Vísir - 20.04.1968, Blaðsíða 1
58. árg. - Laugardagur 20. april 1968. - 86. tbl.
Hættulegar t'óflur i umferð meðal
'ifyróttamanna! — Sjá bls. 2
Þurfa erfiðismenn fremur en forstjórar
að óttast hjartasjúkdóma? — Sjá bls. 8
NA T0 verðlaunar
tvo ísleudinga
Tveir íslendingar, þeir Þorsteinn
Thorarensen, rithöfundur og Bene-
dikt Gröndal, alþingismaður og rit-
stióri voru fyrir nokkru verðlaun-
aðir af NATO. Er hér um að ræða
viðurkenningu til ýmissa manna í
hinum 15 meðlimaríkjum NATO
fyrir ritgerðir um sameiginleg á-
hugamál og sameiginleg vandamál
aðildarrikja NATO.
Verðlaunin nema 23,000 belgísk-
um frönkum á mánuði í 2—4 mán-
uði, svo og greiðir Atlantshafs-
bandalagið nokkurn ferðakostnað
þeirra, sem verðlaunin og viöur-
kenningu hljóta.
Elzti bíllinn á skrá
er frá árinu 1923
— nitján bilar frá jbv/ fyrir 1930 i umferð
■ 42.117 bifreiðir voru á öllu landinu um siðustu áramót
samkvæmt skýrslu, sem út hefur komið á vegum vega-
málaskrifstofunnar og byggð er á upplýsingum frá Bifreiða-
eftiriiti ríkisins.
Flestar þessar bifreiðir voru á
skrá í Reykjavík, eða 18.062,
en 4.078 voru þá á skrá í Gull-
bringu og Kjósarsýslu, 2.843 á
Akureyri 2.043 í Árnessýslu,
1982 í Kópavogi.
35.991 fólksbifreið var þá á
skrá og 6.126 vörubifreiðir, —
Bifreiðir þessar eru af ýmsum
árgerðum og tegundum jafnvel
ein frá því 1923 tvær frá 1926
ein frá 1927, fjórar frá 1928,
átta frá 1929 og nitján frá 1930.
Flestar eru af árgerðinni 1966
eða 5.843. en 4.252 frá 1967 og
flestar eru bifreiðirnar fram-
leiddar á árunum eftir 1952. Þó
eru 1553 bifreiðir af smíðaárinu
1946.
Fólksbílar skiptast í 138 teg
undir, þar sem Volkswagen er 1
algengastur, eða 12,1%, en fast |
á eftir fylgir Ford 12.0%, Mosk
witch 8,3% Willys jeppar 7.3%
Skoda 6.5% Land-Rover 6.1%,
Opel 5.6% Chevrolet 4.3%
Volvo 3.3%, Fíat 3,2% og aðrar (
tegundir færri.
Af vörubílum eru algengustu 1
bifreiðir Ford 20.0%, Chevrolet
14.9%, Mercedes-Benz 9.4%,
Bedford 9.2% og Volvo 7,4%.
Bílafjölgun í landinu á árun-
um 1966 til 1967 hefur verið I
7,1%, en var á árunum 1965 til
1966 12.3%.
Fyrst voru það epfín
nú jarðepfín
Danskur kartófluútflytjandi heimsækir Island
• Flestum mun í fersku
minni heimsókn dönsku
eplaútflytjendanna hingað í
vetur, en þeir komu hingað
til að kynna Isiendingum
vöru sína. Nú er kominn hing
að danskur jarðeplaútfiytj-
andi, J. C. Weinreich að nafni
í því augnamiði að kynna sér
ástandið í kartöflusölu hér á
landi, en sem kunnugt er hef-
ur Grænmetisverzlun Land-
búnaðarins einkaleyfi á sölu
kartaflna hér á landi.
„Það er ekkert launungar-
mál“, sagði Sveinn Ásgeirsson
hagfræðingur á fundi meö J.C.
Weinreich og blaðamönnum,
,,að koma hans hingað til lands
ins er liður í baráttu Neytenda-
samtakanna til að skapa neyt-
endum möguleika á að fá góð
ar kartöflur fyrir sanngjarnt
verð“.
Ennfremur upplýsti Sveinn,
að Neytendasamtökin hefðu
krafizt þess, að innflutningur á
kartöflum yrði gefinn frjáls en
ekki væri ljóst ennþá hver yrðu
úrslit í því máli.
J.C. Weinreich sem er formað
ur danskra kartöfluútflytjenda
sagði að Danir flyttu nú út
kartöflur til 35 landa, flokkaðar
eftir stærð, gæðum og tegund-
um, burstaðar og þvegnar, svo
að fólk geti valið það sem það
vill. Þá taldi hann mjög óæski
legt að ekki væri hægt að fá
kartöflur nema í 5 kg. pokum.
eins og hér er, og slæmt að ekki
væri hægt að skoða vöruna, þar
sem hún væri í ógagnsæjum
pokum.
J.C. Weinreich fer héöan í
dag, og óvíst nema að hann
komi hingað næst í þeim erind
um að selja landsmönnum
danskar kartöflur.
Vegna komu danska kartöflu
útflyfjandans sneri blaðið sér
til forstjóra Grænmetisverzlun
arinnar, Jóhanns Jónassonar, og
innti hann eftir því, hvort
nokkrar breytingar á umbúðum
eða flokkun íslenzku kartafln-
anna væru væntanlegar. Sagði
Jóhann að slíkt hefði oftlega
verið í athugun og að Græn-
metisverzlunin hefði óskað eft
ir að slík flokkun yrði tekin
upp, en 6 manna nefndin hefði
alltaf tekiö fyrir slíkt, og hinir
þrír fulltrúar neytenda, sem í
nefndinni eru hefðu þvertekið
fyrir það, þar sem það myndi
óhjákvæmilega hafa í för með
sér hækkun á kartöflunum.
„Þetta er einungis spurning
um að halda verðinu niðri“,
sagöi Jóhann að lokum.
Sveinn Ásgeirsson og J. C. Weinreich á blaðamannafundi i gær.
MIKILL AFU AKRA-
NFSBÁ TA
12 bátar komu að i fyrradag með 436 lestir
— Saltskortur herjar viða
□ Frekar var daufara yfir afla bát
anna í gær en verið hefur undan-
farið. Vísir hafði samband við
helztu útgerðarstaðina á Suður-
og Suövesturlandi um kvöldmatar-
leytið í gær, og var þá frekar
dauft yfir veiðunum. Akranesbátar
hafa þó aflað dável undanfarið,
allir bátar þaöan róa með net og
sækja á miðin á Selvogsbanka. I
fyrrinótt komu 12 bátar inn til
Akraness með 436 Iestir alls. Bát-
arnir róa nú ekki á sunudaginn, því
að frá og með miðjum apríl fá
sjómennirnir helgarfrí.
í gær var saltskip að losa salt
í Vestmannaeyjum, og að því er
menn á staðnum sögðu í gær kom
það alveg á dómsdegi, því að stað
urinn var að verða saltlaus. og
,stóð á endum með að ekki þurfti
að fara að hengja fiskinn upp,
Salt er alveg á þrotum á Akra-
nesi, en von er á saltskipi þangað
eftir helgina. Þeir á Skaganum
hafa orðið að hengja all mikið af
Vestfjarðaáætlun lokið á næsta ári
afla bátanna upp, bæði vegna salt-
leysis svo og vegna þess, hve
fiskurinn hefur verið orðinn slæm
ur.
Afli Keflavíkurbáta hefur verið
mjög tregur undanfarið, línubátar
komizt mest upp í 8 lestir, og
margir minna, en netabátar verið
með eilítið meira magn. Vestmanna
eyjabátar voru f gær bæði austur
í buktum. sem þeir kalla. svo og á
miðunum vestan við Eyjar. Þar hef
ur verið mikil vinna undanfarið,
nóg að starfa við aflann í frysti
húsunum.
Þotan í
7Q"frosti
Hitamismunurinn úti
Framkvæmdirnar hafa gengið mjóg vel
S Framkvæmd Vestfjarðaá-
ætlunar er nú svo langt kom
in, að sjá má fyrir enda hennar
á næsta ári, sagði fiármálaráð-
herra,- Magnús Jónsson, í ræðu,
sem hann hélt, þegar hann flutti
Mbingi skýrsiu framkvæmda-
og fjáröflunaráætlunar ársins
1968.
Framkvæmdum við flugvöllinn á
ísafirði og Patreksfirði er nú lokið
fyrir nokkru, nema byggingu flug
skýlis á ísafirði, sem nú stendur
yfir, og malbikun flugvallar á ísa
firði, sem verður frestað um sinn.
Hafnargerðum er lokið, eða að
mestu lokið, á Patreksfirði, Bildu-
dal. Þingeyri, Flateyri og Suður-
eyri. Framkvæmdir i Súðavík
munu hefjast á þessu ári og ætlun
in var að hefja einnig framkvæmd
ir við Isafjarðarhöfn á þessu ári,
en vegna skemmda á Bolungarvík
urhöfn í vetur hefur nú komið til
álita að láta framkvæmdir við
ísafjarðarhöfn bíða til næsta árs.
Lagningu vegarins um Breiðdals
heiði milli Flateyrar og ísafjarðar
mun ljúka á þessu ári, að undan-
teknum jarðgöngunum, sem varla
þykir koma til greina að ráðast í
vegna kostnaðarins, en tæknileg at-
hugun fer nú fram á því. Helmingi
framkvæmda við Súgandafjarðar-
veg mun liúka á þessu ári, og helm
ingi vegar sunnan Þingmannaheið
ar verður einnig lokið á þessu ári.
svo og stórum hluta Bolungarvík-
urvegar, en þessum þrem vegafram
kvæmdum verður að fullu lokið á
næsta ári, ásamt veginum milli
Þingeyrar og Fateyrar yfir Gemlu-
fallsheiði Lokið var fyrir tveim
árum lagningu vegar frá Patreks-
firði til Bíldudals um Hálfdán,
sömu leiðis lagningu vegar til flug
vallarins á Patreksfirði og að
mestu lagningu vegarins til flug-
vallarins á ísafirði.
„Verður að telja", sagði ráðherr-
ann í ræðu sinni, ,,aö framkvæmd
irnar hafi gengið mjög vel og já-
kvæður árangur þeirra sé þegar
farinn að koma í ljós. Koma hér ó-
tvírætt fram kostir skipulagðra
vinnubragða í undirbúningi fram-
kvæmda og fjáröflunar og einbeit-
inrar framkvæmda að tilteknum og
vel völdum verkefnum.
Framkæmdir hafa orðið nokkuð
dýrari. en við hafði verið búizt,
enda var verkfræðilegum athugun-
um ekki enn lokið. þegar upphaf-
I Ieg áætlun var gerð“
og inni 92 stig
Þotuflugmenn Flugfélagsins eru
orðnir vanir að sjá býsna háar töl
ur þegar þeir líta á hitamæli sem
mælir lofthitastig í þeim loftlögum
sem „Guilfaxi“ flýgur um á leiðum
sínum milli landa. Sialdan fer þó
frostið niður fyrir 60° á selsíus,
en slíkt hefur verið alvanalegt i
10—12 km hæð. Laugardaginn 23.
marz var þó 60° metið slegiö, þvf
að þann dag mældist 70° frost á
leiðinni frá Osló til íslands. Flogið
var i 10,5 km hæð.
Inni i þotunni var 22. stiga hiti
á selsíus þannig að hitamismunur
úti og inni var 92° á selsíus.