Vísir - 28.06.1967, Page 12

Vísir - 28.06.1967, Page 12
V í S IR , Miðvikudagur 28. júní 1967. *2 E IB Eogaa Rice ÉVKROVGHS OHCB VJB GET VOU IMTO THE HOLD OF TM£ S.S. COKIMTHA, VOíJ CAN TAKE A BREATHER/ p----------warjL ----\r~i thanksj •'■V ••-V a lot/ y MV 7HANKS, TOD, if/l/OtV X1 DENA BA/fJ— CjW 60 rcfli . ------pföV 7Z> ígiÍlÉiÍf Q banaga' j ANÞ I HAVE 70 CROSS AN OCEANy TOO, IM TMIS OtfTFIT þér hjartans ,Þaö verður gott, Kvikmyrtda&aga samln af Ednu (yBrien eftir skáldsögu hennar „The Lonely Girt" ,3vemig skyldu þeir annars fara að því, að koma þessum skipum fyrir inni í flöskmum", sagði hann og leit í átt að arinhillunnL Þetta var hans háttur, þegar eitthvað bar á góma, sem hann vildi ekki ræða frekar, þá beindi hann alltaf um- ræöunum aö emhverju ööru. AHt f einu spratt ég á fætur. Ég ætla aö bringja heim til hans“, sagði ég við Ðöbu. „Allt f lagi. Því skyldiröu ekki gera þaö?“ sagði Baba. Síminn var frammi í anddyrmu, og ég varð að setja tvo shillinga í hann til að ná sambandi. Eftir það varð ég að bíða enn í nokkr- ar mínútur á meöan stúlkan á mið- stöðinni náði sambandi við setr- ið. Það var Anna, sem svaraði. „Nei, hann er ekki heima ..." æpti hún í símann, svo lá við sjálft, að ég fengi hellu fyrir eyrun. Það hefði mátt halda, að þetta væri í fyrsta skipti á ævinni, sem hún tal- aði í síma. Svo var sem rödd hennar dæi út, og ég hafði grun um, að hún væri að tala viö ein- hvem, sem 'stæöi ekki langt frá henni. „Anna ... ég er að leggja af stað til Englands, og mig langar aðeins til aö kveöja hann, áöur en ég fer. Viltu biðja hann að koma í símann?“ „Hann er ekki heima, það er mér eiður sær“, hrópaðí Anna. „Haun er einhvers staðar úti við“. Sennilega hefur hún greint grát- hreiminn í rödd minni, því hún varð mýkri á mannitm. „Ef hann skildi rekast hmgað inn, þá skál ég láta hann hringja til þín. Hvar ertu, og hvað verðurðu þar lengi enn?“ „Ég varð að kalla inn í salinn og spyrja, hvað veitingastofan héti, og margar ’raddir svöruðu i senn. „Almáttugur, hvað ég öfunda þig að vera að fara til Englands", sagði Anna. „En það er nú rétt svo sem með mig ... Veiztu þaö, að nú er ég oröin ófrísk aft- ur ... veiztu um nokkrar töflur, sem þú gætir sent mér?“ „Ég skal reyna... Er Eugene kominn?" „Nei, hann er ekki kominn, og hér er enginn, nema ég og barn- ið. Ætlarðu þá að muna eftir því að senda mér töflurnar, áður en þú ferö?“ „Anna ... Ég hef skrifað honum hvað eftir annað“. „Eins og ég viti það ekki. Þaö líggur þessi líka hrúga af óopnuö- um sendibréfum hérna á borð- inu“. Þaö var eitt af mörgu í fari hans, sem ég gat ekki annað en dáðst aö, þrátt fyrir allt. Þetta þrek og sjálfsstjórn — að geta stillt sig um að opna sendibréf svo dögum skipti. Ég spurði Önnu hvort sú banda- ríska hefði komið. „Nei, hún hefur ekki komiö, og hingað hefur enginn komið síðan þú fórst. Þetta er eins og í dauös manns gröf. Hann var í burtu í tvo sólarhringa, og síöan hann kom heim aftur, hefur hann ekki mælt orð frá vörum og lokað sig inni í vinnustofunni. Ætlarðu aö muna eftir því að senda mér töflum- ar?“ En nú var mér allri lokið. Ég kvaddi hana í skyndi. Mér leið verr en nokkru sinni. Nú hafði ég vissu mina fyrir því, að hann þjáðist. Ég gat séö hann fyrir hugskots- sjónum mínum, séð fyrir mér hryggðina í augum hans yfir því, aö ég skyldi ekki reynast sú, sem hann hafði gert sér vonir um. Þegar við fórum bað ég veit- ingamanninn aö segja, að ég væri farin til skips, ef einhver spyrði eftir mér. Ég gerði mér vonir um, aö hann kæmi. Mér fannst sem ég sæi hann á hraöri ferð í litla sportbilnum á leiö niður fjöllinn. Anna hafði sagt, aö hann hefði verið lagður af stað. Hann var yfirleitt ekki að segja hanni hvert hann ætlaöi. Sá óþvegni þekkti varðmann- inn við landganginn, og fyrir hans orð fengu þeir báðir að fylgja okk- ur um borö. Hann gaf drykkju- peninga á báða bóga en Baba hélt á farmiðanum sínom í munnin- um, því að hún bar blóm og farangur í báðum höndum. Og enn hugsaði ég — nú hlýtur hann að koma á hverri stundu. Það var þröngt í klefanum, þeg- ar við vorum öll komin þar inn, Tod Mead, sá óþvegni, Jóhanna og Gustave. Og svo öll blómin. Sá óþvegni dró upp hálfa flösku af viskí og bað alla viðstadda að drekka kveðjuskál af stút, á meöan nokkur lögg væri eftir. „Ég þoli ekki svo sterkt“, sagði Jóhanna, sem varð hálffull af einu glasi af sherrýi ef svo bar und- ir. Engu að síður leit hún löng- unaraugum til flöskunnar. Sá óþvegni mælti fyrir skálinni af miklum innileik. „Ykkar skál, Baba og Kaithleen ... megi ykkur falla öll gæfa í skaut, megið þið alltaf vera eins yndislegar, og þið eruð nú og látið ekkert breyta ykkur...“ Hann söng síðustu orð skálaræðimnar og greip hendiririi undir bakhlutann á Böbu. „Guð minn almáttugur". æpti Baba, þegar hann hóf hana svo hátt upp að hún rak kollinn upp í loftljósshlífina. Þá kvað við bjölluhljómur, og einhver tilkynnti skipandi röddu, aö allir, sem ekki væru farþegar með skipinu skyldu hverfa frá borði. „Heilagur Móses ... ekki förum við að synda yfir írlandshaf", sagði sá óþvegni, Jóhanna ákallaöi guð sinn á þýzku og Tod Mead gerði krossmark fyrir okkur. Svo rudd- ust þau öll út og upp stigann, og viö sátum einar eftir í klef- anum með lögg á viskíflösku og innan um brotin blóm. „Hann kom ekki“ sagði ég við Böbu. Hún faömaði mig að sér, og svo fórum við báðar að gráta. „Ég verð brjáluö", kjökraði ég. I „Ég verð brjáhið ...“ „Sussu-nei“, svaraði Baba. „Þetta gleymist smám saman í nýju um- hverfi, og þegar til Englands kem- ur, veröur allt frjálsara". Þá ætlaöi hún að fara að telja farareyrinn, en brá heldur en ekki í brún, þeg- ar hún sá hvergi handtöskúna, með öllum peningunum. „Guð minn al- máttugur — peningarnir okkar .. æpti hún og fékk æöi, grýtti föt- um og pinklum í allar áttir, og fann loks handtöskurnar, sem bet- ur fór, neöst í hrúgunni. Þaö haföi nefnilega fariö svo, að við komum ekki öllum fatnaði okkar og far- angri ofaní þær ferðatöskur, sem við höfðum yfir aö ráða, og urð- um því að búa um það í bögglum, vöfðum í brúnan pappír, en nú fullyrti Baba, aö við yröum að leigja hjólbörur undir farangur- inn, þegar kæmi til Liverpool. „Við verðum að halda okkur vak andi í alla nótt“, sagöi hún. „Hver veit nema einhver ryöjist inn til okkar, nauðgi okkur og ræni svo peningunum". „Ég gleymi honum aldrei“, sagði ég og þerraði tárin af augum mér frammi-fyrir speglinum. ! ,,Hver skyldi Ííka ætlast til þess af þér?,. siagði Baba. „Annaö mál er það, áö þú veröur aö taka í af j;ur gleði þína... og almáttugur, 1 hvaö við skulum skemmta okkur í Soho“. VÍSIR AUGLÝSINCASKRIFSTOFA □□□□□, AUGLÝSENDUR, ATHUGIÐ! ooooo □ □DDDl IQQQQD ____Handrit af auglýsingum þurfa að hafa borizt auglýs- QQQQDi IQQQQD ingaskrifstofunni fyrir kl. 6.00 daginn fyrir birtingu. 'QnnoD QQQQD ÞINGHOLTSSTRÆTI 1 Simar 11660 - 15099 - 15610 VÍSIR „Ég verð, sem sagt, að fara yfir heilt útihaf I þessum búningi". „13m Jeið og við erum komin um borð í m-.s. CorÍTrtha, getur þú tekið þér hvíld, svo lítið beri fyrir. En Tarzan hefur staðið í felum á bak við tré og heyrt allar samræðurnar. — „Mínar þakkir, sömuleiðis Dena Bain“ — hugsar Tarzan. — Nú get ég farið stytztu leið til hafnarborgarinnar Banaga. Enn barst tilkynning um hátalara kerfið, og ég titraði af þeirri til- hugsun, aö ef til vill væri Eugene loks kominn. En það var vitan- lega um attt annað. „Ber ég það utan á mér. að ég hafi oröið fyrir þessari reynslu?" spurði ég Böbu. Nú þurfti ég ekki lengur að sjúga inn kinnarnar, svo ég sýndist magrari. FRAMKÖLLUM FILMURNAR FLJÓTT OG VEL CEVAFOTO LÆKJARTORCI Knútur Bruun hdl. Lögmannsskrifstofa Grettisgötu 8 II. h. Sími 24940. SPARIfl ---'BfLAUÍfGAN Zmk/y/gF RAUÐAHÁRSTlG 31 SlMI 22022 AUGLYSIÐ í VISI

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.