
8. mín. að KR-ingar áttu tækifæri,
er Eyleifur komst inn fyrir, en
skaut himinhátt yfir. Mínútu síðar
kemst Reynir, h. kantmaður Vals-
liðsins inn fyrir, en er óheppinn
og skotið lendir í Magnúsi mark-
verði.
★ Á 16. mín. jafna KR-ingar
siðan. Hornspyrna er tekin frá
hægri og hinn leikni nýliöi KR,
Jóhann Reynisson, tók hana mjög
fallega. Gunnlaugur, sem álpaöist
út úr markinu, hikaði og Baldvin
náði að skalla í markið, 1—1.
■fc Tveimur mínútum sfðar ná
KR-ingar forystunni, er Jóhann
leikur mjög fallega á v. bakvörð
Valsliðsins og sendir knöttinn
fallega fyrir markiö. Gunnlaugur i
Valsmarkinu náði að slá knöttinn
örlítið frá markinu, en Eyleifur
kom aðvífandi og „negldi" ó-,
verjandi í netið, 1—2 fyrir KR.
★ Á 22. mfnútu sendir Jóhann
Reynisson enn góöa sendingu fram
á Eyleif, sem kemst einn inn fyrir
og skorar auöveldlega fram hjá
Gunnlaugi, sem kom út úr mark-
inu, 1—3 fyrir KR.
Á 32- mínútu skapaðist nokkur
hætta við mark KR, en Kristinn
bjargaði á línunni, er Magnús
markvörður KR, hafði hlaupið
ranglega út úr markinu.
★ Á 43. mínútu komst Gunnar
Gunnar Felixsson skorar hér 4. markið með skoti, sem Gunnlaugur
réði ekki við.
• 'i
Hér myndaðist nokkur hætta við mark KR, en Magnús Guðmundsson, nýliðinn f KR-markinu bjargaði á
síðustu stundu.
:Coca-Cola keppni
igolfmanna í kvöld
í kvöld hefst Coca-Cola-
keppni G.R., og veröa leiknar 12
holur, síðan 24 holur laugardag-
inn 1. júlí og 36 holur sunnu-
daginn 2. júlí.
Keppnln er 72ja holu högg-
leikur og eru verölaim veitt
bæði fyrlr bezta árangur meö
og án forgjafar.
Þetta er stærsta og venju-
lega fjölmennasta keppni G.R.,
en í hana mæta kylfingar af
öllu landinu.
Þess má geta að þessi keppni
er talin koma næst íslandsmóti
í golfi, að því er snertir fjölda
keppenda, og má segja, að sá,
sem vinnur keppnina, sé beztur
kylfinga íslands þann daginn.
G.R. vill bjóða öllum, sem á-
huga hafa á golfíþróttinni, að
koma upp á golfvöll og fylgjast
með keppninni. Áhorfendur eru
beðnir aö lesa reglur um um-
gengni áhorfenda á golfvellin-
um, áður en þeir fara út á völl-
inn, en þær hanga uppi í golf-
skálanum.
Þá er áhorfendum ráðlagt að
vera á vatnsheldum skóm og
hafa meðferðls hlífðarflík, ef
von er á rigningu.
Eins og fyrr segir hefst
keppnin í kvöld kl. 19.30, á
laugardag kl. 13.30 og á sunnu-
dag kl. 9.00.
Hjól og bílar
Seljum í dag og næstu daga, hjól og bíla, ó-
dýrt.
einn inn fyrir, eftir að Ellert
Schram hafði sent langa séndingu
fram hægra megin. Halldór mið-
vörður Vals datt, er hann reyndi
að spyrna knettinum frá markinu
og eftir það var auðvelt fyrir
Gunnar Felixson aö senda knött-
inn í markið, fram hjá Gunnlaugi,
1—4 fyrir KR og þannig var stað-
an í leikhléi.
KR-ingar létu ekki við svo búið
standa og strax í upphafi síöari
hálfleiks skora þeir sitt fimmta
mark. Þórður Jónsson, framvörður
KR-liðsins tók innkast vinstra
megin og varpaði knettinum til
Baldvins, sem komst upp aö enda-
mörkum og þar gaf hann knöttinn
vel fyrir og Eyleifur skoraði með
glæsilegu skoti upp undir slána.
Fleiri urðu mörkin ekki i þess-
um skemmtilega leik. Það sem eft-
ir var leiksins sóttu liðin nokkuð
á víxl, en allt annað og betra
skipulag var á sókn KR-liðsins og
hætta því mun meiri við Vals-
markið.
KR-liðið sýndi nú sinn bezta
leik á sumrinu. Ákveðnin skein úr
andliti hvers liðsmanns. Mjög á
óvart komu nýliðamir í liðinu,
Magnús I markinu, Halldór inn-
herji og Jóhann útherji, sem var
reyndar einn bezti maður vallarins,
einkum í fyrri hálfleik, er hann
gerði margt stórglæsilega. Eyleifur
átti og nú sinn bezta leik hér á
landi og var sífellt vinnandi. Ellert
var traustur og Þórður, Ársæll og
Kristinn voru hinir traustu og ör-
uggu vamarmenn.
Valsliðið sýndi í þessum leik
einn sinn versta á keppnistímabil-
inu, og em það því meiri von-
brigði, þar sem það virtist til alls
liklegt í byrjun leiksins. Gunn-
laugur í markinu var líklega bezti
maður liðsins og veröur hann
varla sakaður um mörkin, ef til vill
það fyrsta. Annars átti liðið í heild
slakan leik og nú vantaði hinn
mikla baráttuvilja, sem einkennt
hefur þetta annars skemmtilega
lið.
Dómari var Grétar Norðfjörð og
var lítið samræmi í dómum hans.
af.
LÁRUS INGIMARSSON
Vitastíg 8, sími 16205