Vísir - 26.02.1968, Qupperneq 1
Fjöldi verkalýðsfélaga
hefur ekki boðað verkföll
Vestfj'órðum, SuÖurnesjum, Snæfellsnesi og
og Noröurlandi hafa boðað verkföll
— Ekkert félag á
fá á Austur-
Tuttugu og tvö verkalýösfé-
lög hafa nú boöað verkföll til
Vinnuveitendasambands Is-
lands, en nokkur félög önnur
hafa boðað verkföil án þess aö
boða það til Vinnuveitendasam
bandsins. Athygli hefur vakið
að verkalýðsfélög á Vestfjörö
um hafa ekki boðað verkföil, né
heldur verkaiýðsfélög á Suður-
nesjum, Snæfeilsnesi og mörg
félög á Norður- og Austurlandi,
nema á Noröfirði, Fáskrúðs-
firði og Eskifirði.
Þó að mörg fjölmenn verka-
lýðsfélög hafi boðað verkföll,
hafa nokkur fjölmenn félög ekki
enn boðað verkföll, eins og t. d.
verkakvennafélagið Framsókn,
Sjómannafélag Reykjavíkur,
Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur og Landssamband verzl-
unarmanna. — Verkamannafé-
lagið f Vestmannaeyjum sam-
þykkti í gær heimild til verk-
fallsboðunar, en aðeins knapp-
1» 10. síða.
58. árg. - Mánudagur 26. febrúar 1968. - 48. tbL
Mikill vatnsagi á vegum landsins
Á Snæfellsnesi hafa ár flætt yfir vegina. Austur- um heigina, einkum við Hringbraut,
7 y 10. síða.
land er eini „þurri" fjórðungurinn sem stendur
■ Mikill vatnsagi liggur nú á yf-
irborði jarðar, vfðast hvar um land-
ið og stafar hann af því þíðviðri
sem verið hefur undanfarið og
frosti í jörðu. Páll Bergþórsson,
veðurfræðingur sagði blaðinu í
morgun, að úrkoman hefði verið
og væri mest um sunnanvert land-
ig og vestan, en á Austurlandi
væri hins vegar úrkomulaust og
bjartviðri. Mesta úrkoma mældist
í gær að Mýrum í Álftaven, 18
mm, en ekki væri um aftakarign-
ingu að ræða nokkurs staðar. Tals-
vert hefði rignt á Vestfjörðum fyr-
ir heigina og á Snæfellsnesi, en þó
væri ekki um aftök að ræða þar
heldur. Páll sagði að búast mætti
við flóðum ef svo héldi fram sem
horfir, en útlit er fyrir áframhald-
andi suðlæga átt og þíðviðri og
mundi sennilega hvessa í nótt.
Frostlaust væri um allt iand og
hltinn mestur upp í sjö stig hér
sunnaniands.
Eins og gefur að skilja, hafa
skapazt vandræði vegna vatnsins,
sem ekki nær að síga niður í jarð-
veginn vegna frostlagsins sem víða
er nokkuð þykkt og hefur blaðið
þá frétt eftir manni í Keflavík, að
þar hafi víða flætt inn í kjallara nú
Bjórgunin úr Hans Sif:
Keypti uppskipunarbát til
að aðstoða við björgunina
BOLLUDAGURINN
■ Bolludagurinn er ekki nema einu sinni á ári, og þá er um að
gera að taka hann snemma. Þetta sá Guðmundur Helgi Bragason í
hendi sér og vaknaði fyrir allar aldir til að flengja fjölskylduna.
Hér er hann að afloknum morgunverkum að borða bollurnar —
það er af nðgu að taka, svo að ekkert gerir til, þótt eitthvað af
rjómanum lendi út á kinnar.
Björgunin á síldarmjölsfarminum
úr danska skipinu Hans Sif hefur
gengið mjög vel. Þegar björgunar-
menn urðu frá að hverfa á föstu-
dagskvöld vegna vindáttar og sjó-
lags, haföi þeim tekizt aö bjarga
50 tonnum af síldarmjöli úr hinu
strandaða skipi.
Einar M. Jóhannesson, sem
keypti farminn fyrir 100 þúsund
kr., telur sig nú hafa hlotið dýr-
mæta reynslu í því, hvernig bezt
muni að ná því sem eftir er ó-
skemmdu. Björgunarmenn bíða nú
færis á að komast aftur út í skipið,
en Einar hefur fest kaup á upp-
skipunarbáti frá Ólafsfirði. Á bátn-
um er bóma, sem mun gera upp-
skipun úr lestum skipsins mun fyr-
irhafnarminni, en þessi 50 tonn,
sem nú eru komin, hafa björgunar-
menn handlangað upp úr framlest
skipsins.
Leiðangursmenn mældu út
strandstaðinn, og er skipiö rétta
500 metra frá Rifstanga og stendur
á réttum kili og er mjög stöðugt,
að því er virðist. Líklega mun þó
stórgrýti hafa gengið f gegnum
botn skipsins, en engar skemmdir
er á farminum að sjá af þess völd-
10. síða.
ÚTLIT FYRIR AÐ LOÐNUVEIÐIN
STÖÐVIST NÆSTU DA^'
Tvær verksmiöjur hættar aö taka á móti—fyrstu afleiöingar væntanlegra verkíaila
Loðnuveiðin, sem hefur verið að komast í fullan
gang undanfama daga, verður líklega stöðvuð á
næstunni, þar eð verksm'L' :-nar tak. ekki á móti
meiru vegna yfirvofandi verkfalla. Verksmiðjan í
Vestmannaeyjum, sem hefur tekið við mestu af
loðnuaflanum tekur ekki á móti meiri loðnu í bili,
vegna verkfallsboðunar verkaiýðsfélagsins í Eyj-
um. Verksmiðjan á Eskifirði er einnig hætt að taka
á móti, en þar hefur verið landað um 900 tonnum
síðustu daga.
Uröu bátar, sem ætluðu að
landa þar í gær að snúa sér
annað með afla sinn og eitt skip
Vonin, GK, varð að fara þaðan
út aftur með aflann og landa
honum á Neskaupstað. Þar lönd
uðu einnig í gær Jón Garðar,
Börkur og Birtingur, 80—270
tonnum hver.
Vísir hafði samband við
verksmiðjustjóra Síldarvinnsl-
unnar á Neskaupstað í morgun
og sagði hann að þar væri búið
að taka á móti á að gizka 14 —
1500 lestum af loönu. Sagði
hann útlitið mjög ískyggilegt,
þar eð verkalýðsfélagið þar
væri einnig búið að boða vinnu
stöðvun þann 4. marz. — Enn
þá er þó tekið á móti loðnu þar.
Eitt s)<ip að minnsta kosti fór
inn á Stöðvarfjörð með afla í
gær.
Enginn loðnuveiði var hins
vegar í gærkvöldi, gjóla á mið
unum. Allt útlit er fyrir að
loðnuveiðin leggist niður í bili
og verða það fvrstu afleiðing-
ar væntanlegra verkfalla, en ef
til þeirra kemur stöðvast að
■Hálfsögðu öll fiskvinnsla.
I morgun unnu starfsmenn borg-
arinnar við að hleypa vatni niður
í ræsin og notuðu til þess sérstök
verkfæri, eins og siá má á mynd-
inni. (Ljósm. Bragi).
Skoðanakönnun VÍSIS'
59.5% viijcs fó
Keflavíkursjónvcirp
í síðustu viku framkvæmdi
VÍSIR skoðanakcnnun í Reykja-
vik og nágrenni á því, hversu
mikill hluti fólks er hlynntur
því að fá að fylgjast með send-
ingum Keflavíkursjónvarpsins.
Haft var samband við 180
manns, sem valdir voru af handa
hófi, þannig að rétt úrtak feng-
ist. 59,5% voru fylgjandi Kefla-
víkursjónvarpinu, 26% á móti
því og 14,5% óákveðnir.
Skoðanakönnun VÍSIS um
Keflavíkursjónvarpið birtis* f
heild á 9. síðu blaðsins i dag.