Vísir - 22.11.1967, Page 16

Vísir - 22.11.1967, Page 16
&7M ii mum Valbjörk opnar nýja verzlun Húsgagnaverksmiöjan Valbjörk á Akureyri opnaöi um síðustu helgi nýja og glæsilega verzlun i 1000 fm. nýbyggingu að Glerárgötu 28. en þar hefur verksmiðjan verið að byggja sig upp undanfarin ár. Þetta nýja húsnæði mun hafa kost að nær 10 milljónir króna, og mun verksmiðjan þú byrja framleiðslu með nýjum hætti samkvæmt skipu- lagningu, sem gerð var af norska fyrirtækinu Industri Konsulent A.S. Eykst öll framleiðsla fyrirtækisins mjög með tilkomu þessa nýja hús- næðis, en fyrirtækið er nú orðið 16 ára gamalt. Stjórnendur og að- aleigendur Valbjarkar h.f. eru Jóhann Ingimarsson forstj., Berija- mín Jósepsson sölustj. og Torfi Leósson framleiðslustj. Sjalfkjörid í Sjómannafélaginu Kl. 22.00 hinn 20. þ. m. rann út frestur til ag skila listum tii stjómarkjörs i Sjómannafélagi Reykjavíkur. Aðeins einn listi hafði borizt, listi trúnaðarmannaráðs fé- lagsins og urðu eftirtaldir menn, sem þann lista skipa bví sjálfkjöm- ir, sem stjómendur félagsins fyrir árið 1968: Formaður Jón Sigurðsson, vara- formaður Sigfús Bjarnason, ritari Pétur Sigurðsson, gjaldkeri Hilmar Jónsson, varagjaldkeri Pétur H. Thorarensen. Meðstjórnendur: Karl E. Karlsson og Óli S. Barðdal. Varamenn: Bergþór N. Jónsson, Jón Helgason og Sigurður Sigurðs- son. „Áttu heima langt fró jolasveininum? — spurning banda- riskra barna til 5 ára IslendingS □ í haust settist fimm ára snáði á skólabekk á barnaheim- ili vestur i Minneapolis í Banda ríkjunum. Að sjálfsögðu þykir slíkt ekki í frásögur færandi, | nema snáðinn sé sérstakur að einhverju ieyti, og svo er ein- mitt um umrætt tllfclli. Þessi ungi maður, sem hér um ræðir, er nefnilega íslenzkur og heit- ir Snorri Skúlason, en faðir hans er læknir við „Northwest- em Hospital“ í Minneapolis. Blaðið „The Minneapolis Tribune“ segir frá fyrsta degi Snorra í barnaheimilisskólanum og birtir myndir af honum á- samt félögum hans í skólanum. Þar segir m.a. að fyrsti dagur Snorra litla hafi verið ævintýri líkastur, að Snorri sé fimm ára og hafi ekki talað orð í ensku þegar hann kom fyrst í skólann, en honum fari ört fram í ensku- kunnáttunni. Kennslukonurnar sögðu að Snorri hefði grátið fyrsta daginn í skólanum, enda hafi vo margir hlutir auk málsins verið honum framandi. Kennslukonurnar sögðu enn- fremur, að skólafélagar Snorra Snorri litli er þarna með skólafélögum sínum. Hann er á miðri mynd (með gleraugu). hafi verið honum mjög góð- ir, og það, sem liafi brotið ísinn hafi verið rauður mjólkur- kassi (ekki hyrna) sem lítil stúlka hafi fært honum og sagt aö opna og ennfremur hafi sú litla kennt honum fyrsta orðið í ensku. Og nú vill Snorri glað- ur fara í skólann á 'hverjum degi, að sögn móöur hans. Fröken Andrews, sem er einn af kennurum skólans, sagöi blaöamanninum frá einni kennslustundinni. Hún hafði spurt nemendurna: — Hvaö eigum við að kenna Snorra í dag? Margar smáar hendur voru á loftí og tillögurnar margar: Framh, á bls. 10. ELDSPYTNABRÉF FYRIR ÁRAMÓTIN Grafik-sýning í ameríska bókasafninu Geðvemdarfélagið hefur fengið leyfi tll að setja auglýsingar á eld- | spýtnabréf, sem koma á markað ! hérlendis og dreift verður af Áfeng- i is- og tóbaksverzluninni. Var leyfi i þetta útgefið 18. október 1966, en I síðan hefur Geðvemdarfélagið unn- | ið að söfnun og gerð auglýsinga, : sem birtast eiga á bréfum þessum, Um síðustu helgi var opnuð • sýning á 26 graflkmyndum í jAmeriska bókasafninu. Er sýn- <> ingin opin á sama tíma og bóka - safnið frá 12—9 mánud. mið- ' vikud. og föstud., en 12—6 þriðjudaga og fimmtudaga. — í Þessar 26 grafikmyndir eru 1 allar eftir núlifandi bandariska listamenn, og eru þær unnar með mismunandi grafíkaðferð um og still þeirra er mjög mis- munandi. Hefur aðsókn að sýn J ingu þessari verið góð, en gert o er ráð fyiir að henni ljúki 28. * nóvember. ; er þau koma til dreifingar. Ákveðið hefur verið að binda I kaup á fyrstu tveim milljónum eld- ; spýtnabréfanna við pólska fram- ! leiðslu og hefur skrifstofa félagsins j afhent öll nauðsynleg gögn, teikn- ! ingar og offsetfilmur til auglýsinga- prentunar fyrir 7 aðila, samtals I 250 þúsund eldspýtnabréf. Samkvæmt upplýsingum, sem Jón Kjartansson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverzlunarinnar, veitti, eru bréfin ekki komin til landsins ennþá, en hann kvaðst vona, að þau kæmu áður en langt um liöi, og að þau yrðu komin á markaðinn fyrir áramótin. Doktorsvörn á laugardaginn Laugardaginn 25. nóv. n.k. fer fram doktorsvörn við læknadeild Háskóla íslands. Mun Guðmundur Björnsson læknir þá verja rit sitt .Primary Glaucoma in Iceland'1 fyr- ir doktorsnafnbót í læknisfræði. — Andmælendur af hálfu lækna- deildar verða dósent Kristján Sveinsson og prófessor dr. Júlíus Sigurjónsson, 7000 sáu /,Hernámsárin,/ — Myndin nú synd i Stjórnubiói í fyrrakvöld var sýnd í síðasta i viö gerö myndarinnar er um 3 til sinn í Háskólabíói kvikmynd Reyn- 4 milljónir króna. is Oddssonar, „Hernáms:'. :n lC9j Ekki var hætt við sýningarnar 1945“. Myndin var frumsýnd á; vegna ónógrar aðsóknar, heldur þriðjudagskvöld fyrir rúmri viku, vegna þess að umsaminn sýningar- | þannig að sýningamar urðu rúm-; tími, ein vika, var útrunninn. Bú- lega 10 alls hér í Reykjavík. ast má við því aö myndin veröi Blaðið hafði í morgun samband ; nú hvað úr hverju sýnd úti á lands- viö skrifstofu Háskólabíós til að fá ; byggöinni, og nú gefst mönnum upplýsingar um áhorfendafjölda. j kostur á að sjá hana í Stjörnubíói Gert er ráö fyrir, að um sjö þús-! og Bæjarbíói. und manns hafi séð myndina, séu Einhvern tíma snemma á næsta frumsýningargestir meðtaldir. j ári er reiknað með að síöari hluti , Þetta þýðir að brúttótekjur af j myndarinnar verði tilbúinn, og sýningum nemg um 650 þúsund mun þegar hafa verið samiö um krónum, en áætlaður kostnaður I að fá hann sýndan í Háskólabíói. I Nýtízkuleg kirkja vígð á Ólafsvík □ Á sunnudag var vígð riý kirkja í Ólafsvík. Biskup fslands, herra Sigurbjörn Einarsson, vígði. Kirkja þessi stendur á áberandi stað í kauptúninu og er æði sérstæð í útliti, en það á að minna á seglskútu. - Kirkjan tekur um 300 manns í sæti og var fullskipuð. 0 iimmmmmmmxm Vígsluvottar voru séra Þor- grímur Sigurðsson prófastur á i Staðarstað og séra Magnús Guö mundsson, fyrrum prófastur í Ólafsvík, séra Sigurður Lárus- son fyrrum prófastur í Stykkis hólmi og séra Magnús Guð- mundsson £ Grundarfirði. Sóknarpresturinn i Ólafsvík, séra Hreinn I-Ijartarson, prédik- aði. Að lokinni vígsluathöfninni var altarisganga og þjónuðu sóknarpresturinn og biskup fyr ir altari. Fyrir athöfnina las séra Árni Pálsson í Söðulsholti bæn, en séra Hjalti Guðmunds- son í Stykkishólmi í lok athafn arinnar. Alexander Stefánsson, form. sóknamefndar Iýsti kirkjunni að lokinni vígslu og rakti bygg- ingarsögu hennar. Kirkjan h«f- ur verið í smíðum seinustu 6 árin, en mest hefur verið unnið við hana undanfarin fjögur ár. Ilákon Hertervik, arkitekt teikn aði kirkjuna. I kjallara kirkjunnar er rúm gott félagsheimili og var þar bQÖið til kaffidrykkju að lok- inni vígsluathöfn og barnaguðs- þjónustu, sem fram fór £ kirkj- unni á eftir. Er gizkað á, að þar hafi verið um 500 manns um daginn. Ekki er enn ákveðið hvað verður um gömlu kirkjuna i Ólafsvik, en að henni er nú orðið æði þrengt með fiskverk unarhúsum og athafnasvæði hafnarinnar er orðið allt um- hverfis hana. gMfifTfmB Bj.| IgS w (' :í * j KíniDi v HIB Sf

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.