Vísir - 26.03.1968, Page 3
#
s sm
■ ■
‘VÍSIR . Þriðjudagur 26. marz 1968.
Það fennti upp í gluggakisturnar....
Fennt í hliðið og hátt upp
dyrnar.
á
Göturnar í Eyjum voru eins og heimskautaslóðir.
v«mw íwJC wu
Kaprí norðursins"
i snjo
TTann snjóar jafnt í Antark-
tíku og Eyjum. Sannkölluð
heimskautaveðrátta hefur geng-
ið yfir Vestmannaeyjar, jjessa
„Kaprí norðursins“, svo að þar
muna menn ekki annað eins.
Fárviöri gekk yfir bæinn með
hríðarbyljum og segja fróðir
menn að vindhraðinn hafi nálg-
azt skæðustu hvirfilbylji. —
Hríðarhófið var svo mikið þar
á tíma, að ekki var hundi út sig-
"andi, hvað þá öðrum, enda
héldu eyjaskeggjar sig lengst
af inni meöan ósköpin gengu
yfir. Skólum var lokað og fólk
varð innlyksa þar sem það
var statt, kannski á öðrum
bæjum.
Þá er veðrinu slotaði og menn
leituöu útgöngu úr húsum sín-
um, var það ekki í alla staði
svo auðvelt, þar sem stóra
skafla hafði skafið fyrir dyr og
glugga. Nam snjódyngjan víða
við þakskegg og einn bær upp
undir fjalli var gjörsamlega á
kafi og urðu glöggir menn að
taka mið af kennileitum, sem
upp úr stóöu til að komast að
honum með rekum. Bjuggu þar
fulloröin hjón og var gerður
út leiðangur til þess að grafa
niður aö húsdyrum þeirra.
Á föstudagsmorgun, þegar
mestum snjó haföi kyngt niður
fópu menn um götur bæjarins
á ytum og hruðu það mesta af
sköflunum, svo að fiski yröi
komið til vinnslu í frystihúsum.
Hófst síðan snjómokstur við
hvers manns dyr og bærinn
vaknaði smám saman til lífsins
eftir ósköpin.
Þeir eyjaskeggjar eru að vísu
vanir veðrum stórum, enda
mælast mestir vindar hér um
slóðir á Stórhöfða. Hins, vegar
eru þeir óvanir slíkum snjó-
þyngslum. Þar festir snjó varla
um langa vetur þó að allt sé
á kafi f fönn uppi á íslandi. —
Muna elztu karlar ekki öllu
stærri skafla í Eyjum, nema ef
ver^ skyldi fannaveturinn 1928
og var hann þó öllu minni
þessu.
Veður hefur nú gengið yfir,
komið blíðskaparveður og sól-
bráð í Eyjum. Láta Vestmanna-
eyingar .slíkar hamfarir lítið á
sig fá, enda ýmsu vanir, bæði
ís og eldum.
Þannig var komið farkostum eyjaskeggja .
---------!------------------------
SINFÓNIUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Skólatónleikar
í Háskólabíói miðvikud. 27. marz kl. 10.30
og kl. 14.00 og fimmtudag 28. marz kl. 14.00.
Börn, sem eiga áskriftarmiða að tónleikum
27. febrúar komi á tónleikana miðvikudaginn
27. marz kl. 10.30 (ekki fimmtud. 28. marz
eins og stendur á miðanum) og börn, sem eiga
áskriftarmiða 26. febrúar kl. 14.00 komi nú
miðvikud. 27. marz kl. 14.00 Aðgöngumiðar
að tónleikunum fimmtudaginn 28. marz kl.
14.00 eru seldir í skólunúm og í Ríkisútvarpinu
Skúlagötu 4.
y