Vísir - 15.08.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 15.08.1967, Blaðsíða 1
 57. árg. - Þriðjudagtir 15. ágúst 1967. - lMÍHbl. Svihökkvinn kominn tii\ Fyrsta reynsluferbin seinni partinn i dag eða á morgun Veiðiþjófnaður í Brynjudalsá Vart var veiðiþjófnaðar fyrir nokkru í Brynjudalsá, en flest bendir til þess að verknaður- inn hafi veriö framinn í ölæði og veiðiþjófurinn lítið haft upp úr krafsinu. Hefur veiðiþjófur- inn náöst og játað á sig verkn- aðinn. Málsatvik voru þau, að dreng- ur á bæ einum, skammt frá ánni, sá til manns í gegnum sjón auka hlaupa til árinnar með net. Gerði hann leiguhöfum árinnar viövart og þeir kærðu atburð- inn til lögreglunnar. Fundust í ánni net í afar lélegu ástandi og lítt veiðlleg á að sjá. Vant- aði i þau teina og voru þau flækt og samanþvæld. Haföist svo selnna upp á veiðiþjófnum, sem játaði að netin væru hans eign, en kvaðst þó ekkert hafa veitt í ánni. Hins vegar hefði hann náð þrem fiskum meö hönd unum, en ekki í netin. Haföi hann framiö verknaðinn í öl- æði og ekki gert það i fjáröfl- unarskyni. Svifnökkvinn, sem hingað hefur verið fenginn i reynsluskyni kom árla f morgun til Vestmannaeyja meo Tungufossi. — Svifnökkvan- um var skipað upp á hafnarbakk- ann, þar sem gengið verður frá honum áður en reynsluferðir hefj- ast. — Fyrsta reynsluferðin verður ef til vill eftir hádegi i dag, ef und- irbúningi miðar vel. að þvi er Hjálmar R. Bárðarson skipaskoðun- arstjóri tjáði blaðinu i morgun, en annars verður fyrsta reynsluferðin á morgun. Svifnökkvinn verður í Vestmanna eyjum i 10 daga, þar sem tilraunir verða gerðar með hann, undir stjórn Hjálmars R. Bárðarsonar, og verður skipið reynt á milli Vest- mannaeyja og lands. — Seinna fer ákipið tii Akraness, þar sem það verður reynt í 10 daga. — Það eru Vestmannaeyjakaupstaður, Akranes kaupstaður og ríkissjóður, sem bera kostnaðinn af þessum tilraunum með svifnökkvann til samgangna. '■.í > f S % TOCARINN NARfí FANN SILD ÚT AF HÚNAFLÓA Sildin feit og góð, 30-36 sentimetrar á lengd Hugrún frá Bolungarvik komin á miðin Seinnipartinn í gær fékk tog- arinn Narfi stóra og fallega síld í trolliS, þar sem hann var að toga út af Húnaflóa. Togarinn lóðaði ennfremur á 10-20 faðma þykkar torfur djúpt á Stranda- grunni. — Síldin, sem kom upp í trollinu var stór og feit, 34J/2 -36 sm að lengd, en það er svipuð síld og nú veiðist norður í Ishafinu. Á þessum slóðum hefur ekki orðið vart við síld undanfarin ár. Leitarskip hafa athugað svæðið fyrir Norður- landi árlega, en ekki séð votta fyrir sild, enda hafa skilyrði ver- ið þar slæm fyrir síldargöngur. Norðlendingar Iifa samt f von- dýpi eða svo. Svo virðist sem torf- urnar þéttust þegar leið á kvöldiö og urðu þær þá 10—20 faðma þykkar. Hugrún frá Bolungarvík var kom in á þessar slóðir um klukkan fjög ur í nótt og kastaði þá einu sinni á lóðningu en fékk ekkert lifandi kvikindi. Verður skipið þama fram á nóttina og mun væntanlega magn að ræða, en þeir hefðu lóðað j fá úr því skorið í nótt hvort þarna á allmargar torfur á 50 metra i er um veiðanlega sfld að ræða. inni um að síld komi þar upp undir landið. Vísir talaði við skipstjórann á togaranum Narfa í morgun og sagðist hann ekki geta sagt til um hvort hér væri um mikið síldar- I morgun fengu allmörg skip góð köst norður i Ishafinu, all- miklu nær en veiðin hefur verið undanfarna daga, eöa austur undir 13. gráðu a.l. — Síðasta sólarhring tilkynntu sex skip um afla, sam- tals 1700 lestir, en þar er ekki með- talin veiðin í nótt og í morgun. Flutningaskipið Haförn var á leið inn til Siglufjarðar í morgun með fullfermi og Síldin var sunnan við Jan Mayen á leið til veiðislóðanna, Erlendur sjómaður grunaður urn þjófnað Skipverji á stóra olíuskipinu „Irving Glen“, sem var f Hafnar- firði f síðustu viku, var fyrir helg- ina tekinn fastur sakaður um að hafa stolið ýmsum munum frá ís- lendingi, sem hann hafði verið gest komandi hjá. Gisti hann lögregl- una f Hafnarfirði elna nótt og eft- ir talsveröar yfirheyrslur var hon- um leyft að fara með skipinu, þeg- ar það sigldi út, en þó ekki fyrr en skipstjórinn hafði sett trygg- ingu fyrir því aö maðurinn kæmi aftur. Skipverjinn hafði, ásamt félög- um sínum, farið til Reykjavíkur að skemmta sér og hafði þeim veriö boðið inn á heimili eitt hér í bænum. Þegar þeir höfðu farið þaðan, saknaði gestgjafinn úrs síns og ýmissa muna, alls að verðmæti um 8 þúsund krönur, og gerði lög- reglunni í Hafnarfirði viðvart. — Hvíldi sterkur grunur á einum skipsmanninum, en hann vildi ekk- ert við það kannast að hafa stolið mununum. Kvaðst hann ekkert muna, en það mætti svo sem vera, þótt hann vildi ekki játa það. Fulltruar Kaup- maunuhafnar í heintsókn u Tíu fulltrúar Kaupmannahafn- ar undir forustu forseta borg- arstjómar, ’lenry Stjernquist, Nefnd SVR og Innkaupastofnunar Reykjavikurborgar: Mæla mcð sænskum undirvögnum og íslenzkum yfirbyggingum komu í opinbera helmsókn til j Reykjavíkur. Þeir munu dvelja hér fram á laugardag, kynna sér borg- j ármálefni og fara m. a. til Þing- valla, Akureyrar og að Mývatni. u í morgun fóru gestirnir í skoð- unarferö um Reykjavík undir ieiðsögn Páls Líndals, borgarlög- manns, en að henni lokinni tók borgarstjórinn, Geir Hallgrímsson, á móti fulltrúunum i fundarsal borgarstjórnar við Skúlatún. Borgarráð hefur úrskurðarvald og fjallar um málið á næstunni Allar horfur eru á því, að tilboði frá Sameinuðu bílasmiðjunni í yfirbygg ingar hinna 38 nýju strætisvagna fyrir R-vík urborg verði teklð, og byggt verði yfir undir- vagna frá sænsku Volvo verksmiðjunum. Að því er þeir Torben Frede- riksen, forstjóri Innkaupastofn- unar Reykjavíkurborgar og Gunnar Björnsson hjá Samein- uöu bílasmiðjunni sögðu Vísi i morgun eru allar horfur á, að hinir 38 nýju strætisvagnar Reykjavíkurborgar, sem byggðir eru sérstaklega með tiiliti til hægri umferðar, verði af Volvo- gerð, en yfirbyggöir hér á landi. Torb?n Frederiksen sagði Vísi, að Guðmundur Bjömsson, tækni legur ráöunautur Strætisvagna Reykjavíkurborgar, hefði mælt með því, að keyptir yrðu Volvo- undirvagnar og þeir yfirbyggðir hjá Sameinuðu bílasmiöjunni, en Torben sagði jafnframt, að borgarráð ætti eftir að fjalla um múiið, og það því ekki end- anlega til lykta leitt. Mjög mörg tilboð bárust i byggingu hinna nýju strætis- vagna, m. a. frá Leyland-verk- smiðjunum ensku, Volvo-verk- smiðjunum sænsku og Mercad- ez-Benz-verksmiðjunum þýzku. Sameinaða bílasmiðjan gerði til boð í að -byggja yfirvagna á grindur af öllum geröum stræt- isvagna. Var tilboð hennar í tvennu lagi, að því er Gunnar Björnsson sagði Vísi. Annað til- boðið hljóðaði upp á að burðar- grindin væri úr stáli, en hitt tilboðið að burðargrindin væri úr alúmíni (áli). Því tilboði, sem fjallaði, um burðargrindur úr áli og yfir grind af Volvo- gerð var síðan mælt með af hinum tæknilega ráðunaut SVR svo og sérstakri nefnd, sem skip uö var fulltrúum SVR og Inn- kaupastofnunar Reykjavíkur- borgar. Hefði Sameinaða bíla- smiðjan síðan gert sérstakan samning við norska verksmiðju, sem byggir yfir strætisvagna og hefur ál i burðargrindum. Mun hin norska verksmiðja aðstoða við yfirbyggingarnar og líklega verður byggt yfir einn vagnanna úti í Noregi, ef tilboðinu verð- ur tekið, sagði Gunnar. Verða sendir menn utan frá Samein- uðu bílasmiðjunni, og síðan koma menn frá hinni norsku verksmiöju til að hjálpa til við að koma framleiðslunni af stað hér á landi, en hér verður byggt yfir 37 vagna. Gunnar Björnsson sagöi, að yfirbyggingarnar verði allar gerðar á færiböndum, sem væri nýtt fyrirbæri hér á landi í sam bandi við ýfirbyggingar vagna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.