Vísir - 15.02.1968, Blaðsíða 10

Vísir - 15.02.1968, Blaðsíða 10
70 Sameinað Alþingi. Áfram var haldið umræðu um fyrirspurn vegna framkvæmda- áætlunar fyrir Norðurland, en henni síðan frestað. Ræðumenn: Jón Kjartansson (F), Gísli Guðmunds- son (F), Ragnar Arnalds (Ab), Magnús Jónsson, ráðherra, Birgir Finnsson (A) og Benedikt Gröndal (A). Jónas G. Rafnar (S) mælti fyrir þingsályktunartillögu um fiskeldis- stöðvar. Þórarinn Þórarinsson (F) mælti fyrir þingsályktunartillögu um hlut- verk Seðlabankans. Gýlfi Þ. Gíslason, ráðherra, mælti fyrir þingályktunartillögu ríkis- stjórnarinnar um aðild íslands að G\TT. Hjalti Haraldsson (Ab) mælti fyrir þingsál.till. um verzlun meö tilbúinn áburð. Níý þingskjöl ingsályktunartillaga um að skipta í akreinar blindhæðum á þjóðvegum. Flm.: Halldór E. Sig- urðsson (F), Ingvar Gíslason (F), Eysteinn Jónsson (F). Þingsályktunartillaga um skipun nefndar til þess að rannsaka ýmis atriði herstöðvamálsins. Flm.: Ragnar Arnalds (Ab), Jónas Árna- son (Ab), Jón Sn. Þorleifsson (Ab), Lúðvík Jósefsson (Ab) og Geir Gunnarsson (Ab). Breytingartillaga um síldarútvegs nefnd — að hún hafi varnarþing og skrifstofur á Siglufirði, — sem Jón Þorsteinsson (A), Hjalti Har- nlds (Ab), Ólafur Jóhannesson (F) og Jónas G. Rafnar (S) flytja. Évorpsumræður — Framhald af bls. 16. '•’ingsetningu verði útvarpað stefnu yfirlýsingu forsætisráðherra og um- ræðum um hana í stað fjárlaga- -æðu og umræðu um hana. Síðari ; hluta hvers þings verði síðan út- varpað almennum stjórnmálaum- ræðum eitt kvöld, sem komi í stað eldhúsdagsumræðna, en verði þó styttri. Flutningsmenn frumvarpsins, Sig j urður Bjarnason (S), Benedikt Gröndal (A), Þórarinn Þórarinsson (F), Lúðvík Jósefsson (Ab) og Jón Skaftason (F), segja í greinargerð með frumvarpinu, aö nefndin hafi rætt ýmis fleiri atriði, en fjallað er um í frumvarpinu. En um aðrar til lögur en þær, sem felast I frum- j varpinu, hafi ekki orðið fullkomin samstaða' að svo stöddu, en nefnd- in standi óskipt að frumvarpinu. I frumvarpinu er að finna ný- mæli um rannsókn kjörbréfa og kjörbréfanefnd, en gert er ráð fyr- ir, að kjörbréfanefnd verði kosin fyrir allt kjörtímabilið til hægðar-- auka í sambandi við rannsókn kjör bréfa. í annan stað er lagt til — ef sæti efri deildar þingmanns losni — að þá skulj sá þingflokkur, er skipa á sætid, þegar varamaður kemur í staðinn, tilnefna mann úr sínum flokki til efri deildar í einu ákvæðinu’er gert ráð fyr- ir, að nefndarmenn í utanríkismála nefnd verði bundnir þagnarskyldu um þá vitneskiu, sem þeir fá í nefndinni, ef formaður eða ráð- herra kveður svo á. Ekkert fundizt af Trausta Ekkert hefur enn fundizt úr vél- bátnum Trausta frá Súðavík, en henn eru orðnir uggandi um aö báturinn hafi farizt. — Leitað var í alla nótt og um þrjátíu bátar auk tveggja flugvéla munu leita báts- ins í dag. Áætlunarsiglingar til Norfolk Hinn 17.' janúar s.l. var m s. Fjallfoss fyrst skipa F.í. til að koma við i höfn í Norfolk í Virginíufylki í Bandaríkjunum, en þaðan eru nú hafnar fastar farmsiglingar til fleátra hafna á íslandi. Tvö skip til viðbótar, Brúarfoss og Selfoss, munu koma við í Nor- folk með tveggja vikna millibili héðan í frá. Skip F.I. hafa siglt milli New York og íslands i um 50 ár og með því að fjölga viökomustöðum er vonað aö enn betri aðstaða skapist. 9 vinningar ósóttir hjó happdrætti ÍSÍ Enn eru ósóttir níu af vinning- unum í Happdrætti ÍSÍ. Númerin eru þessi: 19059, 13898, 53725, 4145, 27269 og 30934. Eigendur þessara miöa gcta sótt vinninga sína í skrifstofu ÍSÍ í Laugardal. sís — Framhald af bls. 1. eru nú að hefja rannsókn máls- ins, enda er mikið í húfi. Mun rannsókn m.a. beinast að Þvi, hvort SÍS hafi veitt bankanum villandi upplýsingar um söluhorf urnar vestra og fengið of há af- urðalán á fölskum forsendum. Um það verður ekkert fullyrt á þessu stigi málsins. Bak við þetta 50 milljón króna tjón liggja einhver mestu við- skiptalegu mistök síðustu ára. Er ekki víst, að SÍS geti, ef tii kemur, staðið undir því fjárhags- lega, enda var hagur þess ekki góður fyrir. Hestar hverfa — Framhald af bls. 1. landi, án þess að finna tangur né tetur af hrossunum sínum. — Aðrir munu og hafa flogið yfir ajréttum í nágrenni Reykjavíkur, án þess að hafa orðið neins varir. Aðalsteinn sagði, að það vekti I sérstaklega athygli sína, að aöeins j tamin og hagvön hross hafa horfiö. Ekki er vitað um nein hross önnur, sem hafa horfið sporlaust úr Mos- fellssveit. Ekki er vitaö til þess að strok hafi verið í neinu þessara hrossa, sem hafa horfið og ekki hefur fundizt einn einasti hestur upp á síðkastið, sem hefur misfar- izt. Páll Sigurðsson, hinn viðfrægi hestamaður, s3m kenndur er við Fornahvamm, hefur nýlega leitað um allt svæðið frá Skíðaskálanum suður á Reykjanes, þegar hann vgr að huga að hrossum sínum, en hann hefur ekki fundið tangur né tetur af týndu hrossunum. Talið er mjög ólíklegt, að hrossin hafi farið fram hjá Páli, ef þau hefðu haldið sig á þessu svæði. Þá hafa afréttir 'nýlega verið leitaðar, en ekkert hefur til hrossanna sézt. Það hefur aldrei gerzt áður, að hross hafi horfið í þessum mæli í Mosfellssveit. Þau sem hafa horfið, hafa alltaf verið komin fram á þessum tíma. Haglaust er nú til fjalla. Harðhjjarn yfir öllu og auð- velt fyrir hross aö komast til byggöa. Gunnar Tryggvason, sem vinnur við hesthús Fáks við Skeiðvöllinn, sagði að sér þætti þetta hvarf hrossanna með eindæmum. Hann hefur fylgzt mjög vel meö hross- um í nágrenni Reykjavíkur hin seinni • ár. Hann sagðist ekki geta gert sér neina grein fyrir því hvern- ig hrossin hafi horfið. Aðspurð- ur hvort hugsanlegt væri, að hross- unum hafi verið slátrað, sagði hann að það vaéru svo stór orð, aö hann gæti varla sagt þau. Þó væri ekki útilokað, að einhverjir hefðu gert það, eða selt hrossin í aðra landshluta. Hann sagðist vera þess fullviss, að hrossin hafi ekki verið seld úr landi. ÖIl hross, sem seld eru úr landi, fari í gegnum hend- urnar á Fák, en hann hefði sjálfur skoðað alla þá hesta, sem seldir hafa veriö út undanfarið. — Gunnar taldi hrossin, sem er saknað allt of mörg til þess að þau gætu hafa inisfarizt. I Borgarfirði er vitað um fjögur hross, sem hafa horfiö. Símon Teitsson, iárnsmíðameistari í Borg- arnesi, sagði að þrjú þeirra hefðu týnzt miög skyndilega í fyrravetur, en engin skýring hefði fengizt á hvarfi þeirra. — Þetta voru ýmist tamin eða hálftamin hross. Víðtæk leit hefur verið gerð að þeim, en án árangurs. Séra Sigurður Haukur Guðjóns- son er einn þeirra hrossaeigenda, sem hafa týnt sínum hrossum aust- anfjalls. — Hans hestur týndist frá Hvammi i Ölfusi. en hann veit um a.m.k þrjú hross, sem hafa horfið með dularfullum hætti nú rétt íyrir áramót. Eftirlitsskúp —i- Framhald af bls. 1. en fer á norðurslóöir til gæzlunn- ar. Brezkum togurum er bannað að veiða á miðunum fyrir norðan land, þar til eftirlitsskipið kemur bangaö og eru brezkir togaraeig- endur og skipstjórar ekki allir á- nægðir vfir því, eins og komið hefur fram í fréttum. Togaraskipstjórar koma saman í bessari viku til þess að ræða til- mæli, sem komið hafa fram um að hafa sérstaka eftirlitsmenn um borð í togurunum. en skipstjórarn ir eru ekki sagðir sérlega hrifnir af þeirri hugmynd. Fegurðarsamkeppni Framhald af bls. 1. margt fleira, mér finnst skemmtilegt að æfa nýjar hár- greiðslur ogi svo framvegis — Hvað ætlar þú að gera, ef þér býðst vinna erlendis eftir keppnina? — Þakka fyrir mig og fara heim. — Finnst þér svona gaman að starfinu? — Já. Að Iokum_ spyrjum við: — Ertu trúlofuð, eða farin að hugsa um slíkt? — Hugsa um slíkt... Nei, ég er ekki trúlofuð. - Ekki það? — Nei, alls ekki. Ekka endursýnd Framhald af bls. 16. arlega miklum sýningartíma og fyrir fólk, sem þegar væri búið að sjá myndina væri heldur fátt um nýtt efni eftir. VI S IR . Fimmtudagur 15. febrúar í9S8. Bíræfni — Framhald af bls. 16. veðrið, hafði piltur rennt sér niður af borðinu og var þotinn út um dyrnar. sem annar stráþur hafði haldið opnum fyrir hanri, en þær voru meö jannig útbúnaöi, að seinlegt er að opna þær. Hurfu báð- ir drengirnir út um dyrnar og sá stúlkan aðeins í hæla þeim. Þegar að var gáð, var saknaö heils búnts af 25-krónu seölum, poka með skiptimynt, sem verið hafði hjá peningakassanum. Auösjáanlega höfðu bessir þokka- piltar beðið þess. að sölubúðin tæmdist af fólki og’ stúlkan brygði sér inn fyrir, því að ekki höfðu beir verið í afgreiðslunni áður. Gat hún varla gefiö á þeim nokkra lýsingu, sem að gagni gæti komið, því að svo hratt hafði þetta skeð, að henni gafst enginn tími til þess að virða þá fyrir séí. Uppboð — Framhald af bls. 16. geti börnin hafið nám í venju- legurri skóla innan um heilbrigð talandi börn undir handleiöslu sérmenntaðs kennara. Hafa tuttugu myndlistarmenri gefið klúbbnum listaverk, sem boðin verða upp á skemmtun- inni og verða þar einnig skemmtiatriði og að lokum dans. Allur ágóði af skemmtuninni rennur i Styrktarsjóð klúbbsins, svonefndan Margrétarsjóð. Aðgöngumiðar að skemmtun- inni verða seldir eftir kl. 3 á sunnúdag og á föstudag og laug ardag í Gleraugnaverzluninni Fókus í Lækjargötu 6 B. íþróttir — Framh. af bls. 2: en íslendingar og Danir eru fjarri góðu gamni, eins og viö mátti búast. Islenzku piltarnir voru aftarlega í rööinni. Reynir Brynjóífsson 67 og hinir rétt á eftir, en rúmlega 90 voru ræstir i stórsviginu.'þar sem Frakkinn Killy vann sín önnur gullverð- lau . þau fyrri vann hann í brunkeppninni afar naumlega. Og nú bíður hans sá möguleiki að veröa þrefaldur OL-meistari, — því að svigiö er eftir og mun því ljúka á laugardaginn. en hefst á morgun. 1 gær unnu Norðmenn stóran sigur, 4X10 km. boðgönguna og höfðu menn þeirra yfirburðl f göngunni, en sveitina skipuðu þeir Odd Martinsen, Per Tyld- um. Harald Grönningen og Ole Ellefeæter, náði hver um sig beztum tíma í sínum spretti. í öðru sæti komu Svíar og í þriðja sæti Finnar. Það voru því 12 Noröur’ ridabúar, sem stóðu á verðlaunapallinum eftir þessa grein og norski bjóðsöngurinn hliómaði í fiallakyrrðinni. Erhard Keller frá V.-Þýzka- landi var annar sigurvegarinn í gær. Hann sigraði í 500 metra skautahiaupinu á 40.3 sek., en ísinn var 'akari en venjulegt er í Grenobie í gær. og enginn fór undir 40 sekúndurnar. Er sagt að Kelier sé sérfræðingur f brautinni í Daves. en á öðrum brautum nái hann vart neinum árangri að kalia. Magne Thom- assen frá Noregi og Bandaríkia- m ðurinn McDermott skiptu silfurverðlaunum milli sin á 40.5 sek. oe 4. varð Grisjin, Sovétríkjunum á 40.6 sekJ — Keppnin var því mjög hörð. BRLA Ég hef hvort eð er aldrei haft neina trú á að tölvur geti reikn- að út hæfileika fólks, svo að ég held bara að ég ráði yður. Vedrið i dag Austan gola bjart viðri og 6-10 stiga frost í dag. Þykknar upp mef vaxandi suðaust-1' anátt og dregur úr frosti í' nótt, sennilega snjókoma í fyrra- málið. HEIMSÓKNARTÍMI Á SJÚKRAHÚSUM ELihetmilið Grund. ' Alla i daga kl. 2-4 og 6.30-7 Fæðingardeild Landsspítalans Alla daga kl 3 — 4 og 7 30 — 8 Fæðingarheimili Reykjavíkur Ila daga kl 3.30—4.30 og fvrii feður kl 8—8.30 Kópavogshælið Eftir hádeg' daglega." Hvítabandið. Alla daga frá kl 3—4 og 7-7 30 Farsóttahúsið. Alla daga kl 3.30—5 og 6.30-7. Kleppsspítalinn Alla daga kl 3-4 op 6.30—7 A uglýsið i I ísi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.