Vísir - 28.07.1967, Síða 16
r
Urva! uí grænmeti
á mar^aðnum
Fjölbreytt úrval af nýju græn
meti er nú komiö í verzlanir
og brugðum við okkur niður til
Silla og Valda og tókum þessa
mynd af einni afgreiðslustúlk-
unni, Eddu Smith, með bakka af
hinu nýja grænmeti.
Á myndinni sjáum við pap-
riku, blómkál, hvítkál, salat,
dill, púrrur, grænkál, agúrkur,
tómata og næpur.
FJÁRDRÁ TTARMÁUNU VÍSAD Tll
BÆJA RFÖGETA EMBÆTTISINS
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi í gær að visa
máli Kristins Gunnarssonar,
fyrrum forstjóra bæjarútgerðar
innar til bæjarfógetaembættis-
ins. Við umræður um misferli
Kristins, sem hafði komiö í ljós
við endurskoðun á reikningum
bæjarútgerðarinnar. hafði bæj-
arstjórnjn fallizt á þær ráðstaf-
anir, sem útgerðarráð B.H. hafði
gert til þess að tryggja hags-
muni útgerðarinnar.
Útgerðarráö B.H. haföi komið
saman til fundar 17. þ.m. og
rætt reikninga útgerðarinnar fyr
ir áriö 1966 og meðfylgjandi
bréf frá löggiltum endurskoö-
anda útgerðarinnar, sem benti á
að 700.742.35 kr. sem tilgreind-
ar væru á viðskiptamannalista
sem er biöreikningur végna
Kristins Gunnarssonar, væru
greiðslur, sem útgerðin heföi
innt af hendi fyrir Kristin og
peningar er hann heföi tekið út.
Á annan hátt stæðu þessar
greiðslur ekki í sambandi viö
útgeröina Öll upphæðin á árinu
1966 varð hæst 1.026.650.35 kr.
Á næsta fundi útgerðarráðs
hafi Kristinn verið búinn aö
greiða inn á reikninginn 360.000
kr. og af hans hálfu var boðið
að greiða afganginn, kr.
346.732.35, auk vaxta með 5 ára
skuldabréfi, sem tryggt væri
með veðrétti í fasteign.
Á þessar ráðstafanir féllst
bæjarstjómin á fundi sínum í
gær, en vísaöi málinu að öðm
leyti til bæjarfógetaembættisins
Árið 1966 —í myndum
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur nú
gefið út í annað sinn bókina, „Árið
1966 — Stórviðburðir líðandi stund
ar í myndurn og máli —“. Bókin
kom áöur út i fyrra í 3000 eintök
um, en hefur nú verið send á mark
aðinn í sama upplagi með einni
breytingu. í bókina hefur verið
bætt við sérkafla um íslenzka við-
burði á árinu.
Hafsteinn Guðmundsson, for-
stjóri útgáfunnar, skýrði blaða-
mönnum í gær frá því, hvernig
bókin væri gefin út í samvinnu viö
sænska bókaforlagið, Diana Bildre
portage A/B í Halsingborg. Kæmi
bókin út í 10 löndum, 1,6 milijón-
ir eintaka alls og þýdd á tungumál
hvers lands. Er þetta eina bókin,
sem út kemur á íslenzku, um er-
lenda viöbúrði.
Ritstjóm erlenda hluta bókar-
innar annaöist Gfsli Ólafsson, rit-
stj. en um innlenda sérkaflann sá
Björn Jóhannsson, blaöamaður. Bók
in sem er í stóru broti og 332 síður
er eins í allri uppsetningu í öllum
löndunum 10, nema hér hefur inn
lenda efninu veriö gert hærra und-
ir höföi, en hjá hinum. Hafsteinn
benti á, að innlendi .kaflinn væri
ekki tæmandi viðburðaannáll, en
ef undirtektir þessarar bókar yrðu
góðar, gæti vel farið svo, að sá
kafli næstu bókar yröi stærri.
f bókinni eru yfir 500 myndir og
er hún öll hin vandaöasta í útliti.
Verð hennar er 775 krónur, en með
því að gerast áskrifandi að bókun
um fæst hún með afborgunarskil
málum.
Undirbúningur að bókinni um við
buröina á árinu 1967 hófst fyrir
3 mánuðum.
34 metra
hár turn fyr-
ir sements-
verksmiðjuna
Sementsverksmiðja ríkisins
hefur nú í byggingu geymslu-
turn íyrir ósekkjaö sement á
Ártúnshöfða. Turninn er það
langt á veg kominn, að margir
hafa eflaust veitt honum eftir-
tekt, þar sem hann gnæfir upp,
framarlega á höföanum. Enn á
hann þó eftir að hækka, þar sem
ráðgert er, að hann verði 34
metra hár fuligerður. Mun hann
þá rúma um 4 þús tonn af ó-
sekkjuöu sementi, sem selt verð
ur til kaupandans þannig, eða þá
sekkjað, þegar reist hefur verið
pökkunarstöð hjá turninum á
höfðanum, en j»að verður þó
ekki á þessu ári.
Það hefur alltaf veriö ætlun-
in, að hér í Reykjavík yrði kom
ið upp dreifingarstöð fyrir sem
entsverksmiðjuna, en það var
tekki fyrr en fyrir nokkru, sem
henni var endanlega valinn stað
ur, og í fyrrahaust var svo haf-
izt handa við undirbúning að
byggingu turnsins.
Þurfti til að byrja með, að
sprengja 70 þús. rúmm. úr klett
inum, en það grjót, sem þannig
fékkst, /var notað til uppfylling-
ar framan í höfðanum, svo allt
byggingarsvæöið yrði í sömu
hæð og turninn stendur á. I
júnímánuði var svo byrjaö að
steypa grunninn undir turninn,
en turninn sjálfan var byrjaö að
steypa 14. júlí s.l.
Síðan verða þarna reistar
skemmur fyrir sekkjaö sement
og pökkunarstöö, en i framtíð-
<<
* ■''i'.'Vl''Vy
P, ' ■ ,
Sementstuminn á Ártúnshötða og mennirnir, sem starfa við smíði hans.
inni veröur sementið flutt ó- ur svo sementinu dreift til kaup
sekkjað frá Akranesi í geymum andans sekkjuðu eða ósekkjuðu
með ferjunni. Úr turninum verö eftir óskum hvers og eins.
26 SKIP A LANDLEID
— s'ildardreifð út af Austfjörðum — peðringur
v/ð Hrollaugseyjar — Jón Kjartansson fær
sild i Skagerak
öjöm Jóhannsson, Hafstcinn Guðmundsson og Gísli Ólafsson íletta upp
1 nýju bókinni.
Tuttugu og sex skip eru nú
á landleið með afla af síldar-
miðunum suðaustur af Bjamar-
ey. En skipin eru nær fjóra sól-
arhringa þaðan til Austfjarða-
hafna þegar þau eru hlaðin og
jafnvel lengur. — 18 skip til-
kynntu um afla sinn í gær og 8
i>dag. — Nokkur skip eru enn að
veiðum í Norðursjónum og í
nótt fréttist af togaranum Jóni
Kjartanssyni í Skagerak, hafinu
milli Noregs og Danmerkur. Þar
hafði hann fengið 250 tonn og
ætlaði að landa aflanum i Þýzka
landL
Ægir fann peðring og smálóðn-
ingar vestur af Jan Mayen i fyrra-
dag og þar kastaði síldarskipið Sig-
fús Bergmann í gær og reyndist
þetta vera loöna.
I fyrri viku fékk Skarðsvík 210
tonn við Hrollaugseyjar, og hafa
nokkur skip reynt þar fyrir sér síð-
an, en lítið fengið. Einn bátur,
Sveinn Sveinbjörnsson, hefur verið
þar þrjá sólarhringa og var búinn
að fá 80 tonn í gær. Torfur eru
þar smáar og er helzt að ná þeim
í myrkri,
Síldarleitarskipið Hafþór hefur
að undanförnu leitað út af Aust-
fjörðum og hefur lóðað á dreifð
og smátorfur 100 mílur út af Aust-
fjörðum. Þar hafa fjórir norskir
reknetabátar verið að veiðum, en
afli þeirra hefur verig tregur. Síld-
in sem þeir fáver falleg og stór.
I Vona menn að þessi dreifð þéttist
! og ætti þá aö vera hægt að fá þar
j reytingsafla, sem hægt væri i að
; salia. En torfurnar eru ennþá of
\ litlar til þess að taki þvi fyrir skip-
in að kasta á þær.
Þessi skip tilkynntu um afla í
morgun;
Örfirisey 310 — Örn 240 — Héð-
inn 220 — Fylkir 190 — Jón Garð-
ar 380 — Hólmanes 165 — Guð-
mundur Péturs 160 — Magnús Ól-
afsson 400.
Samtals 8 skip með 2065 lestir.