Vísir - 01.11.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 01.11.1967, Blaðsíða 2
Gjörbreytt STADION-lið og hratt og velleik- andi FH-lið gáfu áhorfendum góöa skemmtun i Laugardal i gær — sigur FH 20:18 var sanngjarn ® Sennilega hefur Páll Eiríksson aidrei fyrr tekið eins djarfa ákvörðun og í leiknum í gærkvöldi rnilli FH og STADION, danska handknattleiksliðsins, sem lauk nú íslandsheimsókn sinni með öðru tapinu í röð. Páll fékk boltann upp í hendurnar við punkta- línu, aðeins hálf mínúta eftir til leiksloka, og staðan 19:18 fyrir FH, snarsnéri sér og skaut þrumuskoti í gegnum rifu á varnarveggnum, — mark. 20:18 fyrir FH, og þessi urðu úrslit mest spennandi leiks, sem áhorfendur hafa fengið að sjá til þessa í haust í Laug- ardal. „Þetta ,var langbezta liðið, sem við mættum hér“, sagði Finn Andersen, einn af far- arstjórum STADION eftir leikinn, „ef við hefðum náð þessum leik gegn Fram, þá væri enginn vafi á að við hefðum unnið. Það var sér- staklega númer tiu hjá FH, sem mér fannst góður (Geir (\Hallsteinsson), — hreint frá- bær leikmaður“. Og dómar- yrnir ? „Góðir, finnst mér, einkum tveir þeir fyrstu, en t um dómarann í kvöld vil ég ^ekki ræða, að svo stöddu“, sagði Andersen. FH byrjaði þennan leik af miklum krafti. Ef hægt er að tala um að lið kafsigli annað lið, þá mætti líkja fyrstu 20 mínútunum við það. FH sótti hváð eftir annað, það var ógnað, línumennirnir opnuðu hvað eftir annað góðar glufur, sem FH skoraði í mörk sín. Eftir 20 mínútur var staðan orðin 10:3 fyrir FH, — algjörir yfirburðir. En það var eiginlega þá sem eitthvað bilaði í liðinu. Var það úthaldið? E.t.v. var það tilfellið, — og raunar ekki óeðlilegt, því á meðan Reykjavíkurliðin hafa leikið allmarga leiki í Reykja- víkurmótinu og þar fundið „formið“, hafa Hafnfirðingar aðeins getað leikiö 2 létta æf- ingaleiki. Þetta var því fyrsti verulegi leikurinn hjá liðinu, — og verður ekki annað sagt en að vel hafi veriö farið af stað. Birgir Björnsson skoraði 1:0 eftir aðeins örfáar sekúndur af leik, en Danir jöfnuðu. Enn skorar Birgir og Ole Bay Jen- Öm Hallsteinsson er hér 1 erfiöleikum í leiknum í gær, ólöglega hindr- aður. Ole Bay var lagbeztur Dananna, enda sent sérstaklega eftir honum til þessa leiks. sen, sem sóttur var til Danmerk ur fyrir þennan leik, iiðinu til styrktar (sem hann var líka sannarlega), jafnar með góðu skoti. Þá koma 6 mörk í röð frá FH, Geir, Auðunn, Árni, Örn úr víti, Auðunn og loks Örn, 8:2 um miðjan hálfleik. Þá loks skora Dariir 8:3, en Páll og Geir skora tvö næstu, 10:3. Danir skora 10:4, en Jón Gestur skorar 11:4, en Ole Bay skorar 11:5 og síðan kemur 11:6 og 11:7, áður en Páll skor- ar úr víti, 12:7. Þegar ein mín- úta var eftjr skora Danir 12:8, og var þá komin markatalan úr leik Fram og Stadion frá þvi á sunnudaginn, aðeins sá mupur- inn að 31 mínúta var eftir til leiksloka. Páll skoraöi að lok- um 13:8, sem var staðan í hálf- leik. Það var hálfgert slen yfir FH í byrjun seinni hálfleiks og raunar lengi fram eftir hálf- leiknum. Ekki bætti úr skák aö þeir voru óheppnir með skot, — og ekki 'færri. skot en 6 lentu í stöngunum og tvö víti eyðilögð- ust. sem verður að teljast klaufa skapur. Danir skoruðu 2 fyrstu mörkin, og staðan, sem í fyrri hálfleik haföi virzt unnin fyrir FH. breyttist nú allverulega og setti fjör og spennu í leikinn, sem dómarinn Hannes Þ. Sig- urðsson, réð alls ekki fyllilega við og gerði nokkrar stórar skyssur að manni fannst. Geir skoraði 14:10 og Birgir 15:10, sem sannarlega bjargaði miklu eins og á stóð. Þá kom 15:11 og 16:11 var svar FH. Þá koma 2 falleg mörk Ole Bay, og enn er kominn 3 markamunur, og furðulegur dómur Hannesar færir Dönum víti, sem er skorað úr 16:14 og skoraði Verner Gárd úr því. Þá skorar Páll 17:14, en Danir skora tvö næstu mörk og staðan er orðin 17:16, — spennan á hámarki og leikur- inn mun grófari en fyrr og hafði þó boriö talsvert á grófum leik allan tímann. Geir skorar á 25.\ mín. 18:16 og bætir ööru við skömmu sið- ar, bæði með gólfinu framhjá fótum varnarmanna. Segja má að þetta hafi gert út um leikinn. Að vísu koma tvö næstu mörk frá Dönum, og staöan 19:18, en aðeins 40 sekúndur eftir. Þess vegna var Páll e.t.v. fulldjarfur að skjóta, þ""ar FH gat auðveld- lega haldið ooltaniim og tryggt sér eins marks sigur í s(að þess að eiga jafnvel yfirvofandi að ná ,,aðeins“ jafntefli út úr leiknum. FH-liðið kom raunar ekki á óvart meö sigri. Um 2000 rr.-nns, 'sem sóttu leikinn bjiígg- ust við sigri eftir að Fram vann Stadion. Hins vegar var ekki búizt við Stadion svo sterku. Þetta var allt annað og betra lið, en við höfðum fengið að.sjá undanfarið. Geir Hallsteinsson var mjög góður í þessum leik og Birgir Björnsson er greinilega sá maður sem FH-liðið má sízt vera' án. Örn korri vel út i þess- um leik og Auðunn og Páll voru góðir. Þá vakti Birgir Finnboga- son athygli í markinu, ekki sízt í fyrri hálflejk. Af Dönunum var þaö að segja að markverðirnir voru góðir og Ole Bay Jensen reyndist bezti maður liðsins á- samt Verner Gárd, aörir leik- menn nokkuð jafnir, og enginn verulega veikur hlekkjur í keðj- unni. — jbp — ■

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.