Vísir - 26.03.1968, Síða 1
■ Nú hefur verið leitað í hverjum krók og kima allt bæjar-
landið, vestan frá Suðurgötu austur að Elliðaárvogi og
suður í Fossvog, að Haraldi litla Bjarnasyni, 3 ára, sem hvarf
að heiman frá sér að Gullteigi 18 um kl. 14 í gær.
■ Leitarflokkar ganga nú fjörur og Ieitað er á 2 bátum
sjó, en fjórir froskmenn úr björgunarsveitinni „Ingólfi“
leita í sjónum við Laugarnes, undan fjörunni, þar sem stíg-
vél Haralds litla fundust í gærkvöldi, en einnig er leitað
úr þyrlu.
DRENGURINN ENN OFUNDINN
EFTIR TÓLF STUNDA LEIT
Mnj
Leitað úr þyrlu, úr bátum og af köfurum við
Laugarnesfjörur, bur sem stigvélin fundust
Þúsundir manna hafa nú tekið
þátt í leitinni og hefur nálega
hverjum steini verið velt við
á öllu bæjarlandinu. —
Drengsins var saknað að heiman
nokkru eftir kl. 2 í gærdag en
þá hafði hann farið út að leika
sér. Síðast sást hann á Sund-
laugavegi um kl. 14.30, en kona
nokkur taldi sig hafa séð dreng,
sem lýsing Haralds ætti við,
uppi í Mávahlíð síöar um dag-
inn.
Haraldur var klæddur bláköfl-
óttri úlpu í bláum buxum og
bláum stígvélum, en með gráa
húfu á höfði.
Foreldrarnir, Bjarni Sigfússon
og Aðalheiður Haraldsdóttir, til-
kynntu lögreglunni hvarf drengs
ins um kl. 16.30 og skipulögð
leit var hafin um kl. 20 í gær-
kvöldi.
I leitinni tóku þátt björgunar-
sveitir Slysavarnafélagsins f
Reykjavík, Kópavogi, Hafnar-
firði og hjálparsveitir Skáta f
> io dða
»«-;.... w ... ;•
Fjórir froskmenn úr „Ingólfi" Ieituðu f sjónum við Laugarnes, en margir fleiri voru reiðubúnir.
'
Leitað var úr bátum með fjörunni.
ísinn að f jarlægjast fyrir
öllu Norðurlandi
— Austlæg átt hefur hrakiö isinn frá i nótt
ÞOTA FERST í
LANDHREPPI
Flugmaðurinn bjargaðist i fallhljf — sveif 8
km. og lenti órugglega 70 km. frá flakinu
Greinilegt er að hafísinn er nú
að hverfa frá landi í bili, o« í
morgun bárust Veðurstofunni ís-
fregnir frá ailmörgum stöðum allt
frá Horni og austur að Sléttu og
segir í beim flestum að ísinn sé ört
að fjárla*gjast landið, enda komin
austan og suð-austanátt fyrir öllu
Norðurlandi. ísinn var oröinn land-
fastur við Horn og Sléttu f gær og
um bað bil að loka algerlega sigl-
ingaléiðum. Má bví segia að aust-
anáttin hafi biargað miklu f bili,
en ef norðanáttin hefði verið áfram
hefði fsinn fyrirsjáanlega lokað öll
7 vilja kaupa Ægi
Gunnar Bergsteinsson hjá Land-
helgisgæzlunni veitti blaðinu þær
upplýsingar í morgun, aö alls hefðu
borizt sjö tilboð, sem nú eru í
athugun hjá dómsmála- og fjár-
málaráðunéyti.
Ekki er unnt að segja fyrir um
hverju tilboðanna verður tekið, því
að þótt tilteknar séu ýmsar fjár-
hæðir frá hálfri milljón upp í 800
þúsund, fela tilboðin í sér ýmis
skilyrði, en áður en langt um líð-
ur mun þó verða ákveðið, hverju
tilboöanna verður tekið.
um siglingaleiðum fyrir Norður-
landi.
ísspöng lokaði höfninni í Gríms-
ey f gærdag, en í skeyti þaðan í
morgun segir að nú sjáist aöeins
smáísjakar á reki hratt undan vindi
til vest-norð-vesturs. 8 vindstig
voru þar í morgun og vindur aust-
suð-austlægur. Höfnin var þó enn
full af ís og höfðu allir bátar ver-
ið settir á land. í fsfregn frá
Skoruvík í morgun segir að ísinn
sé að mestu horfinn, en nokkrir
dreifðir ísjakar sjáist þó ennþá.
Biaðið hafði samband við Raufar-
höfn í morgun, og var allur ís horf-
inn þaðan, utan örlítið hrafl, en í
gærdag var þar mikill ís. Á Mán-
árbakka var enn töluverður ís í
morgun en í ísfregn frá Siglunesi
segir að það sem landfast var af
ís í gær, hafi nú losnað og reki
frá landi. Á Kjörvogi voru í morg-
un smáísjakar dreifðir á firöinum
og nokkrir jakar landfastir norðan-
megin fjarðarins. Islaust var að
sjá úti á flóanum. Á Hrauni á
Skaga hefur fsinn rekið frá landi,
en ísrönd sést til hafsins. Á Horn-
bjargsvita sést enn hvaðanæva í ís-
en hann er víðast hvar að losna frá
landi og stórar vakir myndast hér
og þar og er mikil hreyfing á
ísnum. Siglingaleið er þar ennþá
ógreiðfær. Ekki er gert ráð fyrir
norðanátt á næstunni, en spáð
hvassviðri og suð-vestanátt með
kvöldinu.
Herflugvél frá Keflavíkurflugvelli
fórst í. gærkvöldi á 7. tímanum í
svonefndum Fellsmúla, sem er í
suðurenda Skarðsfjalls í Land-
hreppi. Flugvélin var á venjulegu
eftirlitsflugi, þegar vélarbilun átti
sér stað að því er segir í tílkynn-
ingu frá varnarliðinu í gærkvöldi.
Flugmaðurinn i vélinni, sem er af
geröinni F-102 komst út úr vél-
inni'Og lenti í um 10 km. fjarlægð
frá vélinni, — hafði svifið um
8 km. í fallhlíf sinni. Fólk á bæjum
í nágrenninum horfði á flugmann
inn svffa rólega til jarðar, en hann
lenti hinum megin við Fellsmúla.
Lögðu menn þegar af stað til að
hyggja að flugmanninum, sem
reyndist ómeiddur, þegar að var
komiö.
Um 8-leytið í gærkvöldi ræddi
Vísir viö hreppstjórann á Skarði,
Guðna Kristinsson, en flugvélin
fórst röskan kílómetra frá bænum.
Hann sagöi1 að geysileg sprenging
hefði oföið, þegar vélin steyptist
til jarðar og væri flakið dreift yfir
10. síóa
msm
Tvær þotur af F-102 gerð hefja sig til l'lugs af Keflavíkurflugvelli. (Ljósmynd BS)