Vísir - 20.04.1968, Side 7
VÍSIR . Laugardagur 20. aprfl 1968.
7
Efnt er til happdrættis meðal
umferöarvarða um allt land. Vinn-
ingar eru 10, fimm eru vikudvöl
í Bandaríkjunum í boði Loftleiöa,
en fimm eru vikudvöl í skíðaskól-
anum í Kerlingarfjöllum.
Eins og áður segir annast
Fræðslu- og upplýsingaskrifstofa
Umferðarnefndar Reykjavíkur út-
vegun og skráningu sjálfboðaliða.
Fer skráning fram daglega í síma
83320.
Upplýsingarit um starf umferöar-
varöa liggur frammi á pósthúsum,
lögreglustöðvum og víðar.
Meö þvi að gerast umferðar-
vöröur, veröur auðveldara fyrir
þig að aðlagast breyttum aksturs-
i háttum með tilkomu hægri um-
I ferðar.
— með því að gerast umferðarvörður
S ÝNINS
Um leið og við opnum nýtt VOLVO-verkstæði, bjóðum við beim,
sem áhuga hafa að sjá það svo og þær vörur, sem við seljum.
Þú getur stuðlað að öruggri
umferðarbreytingu
T eitað hefur verið til almennings
um að gegna sjálfboðaliða-
störfum við umferðarvörzlu á H-
daginn, 26. maí—2. júní. Umferöar-
verðir geta allir orðið sem eru
15 ára og eldri. Gert er ráð fyrir,
að um 1600 sjálfboöaliða þurfi til
starfa á öllu landinu, þar af um
1450 á höfuðborgarsvæðinu svo-
nefnda, Reykjavík, Hafnarfirði,
Garðahreppi, Kópavogi, Seltjarnar-
nesi og Mosfellssveit. I Reykjavík
verður umferðarvarzla á um 100
stöðum, og mun til þeirra starfa
þurfa 1000 sjálfboðaliða. í Reykja-
vík annast Umferðarnefnd Reykja-
víkur útvegun umferöarvarða, og
fyrir hönd hennar Fræðslu- og upp-
lýsingaskrifstofa Umferöarnefndar
Reykjavíkur, sem safnar og skráir
sjálfboöaliða. í öðrum byggðarlög-
um er slíkt I höndum löggæzlu-
yfirvalda. Lögreglan hefur yfirum-
sjón með framkvæmd umferðar-
vörzlunnar.
Umsjón með framkvæmd um-
ferðarvörzlunnar á hverjum staö
hefur flokksstjóri, og er hann
tengiliður lögreglu og umferðar-
varðanna sjálfra. Þá hefur hann og
umsjón með vaktaskiptum um-
ferðarvarða og er ábyrgur fyrir
hópnum. Flokksstjórar, sem einnig
eru sjálfboðaliðar, verða m. a. úr
slysavarna- og hjálparsveitum,
svo og frá íþróttafélögum.
Starf umferðarvarða er fólgið í
því aö veita gangandi vegfarendum
aðstoð, leiöbeina þeim og stjóma
umferð þeirra. Umferöarvörður
hefur engin afskipti af umferö
ökutækja. Umferðarvörður verður
búinn hvítum erfmahlífum. Hann
verður staðsettur þar, sem umferö
gangandi vegfarenda er mest, og
beinir umferð þeirra yfir akbraut-
ina á einn staö. Til merkis um að
umferðin á akbrautinni leyfi að
gangandi vegfarendur fari yfir ak-
brautina hefur hann hendur niöur
með síðum, en gefur merki um
aö umferðin á akbrautinni leyfi
ekki umferð gangandi yfir ak-
brautina með því aö halda höndum
út frá öxlum.
Umferðarveröir í Reykjavík
munu fá sérstaka þjálfun lögregl-
unnar, sem mun hafa stutt nám-
skeið fyrir alla umferðarverði. Þá
munu og þeir, sem skrá sig til
umferðarvarðastarfa, fá sent upp-
lýsingarit um starfið.
Lögreglan í Reykjavík hefur gert
athugun á því, á hve mörgum stöð-
um í borginni umferðarvarzla
verður. Samkvæmt þeirri athugun
verður umferðarvarzla á 100 stöð-
um í borginni. Stöðunum er skipt
í tvo hópa eftir þörf staöanna fyrir
umferðarvörzlu. í fyrsta lagi er um
að ræða staði, þar sem stöðug um-
ferðarvarzla veröur á tímanum frá
08.30—18.30 dag hvern, en í öðru
lagi eru staöir, þar sem umferðar-
varzla verður á þeim tíma, er um-
ferð gangandi er mest, svo sem er
fólk fer úr og i vinnu, við kvik-
myndahús, sjúkrahús o.fl.
Volvo bifreiðir
mWJ
SlUMK
■tTin prýðilega frammistaöa
Guðmundar Sigurjónssonar
og Hauks Angantýssonar á skák
þingi íslands hefur aö vonum
vakið mikla athygli. Fyrir mótið
var spáð að keppnin um efsta
sætið myndi aðallega standa á
milli Guðmundar og Freysteins
Þorbergssonar, en Haukur kom
skemmtilega á óvart og verð-
skuldaði annað sætið með sóma.
Guðmundur byrjaði mjög vel,
vann 5 fyrstu skákirnar og haföi
y2 vinnings forskot fram vfir
Hauk er þeir mættust í 6. um-
ferð. Skákin milli þeirra varð
jafntefli og eftir það var sigur
Guðmundar varla í hættu, þótt
Haukur fylgdi honum fast eftir
til loka. Freysteinn hreppti 3.
sætið og þar með þátttökurétt
á Reykjavíkurmótinu 1968. Þeir
Björn Þorsteinsson, Bragi Kristj
ánsson og Jón Kristinsson voru
ekki í essinu sínu á móti þessu
og kann að hafa valdið þvf hið
mikla forskot sem þeir Guð-
mundur og Haukur náðu strax
í byrjun.
Eftirfarandi skák taldi Guð-
mundur einna erfiðasta frá mót-
Hvítt: Guðmundur Sigurjónsson
Svart: Jón Kristinsson
Spánskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. 0-0 d6 6. Hel
Bd7 7. c3 Be7 8. d4 0-0 9.
Rbd2 b5 10. Bb3 h6 11. Rfl
He8 12. Rg3 Bf8 13. h3 Ra5
14. Bc2 g6 15. b3 Bg7?
Hér hefði verið betra að leika
14. c5 15. Bb2 Hc8 og leita
eftir mótspili á drottningarvæng
Áætlun svarts í skákinni reyn-
ist full hægfara.
16. Be3 c6 17. Dd2 Kh7 18. Hadl
Dc7 19. Rh4 Rb7 20. f4 Had8 21.
Rf3 exf 22. Bxf c5 23. d5 Bc8?
Hér var nauðsynlegt að leika
23. Rg8 og halda niöri gegnum
broti hvíts.
24. e5! dxe 25. Bxe Rd6 26. Df4
Rg8 27. h4 f6.
Hvítur hótaði 28. h5 og svart
ur er varnarlaus gegn kónga-
sókn hvíts. Að vísu bjargar
þetta framhald svörtum ekki
heldur, því hvítur skiptir nú
upp í unnið endatafl,
28. BxR HxHt 29. HxH DxB
30. DxD HxD 31. h5 f5
Ef 31 ... Hxd 32. Bxgt Kh8
33. He8 og svartur tapar ridd-
aranum á g8.
32. hxgt Kh8 33. He8 Bd7 34.
Rxf BxH 35. RxH Bd7.
Svartur er hér í miklu tíma-
hraki og sér ekki mátið. Eftir
35... Rf6 36. c4 og síðan 37.
Re5 vinnur hvítur létt.
36. Rf7 mát.
Af erlendum vettvangi má
geta þess, að einvígið Tal: Gli-
goric hefst 21. apríl og verður
teflt í Júgóslavíu. Gligoric hefur
undirbúið sig vel undir einvígið,
m. a. teflt æfingareinvígi við
Donner. Einvígið Spassky:Geller
byrjar einnig í apríl og fljótlega
þar á eftir Reshevsky: Kortsnoj
og Larsen:Portisch.
Jóhann Sigurjónssön.
Bátar og útbúnaður fyrir þá
Husavarnn cnnmnvélar
Husqvarna eldhústæki
Blaupunkt sjónvarpstæki
og útvarpstæki
Sýningin verður opin: Laugardag kl. 2—6.
Sunnudag kl. 2—6.
Börn í fylgd með fullorðnum eru velkomin.
A T H U G I Ð !
5% afsláttur veittur af öllum vörum úr Husqvarna og Blaupunkt
deild, sem pantaðar eru á sýningunni á laugardag. Greiðist fyrir-
fram innan 14 daga, afhending 4 dögum síðar.
unnai SfyseiiMan
Suðuriandsbraut 16 - Reykjavík - Símnefni: »Volver« - Sími 35200
5£ffaa
UMFERÐARNEFND
REYKJAViKUR
LDGREGLAN i
REYKJAViK