Vísir - 18.07.1967, Page 3
3
VlSIR. Þriðjudagur 18. júlí 1967.
Klæðum landið
Lionsklúbburinn Baldur í
Reykjavík hefur undanfarin
þrjú sumur lagt leið sína að
Hvítárvatni. Tilgangurinn með
ferðum þessum hefur verið tví-
þættur, þ.e.a.s. til að sá gras-
fræi á svæði sem klúbburinn
fékk úthlutaö hjá Landgræðslu
rikisins og í öðru lagi til
skemmtunar.
Síðastliðinn föstudag lagöi
klúbburinn í þriðja leiðangur-
inn og tóku 70 manns þátt i
feröinni, klúbbmeðlimir með
fjölskyldur sínar.
Landgræðsla ríkisins hefur
stutt klúbbinn með ráöum og
dáð, m. a. meö bví að girða
svæðið fyrir klúbbinn.
Leiðangurinn lagði af stað á
föstudaginn eins og fyrr segir
og kom aftur til Reykjavíkur
á sunnudagskvöld kl. 9.
Jóhann Möller skrifstofustjóri
tók myndir í ferðinni og birtist
hluti þeirra hér í Myndsjánni
í dag.
Efsta myndln er tekin í upp-
hafi ferðar og sést allur hópur-
inn samankominn framan við
eina bifreiðina.
Önnur myndin er tekin þegar
hópurinn leggur af staö til sán-
ingar. Harmonikuleikari klúbbs-
ins gengur í broddi fylkingar, en
hann heitir Eiríkur Ásgeirsson
og er forstjóri Strætisvagna
Reykjavíkur.
Þriðja myndin er af fjórum
börnum úr hópnum, þar sem
þau standa hjá rofabarði, en í
baksýn er Bláfell.
Fjórða myndin er af land-
græðsluflugvélinni þar sem hún
flýgur lágt yfir hópinn sem
veifar til flugmannsins. Flug-
vélin var þarna við sáningu og
áburðardreifingu.
Fimmta myndin er af fólki
viö sáningu. I baksýn er Skriöu-
fell og Hvítárvatn og sést jök-
ullinn teygja tærnar í vatnið
beggja megin fjallsins. Fötumar
sem fólkið notar eru þær sömu
og fást á bensínsölustöðum víða
um land.
Sjötta myndin er af blöndun
áburöar og fræs.
''••'ÍÍW'
'
;; ■
■ ■•' '
11(1