Vísir - 15.08.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 15.08.1967, Blaðsíða 2
I 2 VISIR . Þriðjudagur 15. agost I3B7. - UAND SKORADI 2 Af ÞRCM MORKUM ^ „Þessi leikur sýndi enn einu sinni fram á að allt getur skeð í knattspyrnu“, sagði Björgvin Schram, hinn ötuli formaður KSÍ, sem líklega hélt sína síðustu ræðu að sinni yfir landsliði fslands í veizlu Menntamálaráðuneytisins á Hótel Borg að loknum landsleiknum í gær, en Björgvin hefur lýst því yfir, að hann muni í haust hætta formennsku. Björgvin hélt áfram : „í þessum leik kom það í ljós að það liðið, sem skoraði 2 af þremur mörkum leiksins tapaði engu að síður“. Það var þetta, sem gerðist í leik fslands við Stóra-Bretland, sem mætti hér með sína áhugamenn til leiks. TAPADI ÞÓ GERZT í KNATTSPYRNU..." Það var svo elnkennilegt í gærkvöldi, þegar sænski dóm- arinn Lidberg blés til leiks, að þaö var eins og engin stemmn- ing myndaðist meðal hinna 5000 áhorfenda, sem komið höfðu tll leiksins. Allan leik- inn heyrðist ÁFRAM ÍSLAND aðeins sárasjaldan og það var eins og áhorfendur hefðu frá byrjun á tilfinningunni að þeir væru viðstaddir nauðaómerki- legan æfingaleik. Það versta var, að engu var lfkara en Ieik- menn væru sama slnnis. Að- eins þegar Bretunum mistókst eitthvaö klappaði fólkið. Fyrir góðum leik eða marktækifær- um íslands var ekki hægt að klappa, — slíkt fyrirfannst varla. Það sem gerðist var einfald- lega það, að liðið gat ekki vald- ið 4-3-3 kerfinu fremur en öðr- um kerfum, sem uppfundin hafa verið af atvinnumönnum fyrir atvinnulið. Það sama má segja um brezka liöið, það gat ekki valdið þessu kerfi, yfir- leitt slitnaði sundur, og allt fór í eina bendu fyrlr framan víta- teigana án þess að neitt gerð- ist. Og hvernig urðu þá mörkin til? Því er til að svara, aö þau voru af alódýrustu tegund, — algjör 3. flokks vara, ef mér leyfist aö orða það svo fyrir málvöndunarmönnum. Rauna- sagan um þessi mörk er þann- ig í stuttu máli: ♦ Þórður Jónsson skorar í eig- ið mark á 38. mínútu. Sjálfur sagði hann í gærkvöldi eftir leikinn: „Mér fannst einhver kalla, þegar boltinn kom i átt til mín, augnabliks truflun, og boltinn lenti utanfótar og rak- leitt inn fyrir marklínuna“. — Sannarlega óheppni hjá góðum nýliða í landsliðinu. ♦ Á 28. mín. í síðari hálfleik fær Haider miðherji góða send Allt i einni bendu í leiknum í gær, Kári og Guðni Kjartansson sækja að markverðinum, Swannell. ingu fyrir markiö frá Hopper innherja, skotið er nokkuð ó- vænt, en ekki fast og fer með jörðunni inn í vinstra homið, en Siguröur Dagsson var mjög seinn að kasta sér eftir bolt- anum, sem lá inni, 2:0 fyrir Bretana. + . /. og til að kóróna allt sam- an. Óhappamark skorað af Jóni Stefánssyni miöverði íslenzka liðsins, en á honum höfðu ófá- ar sóknarloturnar stöðvazt í leiknum. Það var Haider, sem Hermann Gunnarsson stendur hér yfir markverðinum í leiknum í gærkvöldi. komst upp að endamörkum eft ir að Þórður Jónsson missti bolt ann inn fyrir sig, og Haider skýtur leiftursnöggt fyrir markið og boltinn rekst í tána á Jóni og syngur í netinu, 3:0. Þetta var á 39. mín. og flestir áhorf- ertda búnir að fá nógan skerf af leiknum og famir að hugsa til heimferöar með enn eitt tap- ið, og vitandi að í dag getum viö jafnvel ekki sigraö Ber- muda og Bandaríkin, sem hafa tekið knattspymuna alvarlega og unnið að því að koma upp frambæriiegum liðum, — með árangri. í þessum leik gerðist sára- fátt merkilegt. Leikurinn var þóf og leikieysa á allt of stór- um köflum. Bretamir leyfðu Is- iendingum aldrei að koma upp neinu spili, þeir „dekkuöu“ vel, og voru þegar komnir í bakið á andstæðingnum, þegar hann fékk boltann, hlupu fram fyrir kyrrstæða Islendingana og \ hirtu boltann af þeim. íslenzku Ieikmennimir voru of staöir og gátu ekki komið neinum vöm- um við þessu af þeim sökum. Fá tækifæri mynduöust í þessum leik og engin opin, — þess vegna fannst mér 3:0 of miklll sigur fyrir Bretana. Bret amir léku langt frá því vel. Þeir höfðu tilburði heimsmeist- aranna ensku, — lágu lengi emjandi i grasinu, ef við þá var komið, og báru sig aum- lega, en þetta fyrirbrigöi var vinsælt á HM í fyrrasumar í London, en knattspyrnan átti ekkert skylt við knattspyrnuna á HM. Brezka liöið má sannarlega leika betur i undankeppni Ol- ympíuleikanna, eigi það að vera meðal 16 liða í Mexíkó að ári. Beztu Ieikmenn voru Swann- ell, markvörður, vömin í helld mjög góð, og Gamblin beztur og Reid mjög skemmtilegur spilari. Cumming framvörður var góöur tengillður, en í fram línunni var Hopper vinstri inn- herji beztur. Það kom í ljós með íslenzka liðið, að uppstillingin var vafa- söm í meira lagi. Guðni Kjart- ansson var aö vísu eini mað- urinn í framlínunni, sem virt- ist geta ógnað að einhverju marki, en staðreyndin er þó sú, að hann er beztur sem vinstri bakvörður, og það mjög góöur sem slíkur. Þóröur Jónsson er líka betri frammi á vellinum sem tengiliöur. Það er kominn tími til að landsleikirnir séu ekki notaðir sem tilraunaleikir, — það hefur marg oft veriö vlðurkennt sem staðreynd, að vinstri bakvörður á helzt ekki aö leika annað en vinstri bak- vörð, — ekki t. d. hægri bak- vörð, og vlnstri útherji ekki hægri útherja o. s. frv. Það er eins og gamla staðan verki eins og segull á menn. Það verður því að bíta í það súra epli að velja þá menn, sem beztir eru taldir í hverja stöðu. Að vísu eru undantekningar frá þessu, en hitt er algengara að menn bregðist i slíkum hlutverkum en hitt. íslenzka liðið kom alls ekki vel frá þessum leik, og mitt persónulega álit er þaö, að hér hefði átt að byggja utan um „undir 23 ára liðið“ meira en gert var hér og láta menn halda stöðum sínum í stað þess að fara út í ævintýri eins og þetta. Sænski dómarinn Lidberg frá Lidkjöping dæmdi mjög vel, — leikurinn raunar ekki erfiður. — jbp —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.