Vísir - 27.02.1968, Qupperneq 10
10
V í SIR • Þriðjudagur 27. febrúar 1968.
Oveður —
»->■ 1. Síðu.
þeirra dælur komnar í gagnið
og uppteknar fram undir há-
degi. Hringingar komu frá
Kaplaskjólsvegi, Miklubraut,
Hlemmtorgi, Hraunbæ, Básenda,
Hvassaleiti og marga fleiri staði
í bænum mætti nefna.
„Þaö var hérna hnédjúpt
vatn hjá okkur í nótt í kjallar-
anum“, sagði einn þeirra, sem
mátti þola þaö, aö vatn flæddi
inn i íbúö til hans. Sigurður
Guðmundsson, símam. Miklu-
braut 9. „Við vorum nýbúin aö
kaupa teppi á gólfin fyrir 20
þúsund krónur og þau fóru
svona.“
Sigurður sagði, að vatnið
hefði komið úr tveimur niður-
föllum við húsið og fossaö nið-
ur kjallaratröppurnar og inn um
dyrnar. Skýringuna á þessu
taldi hann vera þá, að gatan
hefði verið áður eins og hafsjór,
og þegar ristarnar voru teknar
úr niðurföllunum i götunni og
vatniriu hleypt niður, þá hefðu
pípurnar ekki náð að flytja það
allt í einu, því hefði vatnið kom
ið upp úr niðurföllunum hjá hús
inu, en þau eru við sömu æö.
„Viö eru búin að þurrausa og
þurrka upp núna. Ég er mann
margur. Á þrjá uppkomna svni,
sem komu og hjálpuðu ökkur og
einnig hjálpaði okkur annað
fólk í húsinu. Annars lagðist
vatnið svo þungt á huröina, að
ég gat rétt með harmkvælum
opnaö hana, svo mikill var
vatnselgurinn.
Svipaða sögu og Sigurður hef-
ur margur að segja, en það var
pkki aðeins í íbúðir, sem vatnið
flæddi, þótt þar væri skaðinn til
finnanlegastur, heidur urðu ým-
is fyrirtæki fyrir barðinu á
vatnselgnum. Meðal annars
flæddi inn í Umferðarmiðst.,
en þar urðu skemmdir sáralitl-
ar.
Tíðindamaður Vísis spurðist
fyrir út á landi um vatnsaga,
en einnig var veður hvasst í
nótt og komst vindhraðinn upp
í 11 stig í morgun á Akureyri,
en ekkert illt hlotizt af. Á flest
um stöðum hafði vatn komizt
inn í hús, en hvergi mikil brögð
að því, nema í Reykjavík og
Hafnarfirði.
Vestmannaeyjar: (lögreglan):
Veörið er slæmt hérna núna
og vindur sunnanstqeður. Ekki
er okkur kunnugt um neinar
meiriháttar skemmdir, né flóð
af völdum vatnsagans. Eitthvað
mun hafa verið um að bátar
slitnuðu frá í nótt, • en enginn
mun hafa skemmzt alvarlega.
Enginn bátur réri í nótt og voru
bátar að tínast aö fram til
morguns, línubátar, trollbátar
og loðnubátar.
Hafnarfjörður: (lögreglan):
Okkur er kunnugt um
skemmdir af völdum flóða í
tveim húsum, en þau eru vafa-
laust fleiri sem fyrir skemmd-
um hafa orðiö, en ekki verið til-
kynnt til okkar. í öðru þessara
húsa var ibúð í kjallara og var
hnédjúpt vatn í íbúöinni. Dæla
var fengin til að dæla vatninu
og mun hún hafa undan. Vatnið
sem flæddi í húsin er blandað
aur og eru skemmdirnar því
meiri en eila. Mikið hefur flætt
um götur hér í Hafnarfirði og
víða runnið úr þeim. Hefur orð
’ið að loka sumum þeirra, t. d.
Suðurgötunni, við svokaliaða
IUubrekku og Lækjargötunni
við neðri brúna.
Selfoss: (lögreglan):
Það er ekki sérlega mikið
vatnsmagn 1 Ölfusá miðað við
venjulegar aðstæður, en hins-
vegar mun vera talsvert vatns-
magn hér efra, t. d. í Laxá í
Hrunamannahreppi, en hún
mun flæða yfir bakka sína. Hér
var talsvert hvassviðri í nótt og
hitinn fimm til sex stig. Ekki
er okkur kunnugt um að vatn
hafi flætt í íbúðanhús, enda virð
ist þaö ekki safnast saman við
húsin.
Málarar —
m-:y 16. siðu.
Helzti hvatamaður að stofnun
þess félags, sem nú hefir stanfað
óslitið í 40 ár, var Einar Gíslason,
og fékk hann til liðs við sig fimmt-
án aðra málarameistara, svo að
stofnendur urðu alls sextán. Þeir
voru, auk Einars, Ósvaldur Knud-
sen, Daníel Þorkelsson, Jón Jóns-
son, Eiríkur K. Jónsson, Guðmund-
ur Bjarnason, Ágúst Lárusson,
Kristinn Andrésson, Helgi Guð-
mundsson, Guðbergur Jóhannsson,
Jón Hjaltalín Kristjánsson, ísleifur
Jakobsson, Kristján Möller, Guð-
mundur Filippusson, Hannibal Sig-
urðsson og Sigurður Kr. Guðlaugs-
son. Sex hinir fyrst töldu eru enn
á lífi.
Fyrstu stjórnina skipuðu þessir
menn: Formaður Einar Gíslason,
ritari Ágúst Lárusson og gjaldkeri
Helgi Guðmundsson.
Eins og gefur að skilja hefir
starfsemi MMFR verið fjölþætt, en
í aðalatriðum skiptist hún í tvo
þætti — annars vegar hefir verið
aukin og bætt menntun stéttarinn-
ar, hins vegar bætt kjör þeirra,
sem liafa valið sér málaraiðnina að
ævistarfi.
Stofnendur MMFR voru 16, eins
og getið var í upphafi þessa máls,
en nú eru aöalfélagar 82 talsins,
og nærfellt tuttugu menn eru á
aukaskrá. Félagið hefir alls kjörið
sex heiðursfélaga, þar af tvo út-
lenda forvígismenn málarasamtaka.
Af þeim fjórum íslenzkum málara-
meisturum, sem hlotið hafa þenna
heiður, er nú aðeins einn á lífi,
Einar Gíslason, fyrsti formaður fé-
lagsins. Hinir látnu heiðursfélagar
voru Kristinn Andrésson, Hannibal
Sigurðsson og Guðbergur Jóhanns-
son.
1 stjórn Málarameistarafélags
Reykjavík eru nú þessir menn:
Eormaöur Kjartan Gíslason, vara-
formaður Óskar Jóhannesson, ritari
Guðmundur G. Einarsson, gjald-
keri Einar G. Einarsson og með-
stjórnandi Sigurður A. Björnsson.
Aðalfundur
Glímufélagsins Ármanns verður haldinn mið-
vikudaginn 28. þ. m. í 'fjarnarbúð og hefst kl.
21.00.
Stjóm Glímufélagsins Ármanns.
Nokkur notuð
skrifborð, stólai, kollar, eldhúsborð, ísskápar
og hillur til sölu á Grettisgötu 2a, 2. hæð.
Til sýnis frá kl. 1 í dag, þriðjudag.
ÁSBJÖRN ÓLAFSSON, heildverzlun.
Flugvöllur —
16. sfðu.
yrði til félagsins framkvæmda-
stjóri og síðan héldi félagið
námskeið og gæfi út bæklinga
um ferðamálafyrirgreiðslu ýmiss
konar.
Allmargar tillagnanna náðu
fram að ganga og þar á meðal
ein þess efnis, að skorað væri
á viökomandi aðila að gera Ak-
ureyrarflugvöll að fullkomnum
varaflugvelli fyrir millilanda-
flug.
Það kom fram á fundinum, aö
f framtíðinni væri fyrirhugaö að
efna til fleiri slíkra ráöstefna
SMITH -CORONA
30 GERÐiR
Stórkostlegt úrval rit-og reikni-
véla til sýnis og reynslu i nýjum
glæsilegum sýningarsal;
ásamt Taylorix bókhaldsvélum og
fullkomnum samstæðuni skrifstofu-
húsgögnum
SKRIFSTOFUTÆKNI
Ármúla 3, slnil 38 900.
um ferðamál af hálfu bæjar-
stjórnarinnar, einnig eftir að
Feröamálafélagi Akureyrar hefði
aukizt þróttur.
Verkfall —
1. Síðu.
taka atvinnurekenda að semja um
laun og vísitölubindingu og mun
ríkisstjórnin því sennilega í sam-
ræmi við þá yfirlýsingu, ekki taka
frumkvæöið í þessari deilu um
verðtryggingu launa.
Allmörg verkalýðsfélög boðuðu
vinnustöövun í gær, en að því er
Snorri Jónsson, skrifstofustjóri
ASÍ er búizt við að nokkur að-
ildarfélög ASl muni boða verkföll
í dag til viöbótar þeim félögum,
sem þegar hafa boðað verkföll.
Ef af yfirvofandi verkföllum
verður, munu margar mikilvægar
þjónustugreinar lamast, en í því
sambandi hefur vakið sérstaka at-
hygli, að félag aðstoðarstúlkna á
sjúkrahúsum, Starfsstúlkna-félagið
Sókn, hefur boðað verkföll. — Að
því er Sigurður Helgason, skrif-
stofustjóri á skrifstofu Ríkisspít-
alanna, sagði í viðtali við Vísi í
morgun, er ógerlegt að reka sjúkra-
húsin án aðstoðarstúlknanna, enda
hefur það aldrei gerzt, að þær hafi
‘farið í verkföll. — Framkvæmda-
stjóri ríkisspítalanna hefur boðað
-forvígismenn Sóknar á sinn fund
í dag, þar sem reynt verður að
semja við félagið.
Matvörudreifing mun stöðvast ef
til verkfallanna kemur og að því
er Stefán Bjömsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, er ekki útlit
fyrir annað en alveg taki fyrir
mjólkurdreifingu, ef af verkföllun-
um veröur. „Það verður ekki fyrr
en nær dregur þessum ósköpum,
sem hægt verður að kanna, hvort
haegt veröur aö fá undanþágu fyrir
mjólk handa ungbörnum", sagði
Stefán í morgun. — öll starfsemi
Mjólkursamsölunnar mun stöðvast,
þar sem bæði mjólkurfræðingar og
afgreiðslustúlkur í mjólkurbúðun-
um hafa boðað verkföll.
Öll dreifing olíufélaganna mun
stöðvast, en s* '.rfsmenn þeirra hér
í Reykjavík eru í Dagsbrún. Ekki
liggur ljóst fyrir ennþá, hvort unnt
verður að fá undanþágu til að af-
greiöa olíu til húsakyndinga. ef til
verkfalla kemur.
Félög, sem þegar hafa. boöað
verk-föll eru:‘
KAUP-SALA
Hvítur, síöur kjóll nr. 12 til sölu.
Ónotaöur. Væri hægt að nota sem
brúöarkjól. Selst ódýrt. Sími 22814.
i-iM i i i i i n i i.i 11111111 n i i i i im 11
Æ\allett
LEIKFIMl ~
JAZZ-BALLETT
Frá DANSKIN
Búningar
Sokkabuxur
Netbuxur
Dansbelti
Margir litir
Allar stærðir
Frá GAMBA
Æfingaskór
Svartir, bleikir, hvitir
Táskór
Ballet-töskur
I IIIIIIIMI I I I I I I
S(MI 1-30-76
I II I I I I I I I II II
BELLA
Blessuö vertu ekki aö hafa á-
byggjur þó að !>ú hafir gleymt að
skrúfa fyrir gasið, ég er alveg
handviss um að ég gleymdi að
skrúfa fvrir eldhúskranann.
riLKYNNINGAR
Kve.ifélag Hallgrímskirkiu
heldur fvrsta fund sinn í hinu
nýja félagsheimili i norður-
álmu kirkjunnar fimmtudaginn
29. febrúar kl. 8.30 e.h. öldruðu
fólki f söfnuðinum sérstaklega
boðið. Strengjasveit úr Tónlist
arskólanum leikur. Svava
Jakobsdóttir rithöfundur flytur
frásögubátt. Báðir sóknarprest-
arnir flytia ávarn Kaffi fGen.e
ið um nnrXnrdvr'l Stiórnin.
í Reykjavík:
ASB (félag afgreiðslustúlkna i
mjólkurbúðum), Bakarasveinafélag
íslands, Bifreiðastjórafélagið Sleipn
ir, Bókbindarafélag Islands, Félag
bifvélavirkja, Félag blikksmióa,
Félag ísl. kjötiðnaðarmanna, Félai.
járniðnaðarmanna, Hið ísl. prent
arafélag, Iðja félag verksmiðjutoiK.v
í Reykjavík, Málarafélag ReyKja
víkur, Mjólkurfræðingafélag Is
lands, Nót, sveinafélag netagei,.'
manna, Starfsstúlknafélagið sokii
Sveinafélag húsgagnabólstrai a
Sveinafélag húsgagnasmiða, Sve-n:
félag pípulagningarmanna, Sveind
félag skipasmiða. Trésmiðateuii
Reykjavíkur, Verkakvennafélagn
Framsókn og Verkamannafélaau
Dagsbrún.
Þetta eru alls 21 félag og ol
stærstu launþegafélög i Reykjavif
en Verzlunarmannafélag Reykja
víkur, sem er eitt hið stærsta hefui
ekki boðað verkfall enn sem kom
ið er. — Nokkur smáfélög hafa ekk
boðað verkföll. en líklegt er að eitt
hvert þeirra hafi gert það án besí
að vitneskja ligg; fyrir um það
Utan Revkjavíkur:
Öll verkalýðsfélögin í \rnes
sýslu ,Félap byggingariðnaðar
manna Járnsmíðafélagið, Verka
lýðsfélag Hveragerðis. Þór. Verka
lýðs- og sjómannafélagiö Biarmi
Bára Ökuþr.-. Verkalvðsfélai
Akraness Bílstjórafélag Akurevrar
Eining á Akure\'ri Tðia á Akureyr’
og Hafnarfirði. Verkalýðsfélag
Norðfirðinga Aldr á Sauöárkróki
Vaka Siglufirði. Verkalýðsféiar
Vestmannaeyja, Verkalýðs- og sjó
mannafélag Fáskrúðsfirði, Árvakur
Eskifirði. Verkalýðsfél, Raufarhafn-
ar, VeJ-kalýðsfélag Borgarness og
Verkalýðsfélagið Baldur á Isafirði,
sem er fyrsta verkalýðsfélagið á
Vestfjörðum, sem boðar verkfall.
b«B»!»»SSW«l
rfíHKœ