Vísir - 28.07.1967, Qupperneq 13
V í S IR . Föstudagur 28. júlí 1967,
am
13
„F riður í heimin
um árið 2000“
varpsbílinn af hólmi
Stödd er í Reykiavík um þessar
mundir kanadísk kona, Nancy
Campbell og er erindi hennar hing
aö að kynna Bahá’í trúarbrögðin.
Frú Nancy er ballettkennari í Ham
ilton í Kanada, og velbekkt í sínu
heimalandi sem brautryðiandi á
sviSi balletts. Hún stofnaði einn
fyrsta ballettskóla í Kanada og hef
ur siðan samið balletta og haldið
fjölda fyrirlestra um sögu hans og
tækni.
Við áttum tal við Nancy um
dvöl hennar hérlendis og um Bahá’í
trúarbrögðin, og sagðist hún hafa
verið meðlimur í Bahá’í-trúnni síð-
an 1940 og ferðazt undanfarin 15
ár i sumarleyfum sínum um Evrópu
og víðar til aö kynna Bahá’í trúna.
Þetta er í fyrsta skipti, sem hún
kemur til íslands, og kvaðst hún
vera ákafiega hrifin af landinu.
Fyrsti meðlimur Bahá’í hér á
landi er Ásgeir Einarsson, en söfn
uðurinn hefur síðan farið ört vax-
andi, sérstaklega þó á siðustu ár-
um, og fyrir þremur árum var stofn
að hér 9 manna héraðsráð. Engir
foringjar eða prestar eru yfir Bahá’I
samtökum, heldur 9 manna hópar,
sem vinna saman og mynda hér-
aðsráð. Þar sem þrjú héraðsráð eru
starfandi er síðan stofnað þjóöráð,
og yfir þeim er alheimsráð, sem
hefur aðsetur sitt í Hafia í ísrael.
Um upphaf Bahá’í trúarinnar,
sagði Nancy að hún væri upprunn
in í Persíu um miðja nítjándu öld,
og síðan hafa trúarbrösðin átt vax
andi fylgi hvarvetna í heiminum.
í öllum löndum heims eru nú
Bahá’í söfnuðir og eru meðlimirn-
ir orðnir yfir þrjár milljónir. Grund
vallarkenning Bahá’í trúarinnar er
sameining mannkynsins og viður-
kenning allra trúarbragða, og eru
menn af öllurn tniarbrögðum í söfn
uðinum, þótt ekki sé leyfilegt að
vera meðlimur annarrar kirkju.
Samstaða kynjanna og samstaða
allra þjóðflokka í heiminum eru
einnig meðal undirstöðukenninga
Bahá’í trúarinnar.
Er við spurðum Nancy um álit
þeirra á framtiðinni og á mögu-
leikum fyrir friði í heiminum, svar
að hún að þau álitu, að friður mundi
ríkja í heiminum um aldamótin
2000.
Nancy Campbell flutti fyrirlestur
fyrir almenning í fyrrakvöld um
örlög mannsins, en hún ætlaði aö
fljúga vestur um haf í gær.
Sjónvarpsbíllinn sænski hefur
gegnt brautryðjendastarfi sínu
vel hér á landi, ekki síður en í
heimalandi sínu, Sviþjóð. Bíll-
inn mun ekki verða sendur úr
landi fyrst um sinn, en til greina
kemur að hann fari á sjónvarps-
safn í Svíþjóð, þegar dvöl hans
á islandi*' lýkur. Hugsanlegt er
að hann verði notaður við upp-
tökur eða beinar útsendingar
hérlendis, en það er ekki fast-
Bifreiðaeftirlitið
Borgartúrti 7
verður lokað laugardaginn 29. júlí, vegna
skemmtiferðar starfsfólks.
BIFREIÐAEFTIRLIT RÍKISINS.
ákveðið ennþá. Bíllinn er gam-
all strætisvagn frá Stokkhólmi,
smíðaður árið 1938 og hefur ver
ið ekiö yfir eina milljón kíló-
metra. Sænskir sjónvarpstækni-
menn innréttuðu hann sjálfir og
notuöu á frumbýlingsárum
sænska sjónvarpsins. Að sjálf-
sögðu þyrfti íslenzka sjónvarp-
ið að eignast lupptökubíl, sem
þennan, en slíkur bíll kostar
milljónir króna nýr.
Það gegnir furðu, hve marg-
brotinn tækjaútbúnaður kemst
fyrir í sjónvarpsbilnum, en sjón-
varpið hefur nú eignazt mikið
af nýjum tækjum, sem koma í
staö þeirra tækja, sem í sjón-
varpsbílnum eru, og eins og les-
endur Vísis hafa séð í Mynd-
sjársíðu blaðsins í gær, fer tölu-
vert fvrir beim.
Kaupmenn — Kaupfélög
Hollenzkar veiðistengur, 5 tegundir.
Hollenzk veiðihjól, 5 tegundir.
Hollenzk maðkabox, 3 tegundir.
Flugur og gervibeitur, 20 tegundir.
Tekið upp í dag — Mjög hagkvæmt verð.
LÁRUS INGIMARSSON
Umboðs- og heildverzlun
Vitastíg 8 A — Sími 16205
Vænfanlegir
LANDSPRÓFSNEMAR
og aðrir, sem kunna að hafa áhuga! .
Fyrstu dagana í ágúst hef jast námskeið í eðl-
isfræði og flatarmáls- og rúmmálsfræði. —
Fullkomin kennslutæki til afnota. Kennslan
verður bæði bókleg og verkleg. — Vegna
þeirra, sem eru í atvinnu, verður aðallega
kennt eftir vinnutíma á virkum dögum og
um helgar. — Nánari upplýsmgar í dag og á
morgun, kl. 18 til 22, í síma 3 68 31.
Sig. Etíasson.