Vísir - 28.07.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 28.07.1967, Blaðsíða 2
V1 S IR . Föstudagur 28, júlí 1967. FRAM TÓK BÆÐl STIGIN GEGN KR ÍGÆR / STÓRBROTNU VEBRl í Staðan í „Vindurinn hjálpaði til" þegar sigurmarkið var skorabl 0 Framarar voru sannarlega heppnir í gærkvöldl, þegar þeir unnu KR í norð-norðaustan 8, heldur stórbrotnu, íslenzku sumarveðri, sem sannarlega setti sinn svip á leikinn allan. Fram- arar höfðu nefnilega „aðeins“ 1:0 yfir í hálfleik, sem að flestra dómi var ekki nóg til að sigra í þessum leik gegn KR og vindstigunum átta. £ ... en annað varð uppi á teningnum, og í síðari hálfleik hjálpaði vindurinn Fram, skot, sem virtist ætla utan og ofan hja, snarbeygði að markinu og niður í það og lenti ofarlega í mark- homi KR-marksins, gjörsamlega óverjandi, - og Fram var yfir, 2:0, og það nægði. Framarar sóttu mjög fyrstu min úturnar og komust í góð tækifæri, sem þó nýttust ekki. Það var ekki fyrr en á 25. mín- útu að Ólafur Ólafsson, vinstri bakvörður Fram skaut talsvert þungu skoti að marki og vindur lét ekki sitt eftir liggja aö herða enn á boltanum sem greinilega var erfiður Magnúsi, markveröi KR. Það reyndist líka vera, því Magnús missti bolt -.n frá sér og Grétar Sigurðsson, miöherji Fram, fylgdi eftir eins og miðherja sæmir og átti auðvelt með aö skora 1:0 fyr- ir Fram. En fleiri urðu mörkin ekki í þessum hálfleik. Þó sóttu KR-ing- ar stundum allvel á móti rokinu, en án þess þó að ná að skora. I seinni hálfleik virtist KR ætla að pressa stanzlaust og Framarar voru nokkuð margir fyrir í vöm- inni. Ekki tókst KR-ingum aö skapa sér veruleg tækifæri inni í vítateignum, né heldur góða skot aðstööu úti á vellinum, en skot af löngu færi voru mjög hættuleg á syðra markið vegna vindsins. Það var því eins og reiðarslag fyrir KR á 17. mín í síöari hálf- leik, þegar Einar Ámason skaut að marki KR frá vítateig og bolt- inn fór I fallegum (að Framara dómi) sveig úr skotstefnunni, og snarbeygði að markinu og niöur i hornið. Þaö var engu líkara en að veðurguðimir væm á bandi Fram þetta kvöld. Fimm mínútum síðar barst leik urinn up pað marki Fram. Eyleifur gaf fallegan bolta fyrir markið frá hægri, og Ellert Schram var þar vel staðsettur og afgreiddi bolt- ann eldsnöggt með skalla í blá- Ellert Schram átti þarna skot að marki Framara. Ungur Snæfellingur ívarpaði kúlunni 15.00! ► Ungur Snæfellingur, Sigurþór Hjörleifsson úr íþróttafélagi Miklaholtshrepps varpaðl kúl- unni nýlega 15.00 metra á hér- aðsmóti HSH aö Brelöabliki i Miklaholtshreppi. Það er aö vísu ekki nýtt aö góður kúlu- varpari birtlst meðal þeirra Sræfellinga, því þaðan hafa komiö góðlr íþróttamenn eins og Sigfús Sigurðsson, sem komst í úrslit á Olympíuleikunum í London 1948, Ágúst Ásgríms- son, sem varpaði yfir 15 metr- ana næst á eftir Huseby, og Er- ling Jóhanness., sveitungi Sigur- þórs. Erling kastaði nú 14.25 m. *> Góöur árangur náðist og í hástökki, þar stökk Halldór Jón asson 1.83 metra og i spjót- kasti setti Þorvaldur Dan héraös met, kastaði 54.99 metra. $>• IM hlaut flest stig á mótinu eða 94, næst kom Umf. Snæ- fell í Stykkishólmi með 66 stlg. Mótsstjóri var Sigurður Helga son og voru áhorfendur fjöl- margir og veður með afbrigð um gott. a \ í homið, óverjandi fyrir Hallkel markvörð Fram, 2:1. Mátti nú búast við að KR mundi jafna, en svo fór þó ekki. Nokkr- ar tilraunir virtust ætla aö gefa árangur, en þó fór það svo að KR eignaðist aldrei í þessum hálfleik opið tækifæri og skotin af löngu færi fóru annað hvort fram hjá eða að markvörðurinn átti auövelt með að sjá um þau. Þannig fór það því aö fram fór meö sigurinn og tvö dýrmæt stig, sem veita Fram áframhaldandi möguleika á hinum fallega íslands bikar, en keppni Fram, Akureyrar og Vals á eftir að verða hörð, en leikur Akureyringa á heimavelli fyrir norðan verður auðvitað ein- hver þýðingarmesti leikurinn, því vinni Akureyrl eru öll þrjú fé- lögin jöfn að stigum og geta oröið jöfn með 14 stig. Talsvert margir áhorfendur létu sig hafa það aö koma til að horfa á þennan leik og fengu oft á tíö- um allgóða knattspymu, því )iðin reyndu eftir megni að halda bolt- anum niðri, sem nægði þó ekki til í öllu . tilfellum, því vindurinn hafði einnig áhrif þar. Oft á tíð- um urðu leikmenn aðeins greindir ógreinilega gegnum sandrokið, sem flæddi yfir völlinn og í fyrri hálf- leik kom sementspoki fljúgandi frá einhverri nálægri byggingu og hellti úr sér leifunum af sementi sem í honum var yfir völlinn. Dómari var Magnús Pétursson og dæmdi vel. — jbp — l i 1. deild er nú þessi: J > Fram—KR 2:1 (1:0) • • Valur 8 5 2 1 16:13 12 jAkureyri 8 5 0 3 19:10 10 •Fram 8 3 4 1 10:8 10 • Keflavík S 3 2 3 7:8 8 JKR 8 3 0 5 13:15 6 • Akranes 8 1 0 7 8:19 2 • iNæstu leikir í 1. • 1 : deild eru þessir: • jKeflavík—Akranes í Keflavík á J sunnudag kl. 16. o • < • i • Akureyri—Valur á Akureyri miðj • vikudag. 2. ágúst. < • < • < jFram—KR í Laugardal 28. ágústj •ki. 19. • Framarar yfirgefa Laugardal í gær léttir í bragði. Kerlingarfjallamótið: Skíðamót að sumarlagi í sólskim og hita Kerlingarfjallamótið var haldið s.l. laugardag, 22. júlí, í glampandi sólskini og hita. Skíðaskólinn í Kerl ingarfjöllum sá um mótig með að- stoð Skíðaráðs Reykjavíkur, en Valdimar Ömólfsson lagðl brautir. Keppt var í stórsvigi í 5 flokkum, og voru alls 46 keppendur. Lengsta brautin var 1200 m löng, hæðarmun ur 300 m. Keppnin var afar skemmtileg <ög mótið í alla staði vel heppnað. Verðlaun voru afhent á fjölmennri kvöldvöku í Skíðaskólanum á laug ardagskvöld, og var þar að venju glatt á hjalla. Úrslit mótsins eru þessi: Karlaflokkur: 1. Kristinn Benediktsson 58.1 sek. 2. Bjöm Olsen 60.3 — 3. Guðni Sigfússon 61.5 — 4. Georg Guðjónsson 62.7 — 5. Haraldur Pálsson 63.9 — Kvennaflokkur: 1. Marta B. Guðmundsd. 49.9 sek. 2. Þórunn Jónsdóttir 55.9 — 3. Sesselja Guðmundsd. 57.5 — 4. Auður Sigurjónsd. 68.9 — Stúlkur 16 ára og yngri: 1. Margrét Eyfells 38.9 sek. 2. Áslaug Sigurðard. 39.4 — 3. Guðbjörg Sigurðard. 41.4 — 4. Auður Harðardóttir 41.9 — 5. Jóna Bjamadóttir 42.5 — Drengir 13—16 ára 1. Tómas Jónsson 43.3 sek. ■ 2. Haraldur Haraldsson 45.4 — . 3. Magnús Ámason 48.2 — 4. Guöm. Geir Gunnars. 48.7 — 5. Guðjón Ingi Sverrisson 49.8 — Drengir 12 ára og yngri: 1. Þórarinn H. Harðarson 38.7 sek. 2. Gylfi Gunnarsson 41.4 — 3. Óli Ólason 42.7 — 4. Birgir Þórarinsson 51.5 — 5. Hannes Ríkarðsson 55.2 — Nú er hafið fjórða námskeiðið í Skíðaskólanum, en ennþá er hægt aö skrá nokkra þátttakendur 2.—8. ágúst og 8.—14. ágúst. (Uppl. hjá Hermanni Jónssyni úrsmið, Lækj- argötu 4). Geysilej.' aðsókn er að unglinganámskeiðunum seinni hluta ágústmánaðar, og er einungis hægt að bæta við örfáum þátttakendum í það siðasta, 24.—29. ágúst. Það sem af er sumri hefur starf- semi skólans gengið ljómandi vel og veörið verið sérlega hagstætt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.