Vísir - 26.03.1968, Blaðsíða 12
72
V í SIR . Þriðjudagur 26. marz 1968.
il von. Jafnvel þótt hann kæmist
að varðmanninum áður en hortum
gæfist tími til aö bregða fyrir sig
rifflinum, mundi hann reka upp
óp og vara landa sína við. Corey
staröi á ljóskúluna yfir hliðinu og
ósjálfrátt fylgdi hann rrieð aug-
unum raflínunni, sem hékk niður
með hliðstaumum, en lá síðan með
fram girðingunni alllangan spöl, að
lítiili orkustðð, sem stóð 'þar ein
'sér.
Þá skreiö Corey að girðingunni,
þar sem kjarrið óx alveg að henni.
Hann skar efri hlutann af grönn-
um bambusteinung með sveðju
sinni, gerði rauf ofan í hann, tókst
að láta hann grípa utan um raf-
línuna og draga hana út fyrir girð-
inguna.
Hann athugaði línuna gaumgæfi-
lega. Hún var af ódýrri gerð, tveir
einangraðir Vírar, en einangrunin
brædd saman á hliðum. Hann
Fyrir aðeins kr. 68.500.oo getið þér fengið staðiaða
eldhúsinnréttingu í 2 — 4 herbergja ibúðir, með öllu tll-
heyrandi — passa f flestar blokkaribýðir,
Innifalið I verðinu er:
0 eldhúsinnrétting, klædd vönduöu plasti, efri
og neðri skápar, ásamt kústaskáp (vinnupláss tæpir 4 mj.
0 ísskápur, hæfilega stór fyrir 5 manna fjölskyldu I
kaupstaö.
HuppjþvottavéK (Sink-a-matic) ásamt eldhúsvaski.
Uppþvottavélin þvær upp fyrir 5 manns og að auki má nota
hana til mfnniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi).
0 eldarvélasamstæða með 3 hellum, tveim
ofnum, grillofni og steikar- og bökunarofni. Timer og önnur
nýtizkú hjálpartæki.
0 lofthreinsari, sem með nýrri aðferð heldur eld-
húsinu lausu við reyk Og lykt. Enginn kanall — Vinnuljós.
Allt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söluskattur
innifalinn) Ef stööluð innrétting hentar yður ékki gerum við
yður fast verðtilboð á hlutfallslegu veröi. Gerum ókeypis
Verðtilböð f éldhúsinnréttingar f ný og gömul hús.
Höfum einnlg fataskápa. staðlaða.
- HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKfLMÁLAR -
K
mJLM
m íiiss
IIM
K I RKJUHVOLI
REYKJAVfK
S f M I 2 17 16
klauf einangrunina gætilega með
oddinum á sveðju sinni og skóf
hana síðan af öðrum þræöinum.
Meöan hann var að því, snart lín-
an gaddavírsgirðinguna örlítið, en
samt nóg til þess, að dósirnar, sem
á hana voru hengdar, tóku að
glamra lítið eitt. Vörðurinn við hlið-
iö var ekki lengi að bregða við þótt
syfjaöur sýndist, brá rifflinum óð-
ara fyrir sig og skimaði allt í
kring.
Corey hafði aldrei verið sérlega
trúhneigður maður, en nú varð hon
um það ósjáifrátt á að biðja. Og
sem svar við bæn hans fór
dálítil gola um ásinn í sömu svif-
um, dósirnar í giröingunni glömr-
uðu hver í kapp við aðra og vörð-
urinn fann gustinn leika um andlit
sér. Og vöröurinn glotti, hallaði
sér aftur upp að hliöstaumum og
lygndi aftur augunum. Corey hét
því með sjálfum sér að koma bet-
ur fram við herprestinn á næstunni,
ef um nokkuð á „næstunni" yrði
þá að ræða.
Hann sneri sér aftur að raflín-
unni. Skóf einangrunina gætilega
af þræðinum, og skar hann síðan
sundur með einu hnífsbragði. Um
leið varð myrkt við hliðið. Vörö-
urinn bölvaði Iágt á japönsku,
þetta voru lélegar ljóskúlur, og oft
kom fyrir að þær brunnu út, svo
honum fannst það ekkert grunsam
legt í sjálfu sér. En nú varð hann
að kalla á liðþjálfann fyrir bragðið,
og vafalaust var liðþjálfinn að
skemmta sér við einhverja vændis-
drósina, og ekki að vita hvenær
'hann gæfi sér tíma til að skipta
um ljóskúlu. Auk þess var hávaö-
inn þar inni svo mikill, að með öllu
óvíst að nokkur hevrði kallið,
hugsaði varðmaðurinn, það gat því
■eins fariö svo, að hann yrði að
standa þarna í myrkrinu fram á
nótt. Og á meðan hann var í þess
um hugleiðingum, var armi laumað
hljóðlega fyrir kverkar honum og
hert að, leiftursnöggt, svo hann
kom ekki upp minnsta hljóði, sam
tímis því að sveðjublaði var stung-
ið*uridir vinstra herðablaðið og lag-
inu fylgt fast eftir. Að því búnu
batt Corey hann við staurinn með
belti hans, svo ekki sáust þess
nein merki spölkorn að, aö varð-
maðurinn stæði þar steindauður.
Þaö tók Corey svo ekki nema
andatak að snúa saman sundur-
skorna vírþráðinn og ljósið yfir
hliðinu kviknaði samstundis aftur.
Corey gat ekki að sér gert að dást
að því hve varðmaöurinn hallaði
sér eðlilega upp að staurnum. Há-
reystin inni á skernmtistaðnum var
jafnvel meiri en nokkru sinni fyrr.
Það leyndi sér ekki, að þar ríkti
gleði mikil og glaumur.
Corey lá nokkurt andartak í
runna skammt fyrir utan hliðið og
athugaði sjálfan skemmtistaðinn
eins nákvæmlega og unnt var þaö-
an. Ekki var nein lifandi vera sjá-
anleg þar úti. Corey renndi sér
sem næst varðmanninum inn um
hliðið og hvarf úr ljósbjarmanum
inn í rökkrið innan giröingarinnar.
Hann smaug hljóðlega framhjá
nokkrum byggingum, nam andar-
tak staðar undir viðarhlaða þar
sem myrkan skugga bar á, og var
nú kominn að sjálfu tehúsiriu, þar
sem ijós skein út um hverja
smugu. Hann gat ekki annað en
dáð fegurð bvggingarinnar, þótt
hún væri ekki ^tór. Það var eins ;
og örsmáum hluta af því, sem feg- ’
urst var í Japan, hefði verið komið j
fyrir þarna uppi í fjöllum á Fil- |
ippseyjum — japanski garðurinn j
kringum húsið, brúin, sjálft húsið ;
reist á stoðum i tjörn, sem gra-fiö
hafði veri til, blikandi Ijósglamp-
arnir í lygnu, myrku vatninu. Með
fram allri byggingunni lágu við-
arsvalir með handriði. Hann gat
greint lágar raddir karla og kvenna
gegnum háréystina, það leyndi sér
ekki að gleðin þar inni fyrir varð
stöðugt innilegri. Skammt frá
garðshliðinu stóðu tveir japanskir
foringjabílar. Letilegur hermaður
hallaði sér upp að öðrum þeirra og
reykti sígarettu.
Corey hugleiddi hvort hann ætti
að drepa hann, en fannst sem
hann hefði þegar freistað heppn-
innar öllu meira en skynsamlegt gat
talizt, svo hann hvarf frá því aft-
ur. Hann laumaðist því framhjá
honum í víðum sveig og komst
þannig inn í sjálfan japanska garð-
inn, þar sem hann læddist hálf-
boginn á milli rósarunnanna, stöð-
ugt nær aðaldyrum tehússins.
Hann heyröist fótatak nálgast
eftir malarstígnum og lagðist flat-
ur bak við runnann. Hann virti
fyrir sér japanska „skósteininn"
úti fyrir dyrunum, helluna, þar
sem gestir skilja eftir skó sína að
japanskri siðvenju. Það mátti sjá
það á skófatnaðinum, að tveir
háttsettir liðsforingjar voru gestir
tehússins í kvöld, auk margra
undirforirigja. Og fótatakið sem
hann heyrði, reyndist vera tveggja
nýrra gesta, sem báðir voru liðs-
foringjar, og skildu skó sína eftir
úti á hellunni, þegar þeir gengu
inn í fagnaðinn.
Þegar þeir voru horfnir inn, lædd
ist Corey meðfranj veggjum nokk-
urn spöl. Samkvæmt japanskri
venju, voru veggirnir ekki annað
en allavega litur ríspappír, strengd-
ur á viðarramma, sem skjóta mátti
til að vild. Þannig var líka inni í
húsinu, þar mátti breyta öllu skipu
lagi í einni andrá að kalla, meö
því aö renna þessum römmum i
aðrar skorður. Þannig var unnt að
draga tjí hluta af útveggjum svo
sólskin og hreint loft streymdi
inn í herbergin. Gat það verið, j
hugsaði Corey með sér, að þetta ,
byggingarlag ætti rætur sínar að
rekja til þess, að japanska þjóðiri
væri í heild haldin ákafri innilok- '
unarkennd, eftir að hún hafði ver-
ið afkróuð á litlum eyjum öldum
saman. Eða var það hreinlæti
þeirra og ást á sólskini og fersku
lofti?
Skammt frá einu horni hússins
hafði hlera verið rennt eilítið til.
Corey gægöist varlega inn um
glufuna. Það leit út fyrir að það :
væri aðalsamkomusalurinn, sem \
hann sá þar inn í. Þar sátu jap-,
anskir foringjar með krosslagðar
fætur á gólfi kring um stórt, af-
langt borö á lágum fótum og
drukku hrísgrjónabrennivín, sem
þeim var borið óspart af tveim
þokkadísum í geishaklæðum. Yfir-
leitt er geishan ekki vændiskona,
heldur er henni eingöngu ætlað að
ganga um beina og skemmta gest-
um tehúsanna með söng, hljóðfæra
leik og skemmtilegum’ viðræðum.
En þessar stúlkur voru víðs fjarri
heimalandi sínu og siðvenjum bar.
Corey sá að einn af foringjunum
greip í skikkju annarrar stúlkunnar
og svipti til faldinum, svo sást að
hún var nakin undir. Hinir foringj-
arnir fengu ofsalegt hláturskast,
þegar stúlkan reyndi að \“r'ja
skikkjunni aö sér, en foringinn,
sem bersýnilega var mjög drukk-
inn, skellti henni á gólfiö, þar sem
þau kútveltust og leið þá ekki á
löngu að hún var svipt þessari
einu spjör.
IIÖRÐUR EIMRSSOK
HÉRAÐSDÓMSLÖGMAÐUR
M í I.I ’O T> I > C.' S SK RIFSTOFA
j án ðtu 5. — Slmi 10033.
MnnMtnuiimituHmi hm
f^allett
LEIKFIMI
JAZZ-BALLETT
Frá DANSKIN
Búningar
Sokkabuxur
Netbuxur
Dansbehl
jfc- Margir litir
AMar staerðir
Frá GAMBA
Æfíngaskór
Svartir, bleiWr, baítír
Taskór
Ballet-töskttr 1
^^allettfjúðm
E R Z L U M 1 M
SÍMI 1-30-76
MIMÍMIU M 111! 111141( IT W M4 14
ívíÍiSiiÍÆ'i
Jane fór í þessa átt með stóru öpun-
um, en þeir myndu aldrei gera maka
Tarzans mein.
Korak fylgdi henni, en spor hans virð-
ast nýrri. Ég er fljótari með því að sveifla
mér í trjánum.
„Hvar er kona Tarzans?“ — „Tarzan
. .Tergash tók Tarzans konu.‘
ffenwood
■» CHEF
Frá Tíeklu
uwwaaifa
I