Vísir - 22.11.1967, Side 5
VíSIR- MíStíkudagur 22jióvember r9ö7.
5
6JALLARH0RN
w
Heimdallar, félags ungra Sjálfstæbismanna
m
Rifnefnd: Sigurður Á. Jensson ritstj.,
Jóhonnes Long og Matthias Steingrimsson.
Úr starfi HehndaMar:
Auka þarf stjórnmála-
legan áhuga ungs fólks
Iagsheimili Heimdaiiar, tekin i
notkun?"
„Fyrir u. þ. b. þremur árum
lauk þeim breytingum á Valhöll,
sem nauðsynlegar voru, en með
tilkomu þessa vistlega félagsheim-
ilis hefur öll aðstaða til að halda
uppi félagsstarfsemi gjörbreytzt.
Með tilkomu þess jókst starfsem-
in til muna og er nú eitthvað um
að vera alla daga vikunnar."
„Hvert er verkssvið félagsheim-
ilisnefndar?“
„Nefndin, sem í eiga sæti 9
manns, sér um daglegan rekstur
Himinbjarga og skipuleggur dag-
skrá í samráði við stjóm félags-
ins.“ ,
„Hver hefur starfsemi félagsins
verið i vetur?“
„Starfsemin er mjög fjölbreytt
• ■g miðuð við það að sérhver fé-
lagsmaður geti fundið eitthvaö
við sitt hæfi. Höfuðvettvangur
starfseminnar er félagsheimilið
Himinbjörg. í vetur hefur verið
lögð sérstök áherzla á að auka
stjórnmálalegan áhuga ungs fólks
með kynningu á stjómmálaf'okk-
unum, námskeiöi í fundarsköpum
og ræðumennsku, málfundum og
fleiru. Nefndin sér einnig um öll
tynninga- og skemmtikvöld."
„Hefur nefndin einhverja sér-
staka starfsáætlun á prjónunum?“
„Ákveðið er að halda áfnm
þeirri viðleitni að auka stjórn-
málalegan áhuga ungs fólks með
sérstakri starfsemi, og verða
fengnir ýmsir sérfróðir menn til
þess að fræöa félagsmenn um
stjómmál og félagsmál. — Einnig
má geta þess, að þar sem siðasta
námskeið í ræðumennsku og
fundasköpum heppnaðist í alla
staði mjög vel, væri ekki úr vegi
að endurtaka það síðar meir í
vetur.“
Sjálfstæðiskvennafélagið HVÖT
heldur AÐALFUND fimmtudag 23. nóv. í
Sjáffstæðishúsinu kl. 8.30 e. h.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffidrykkja.
Félagskonur mætið stundvíslega.
STJÓRNIN
spjaUaá v/’ð Andrés Andrésson for-
mann félagsheimilisnefndar
’ |
/"'‘jallarhom hafði nýlega tal af isnefndar Heimdallar, sem jafn-
Andrési Andréssyni Verzlun- framt á sæti í stjórn félagsiris.
arskólanema, form. félagsheimil- „Hvenær vom Himinbjörg, fé-
Andrés Andrésson fyrir framan Himinbjörg.
(Ljósm. J. Long)
HIMINBJÖRG
Miðvikudagur: Kvikmyndakvöld: Atökin við
Alþingishúsið 30. marz 1940 o. fl. myndir.
Sunnudagur: Opið hús.
Mánudagar: Málfundur um deilumar fyrir
botni Miðjarðarhafs.
Oft er glatt á hjalla í Himinbjörgum.
ÚR STEFNUSKRÁ HEIMDALLAR
Sjdvarútvegsmdl
Fram hefur komið sú afdráttarlausa skoðun ungra Sjálfstæðis-
manna, að sjávarútvegur verði um alla fyrirsjáanlega framtíð
meginatvinnuvegur þjóðarinnar. Þýðingarmikið er því, að útvegi
og fiskiðnaði verði jafnan veitt skilyrði til athafna, er geri þeim
kleift að inna af hendi hið veigamikla hlutverk í þágu þjóðarí
heildarinnar. Bent er á, að mikilvægt sé að taka tillit til fjár-
magnsins engu síður en vinnunnar. Ekki er sómasamlega að
sjávarútvegi búið, fyrr en sú staðreynd er viðurkennd, að mönn-
um beri að fá arð af fjármagni sínu. Þá telja ungir Sjálfstæðis-
menn framtíð sjávarútvegsins stefnt í bráða hættu verði ekki
hafnar samnlngaviðræður við efnahagsbandalögin í Evrópu nú
þegar. Um hagsmuni sjávarútvegs segir nánar í stefnuskrá Heim-
dallar á þessa leið:
„1. Skrásetja ber gengi íslenzku krónunnar í samræmi við
þarfir útflutningsframleiðslunnar. Leitazt verði við, að gengi
krónunnar verði sem stöðugast.
2. Að efla einkarekstur.
3. Auka ber fjármagn lánasjóða útflutningsframleiðslunnar.
4. Stilla ber vaxtakjörum á stofn- og afurðalánum í hóf,
þannig, að þau séu sambærileg við það, sem hliðstæðar atvinnu-
greinar annarra þjóða eiga við að búa.
5. Tryggja ber samkeppnisaðstöðu útflutningsframleiðslunnar
um vinnuaflið, þannig að óæskileg tollvernd skapi ekki öðrum at-
vinnugreinum óheilbrigða samkeppnisaðstöðu, er geri þeim
kleift að taka vinnuaflið frá undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinn-
ar og lækka lífskjörin með tiliiti til framtíðarþróunar í atvinnu-
málum.
6. Séð skal um, að freisi ríki í afurðasölumálum og að sala
sjávarafurða sé í höndum frjálsra samtáka framleiðenda eða
einstaklinga er verzla á grundvelli þjóðarhags."