Vísir - 06.12.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 06.12.1967, Blaðsíða 1
 HLJÓMAR Á VINSÆLDA- LISTA í BANDARÍKJUNUM ► Fyrir röskum hálfum mán- uði kom út hljómplata hjá risafyrirtækinu Columbia í Bandaríkjunum, sem er ekki tiltökumál — nema hvað að þessari plötu stendur íslenzk hljómsveit, og platan er á hraðrii leið upp vinsældalist- ana í hinum ýmsu fylkjum Bandaríkjanna. Hljómsveitin, sem á heiöurinn af plötunni, er auðvitaö hin geysivinsæla „HLJÓMAR“, sem hér á landi hefur borið höfuö og heröar yfir aöra aðila á sviði dægurlaga. Blaöiö hafði í morgun sam- band við Rúnar Júlíusson í Keflavík, en hann er einn' hljómsveitarmeðlima og hefur auk þess lagt gjörva hönd á margt. Hann sagöi, aö þeir félagar væru á samningi hjá hinu heims þekkta fyrirtæki Columbia tii eins árs í senn og fengju hundr- aðshluta af söluverði þeirra b'iómplatna, sem koma út eftir þá. Nýja platan heitir „Show Me When You Like Me“, og er nú þegar komin hátt á vinsælda- listum víða í Bandaríkjunum, t. d. í Michigan-fylki, sem telur um átta milljónir íbúa, eða um fjörutíu sinnum fleiri íbúa en allt fsland. Til þess að spilla ekki tungu og menningu íbúanna er textinn auðvitaö á ensku, en hljóðupp- taka fór fram í New York og Lundúnum. Rúnar var hógvær og vildi lítiö láta uppi um fyrirætlanir þeirra félaga, en sagði þó. að ef platan seldist vel, færu þeir sennilega utan um áramót til að ganga frá annarri fyrir þenn- an milljónamarkað. Síldarlöndun úr Ástþóri i Reykjavík i morgun. 40-50 skip í Jök- uldjúpi í nótt Mörg skip voru úti á Jökuldjúp- inu í nótt og leituðu síldar, lík- iega 40—50 skip. Blæjalogn var og ágætt veður til veiða, en árangur- inn varð sáralítill. Nokkrir bátanna fengu smáslatta, 5—15 tonn, en örfá skip voru með sæmilegan afla, eða upp í 70 tonn. Gígja Sandgerðl var með 40 tonn Hrafn Sveinbjamarson með 60— 70 tonn og var það með því skársta. Reynt verður að salta síldina og frvsta ef hægt verður, en lítil sem engin síld hefur borizt á land hér syöra í marga daga. Vona menn aö veiðin verði meiri næstu nótt í Jökuldjúpi. Engin veiði var í Breiðamerkur dýpi í nótt og ekki var kunnugt um veiði fyrir austan. Allmörg skip hafa nú snúið heim af Aust- fjarðamiðum en þar er þó Slangur af skipum eftir ennþá við veiðar. Hitaveitan bregst í gamla bænum HVERFIÐ HREINLEGA ÓlBÚÐARHÆFr — segja 'ibúarnir — Maður er hálfhræddur við að sofna vegna ungbarnanna í þess- um kulda, sagði ein af mörgum hrjáðum íbúum gömlu hverfanna 'í viðtali við Vísi í morgun, en segja má. að Hitaveitan hafi gjörsamlega brugðizt í þessum hverfum undan- farna daga. Ot yfir allt tók þó í gær að ekki vottaði fyrir heitu vatni í þessu hverfi frá því eftir hádegl þar til í morgun. Það verður að heimta opinbera rannsókn á starfsháttum Hitaveitunnar, sagði annar. Undanfarna daga hefur ekki dropi af heitu vatni komið úr krön um eftir kl. 2 á daginn, en hitinn á ofnunum hefur horfið miklu fyrr, ef nokkur hefur komið á annað borð. Okkur er Iofað bót á hverju ári og alltaf er verið að framkvæma eitthvað, sem á að vera til bóta, en ástandið heldur áfram að vera hið sama, vetur eftir vetur. Hverfið er hreinlega óíbúðarhæft. Gunnar Kristinsson verkfræðing ur Hitaveitunnar, sagði, að ekki væri aö vænta neinnar bótar á þessu ástandi fyrr en frostið gengur eitthvaö niöur. Vatnið í heitavatns tönkunum þraut alveg eftir há- degi í gær og ekki tðkst að safna neinu vatni sem nemur í nótt. Nýja kyndistöðin í Árbæjarhverfi er ekki ennþá komin í gagnið, en búizt er við að hægt verði að taka annan ketilinn í notkun í næstu viku og hinn skömmu síðar. Hann sagði að ástandið í þessu hverfi hefði verið alveg þaö sama síðan 1943. Vatnið hefði ætíð farið fyrst af því ojfoft jafnVel áður en vatnið í tönkunum hefur þrotið. :Ekki heföi gengið. sem skyldi að ráða böt á þessu ástandi en nú væri m. a verið að setja Frh. á bls 10 Volvo-grináirnar keyptar þrátt fyrír gengislækkm Breta — Volvo lækkar sennilega tilboð sitt ^ Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti nýlega kaup á 18 strætis- vagnagrindum frá Volvo-verksmiðjunum til viðbótar þeim 20, sem áður hafði verið samþykkt að kaupa. Nokkrar deilur urðu í borg- arstjórninni, hvort rétt væri að kaupa þessar 18 strætisvagna- grindur frá Volvo, en nokkrir borgarfulltrúanna vildu, að keyptar yrðu grint’ur frá Leyland-verksmiðjunum, þannig að samanburðar- reynsla fengist á þesum tveimur tegundum, en verð þeirra var mjög svipað. Þegar gengislækkunin varð, var i til endurskoðunar, vegna þess að „úizt við, aö taka yrði þessi mál I tilboð frá Volvo-verksmiðjunum í ísl. krónum hækkaði meir en til- boðið frá Leyland-verksmiðjunum í Bretlandi. — Innkaupastjóri Reykjavíkurborgar, Torben Frið- riksson, sagði í viötali við Vísi í morgun, að ekki yrði hætt við að kaupa strætisvagnagrindumar frá Volvo. Volvo-verksmiðjurnar hafa gripið til þess ráðs, að lækka verö á framleiðsluvörum sínum til þeirra landa, er hafa lækkaö gengi og kosta t. d. Volvo-bílar það sama Hafísinn nálgast Er nú 20 sjómilur norðvestur af Skaga — Mikið frost i nótt — Vegir yfirleitt færir Hafísinn hefur rekiö töluvert, inn nú aöeins 20 sjómílur norð- nær landi síöan í gær, er fréttist vestur af Skaga, eftir þvi sem Jón að íshröngl væri í kringum Gríms- as Jakobsson veðurfræöingur tjáöi ey og ræki suður á viö. Er hafís- blaðinu í morgun, og er enn norö- anátt fyrir Noröurlandi og virð- ist ísinn reka stööugt nær landinu. Er hafísinn óvenjulega snemma á feröinni í ár, og meðan norðan- áttin helzt má gera ráð fyrir aö ísinn haldi áfram að reka suður á viö. Mikiö frost var víöast hvar á landinu í nótt, norðanátt með élj- um norðanlands, en léttskýjað fyrir sunnan. Mest var frostið á Hverá- völlum,118 stig og 14 stig mældust á Hellu og á Nautabúi, en annars staðar var 8—11 stiga frost. í Reykjavik var 8 stiga frost í morg un. Spáð er 7—11 stiga frosti og norðanátt, . Vegir eru nú yfirleitt vel færir um allt land, en í gær var leiðin Reykjavík—Akureyri rudd svo og vegir á Vestfjörðum og leiðin vest ur á Snæfellsnes og í Dali. Hér í nágrenni Reykjavíkur er yfirleitt ágæt færð, en þó er Hellisheiðin ennþá ófær. í Danmörku nú og þeir kostuðu fyrir gengislækkunina þar í landi. Bretar hefðu hins vegar fellt nið ur 3% útflutningsbætur á sínum útflutningsvörum og er búizt viö, að sama hlutfall verði milli verð- tilboða þessara tveggja fyrirtækja. Torben sagði, að endanleg svör frá Volvo-verksmiöjunum varð- andi verö, hefði enn ekki borizt, en Torben fór utan um helgina m. a. í því skyni, að kanna, hvaða áhrif gengislækkunin hefði haft á tilboðin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.