Vísir - 27.04.1968, Qupperneq 9
VÍSIR T -augardagur 27. .. .íl 1968.
9
1
Sveitarstjórnarmenn skulu mótmæla
giftingum óknyttasamra svallara
— segir í gamalli bók unt sveifarsfjórn á fslandi — Spjallað við eddvita
og sveitarsfjórnarmenn á fræðslunómskeiði Sambands ísi. sveitarfélaga
T 100 ára gamalli bók um sveit-
arstjóm á íslandi eftir Þor-
varð Ólafsson bónda á Kalastöð
um í Hvalfiröi eru eftirtalin
atriði talin meðal þeirra verk-
efna, sem sveitarstjómir eiga að
hafa umsjón meö:
— að athuga og tilkynna prest-
inum hverjir vanræki guðshús.
— að koma í veg fyrir drykkju-
slark og mælgi í kirkjum og
sjá um að þeir séu sektaðir sem
koma með hunda.
— að hafa eftirlit með illa
ræmdu kvenfólki.
— að sjá um að prestum sé ekki
fært brennivín í kirkiu, eða með
því goldin embættislaun.
— að kæra fyrir sýslumanni
lygara og slaðurshöfunda og
biygðunarlausa blótvarga.
— að innræta mönnum spar-
semi yfirhöfuð og sér í lagi við
erfidrykkjur og brúðkaup.
— að sjá um að forarsöfn séu
höfð á hentugum stöðum og
haganleg meðferð sé höfö á
hrossakjötsáti, þar sem það er
til matar haft.
— að mótmæla giftingum ó-
knyttasamra svallara og let-
ingja, nema þeir bæti ráð sitt.
— að hafa eftirlit með hlaup-
læknum, sem lækna í leyfis-
leysi.
Nú kann einhver að halda
að hér sé um grín að ræða, en
svo er alls ekki. Þetta er tekiö
beint upp úr þessari fornu bók
Þorvarðar en hún er í eigu Páls
Líndal, formanns Sambands ís
lenzkra sveitarfélaga, og vitnaði
hann í hana í ávarpi, sem hann
flutti á fræðslunámskeiöi um
sveitarstjórnarmál, sem nýlokið
er í Reykjavík. Vitnaöi hann
m.a. í undantalin atriöi og sagði
að ef haldið hefði verið slíkt
fræðslunámskeið fyrir eitthundr
að árum, þá hefðu þessi mál
líklega verið tekin sérstakiega
fyrir og rædd, eins og gert er
um þau mál sem efst eru á
baugi í dag.
Blaöamaöur fékk að spjalla
við nokkra þeirra, sem sóttu
fræðslunámskeiðið og fara við
tölin hér á eftir.
Steypa vamargarö við
Eyrarbakka.
Fyrst töluöum við við Vigfús
Jónsson, oddvita á Eyrarfcakka
og byrjuöum við á því að
spyrja hann um framkvæmdir
við höfnina á Eyrarbakka.
„Þaö hefur verið unnið að hafn
argerð á Eyrarbakka undanfarin
fjögur sumur,“ sagði Vigfús,
„og hefur veriö steyptur varn-
argarður fyrir bátaleguna, sem
er orðinn um 300 metra iangur.
Garöurinn er 4 m breiður aö
neöan og 2,30 að ofan.
Þessar framkvæmdir koma tii
með að gerbreyta bátalegunni
og skapa tnöguleika til lönd-
unar við bryggju þó að töiu-
vert brim sé. Viö vonumst til
að geta haldið verkinu áfram
næstu sumur og skapað með því
örugga höfn fyrir fiskibáta á
Eyrarbakka, þó að Atlantshafs
aldan hamist á skerjagaröinum
fyrir utan.“
„Hvernig er útlitið með ver-
tið hjá ykkur núna?“
„Útlitið er gott sem stendur
aflinn hefur verið ágætur upp
á síðkastið. Hins vegar höfum
við oröiö að frysta eða hengja
upp allt of mikið af fiski, vegna
saltleysis. Við höfum ekkert get
að saltað í hálfan mánuð, og er
það vitanlega mjög slæmL“
„Byggist ekki afkoman hjá
ykkur nær eingöngu á sjávar-
útveginum?"
„Jú, það má segja það. Það
er að vísu dálítill iðnaður á
Eyrarbakka. Við höfum litla
verksmiöju, sem framleiðir ein
angrunarplast og hún gengur
bara vel.' Þar vinna um 20
manns.“
„Gerðuð þið ekki tilraunir
með þaravinnslu á Eyrarbakka
fyrir nokkrum árum?“
„Jú, við geröum það, en það
var mjög erfitt og varö að vinn
ast eingönguu í höndunum, —
Það er án efa geysileg framtíð í
vinnslu á þara t.d. í fóðurbæti
bæði til útflutnings og fyrir
landsmenn, en til þess að hægt
sé aö koma slíku á fót þarf fjár
magn til að kaupa vélar, sem
geta unnið úr þaranum."
„Eruö þið ekki nýbúnir að fá
vatnsveitu?"
„Jú í nóvember í vetur var
vatni hleypt á aðalæð vatns-
veitu á Eyrarbakka. Eyrbekk-
ingar hafa ávallt búið viö frum
Vigfús Jónsson,
Eyrarbakka.
stæð vatnsból, aðallega brunna,
en vaxandi framræsla lands í
nágrenninu hefur leitt tii þess að
brunnvatn hefur minnkað til
muna og stundum þrotið í vetr
arfrostum og sumarþurrkum. —
Svo hefur verið mikið járn í
vatninu, sem fengizt hefur við
borun í þorpinu, og hefur það
verið óhæft til neyzlu. Vatnið
sem við fáum í þessa vatnsveitu
er ofan úr mýrinni uppi undir
Ölfusá og er ágætt. Það á enn
Vigfús B. Jónsson.
Laxamýri, Þingeyjarsýslu.
eftir að leggja mestallt dreifing-
arkerfið fyrir þessa vatnsveitu,
en hún hefur staðið sig vel í
vetur og aldrei hefur frosið í
leiðslunum.“ sagði Vigfús að lok
um.
Flugvöllur fyrir milli-
landaflug í Aðaldal.
Nafni Vigfúsar sem við töluð
um við hér á undan, er Vigfús
B. Jónsson, oddviti í Reykja-
hreppi í Þingeyjarsýslu ,en hann
býr aö Laxamýri.
Viö byrjum á að spyrja Vig-
fús um hinn fyrirhugaða flug-
völl i Aðaldal, en sem kunnugt
er hafa Loftleiðir áhuga á að
byggja þarflugvöll, sem varaflug
völl fyrir millilandaflug. Leikur
okkur einkum forvitni á að vita
hvers vegna Loftleiðir hafa
augastaö á þessum stað um-
fram aðra.
„Skilyröi fyrir flug eru mjög
góð á pessum stað. Það hefur að
vísu veriö talað um aðra staði,
en ég held að þessi staður þyki
ianghentugastur. Þama eru
aldrei hliðarvindar og mjög góö
aöflugsskilyrði. Ekki þarf nema
eina braut, en mér skilst að
kostnaður við gerö slíkrar
flugbrautar nemi nálægt 50
milíj. kr. allt í allt“.
„Er gert ráð fyrir aö byggja
hótel, ef flugvöllurinn veröur
gerður?“
„Nei, ég held að það sé ætl
unin að fara til Húsavíkur með
farþega ef til kemur, en það er
mjög stutt þangað frá vellin-
um.“
„Nú hefur tíðin verið slæm
hjá ykkur í Þingeyjarsýslunni
í vetur. — Hvernig eruð þið
staddir með heybirgðir?"
„Ja, við erum nú ekki svo
illa staddir. Auðvitað höfum
við orðið að gefa mikinn fóð-
urbæti með heyjum. Við bænd-
urnir í Reykjahreppnum höfum
mikinn áhuga á að koma upp hey
kögglaverksmiðju. Þaö- myndi
spara geysilegan innflutning á
erlendu fóðri, en til að koma
slíkri vérksmiðju á laggirnar
þarf vitanlega mikið fjármagn.
Ég álít að slíkar verksmiðjur
eigi að reisa víðá um landið."
„Það hefur vériö talað um
sameiningu á hreppunum þarna
í Þingeyjarsýslu, hvernig lízt
ykkur á það?“
„Þetta er nú allt á umræöu-
stigi ennþá, en mér skilst að
talið sé æskilegast að sameina
Reykjahrepp, Aðaldalshrepp og
Tjörneshrepp.“
„Eru bændurnir búnir að
sætta sig við „kísilgúrveginn“
svonefnda?“
„Ojá, -— tíminn læknar öll
sár eins og þar stendur. Menn
hafa gert sér grein fyrir því
smám saman, að vegurinn er
lagður á ágætum staö, og hefði
varla verið hægt að staðsetja
hann betur.“
Læknirlnn fær aðsetur
að Reykjalundi.
;Á fræöslunámskeiðinu var
aöeins ein kona, Salóme Þor-
kelsdóttir, frá Reykjahlíð, en
Frú Salóme Þorkelsdóttir,
Reykjahlíð.
hún á sæti í hreppsnefnd Mos-
fellshrepps.
„Það sem ég tel merkilegustu
framfarir í Mosfellshreppnum
er mjög bætt læknaþjónusta.
Við höfum sama lækni og Kjós-
in, Kjalarnesið og Þingvalla-
hreppurinn, en læknirinn hefur
yfirleitt haft aðsetur í Reykja-
Vík. Hann fékk að vísu stofu i
Hlégarði,. en nú hefur hann
fengið ágæta aðstöðu tii lækn-
inga á Reykjalundi og býr
Óskar Friðbjamarson,
Eyrarhreppi víð ísafjarðardjúp.
hann þar. Þar hefur hann ung-
barnaeftirlit og mæöraeftirlit."
„Hvernig er skólamálum hjá
ykkur háttaö í Mosfellssveit-
inni?“
„Við erum í miklum vandræð-
um með gagnfræðaskólann. Við
þyrftum að geta byrjað að
byggja nýjan gagnfræðaskóla
strax f sumar, ef vel ætti að
vera. Skólinn hefur nú aösetur
í gömlu húsi sem er ófullnægj-
andi á allan hátt.“
„Þið hafið nýlega fengiö sjálf-
virka símstöð, ekki rétt?“
„Jú, hún kom núna í vetur.
Ástandið var orðið mjög slæmt,
og þetta er ákaflega mikill
munur. — Eina fólkið sem
saknar gamla fyrirkomulagsins,
eru þeir sem ekki geta hlustað
lengur á símtölin hjá nágrönn-
unum!“
Var mildi að ekki fórust
fleiri bátar.
Að lokum spjölluðum við viö
oddvitann í Eyrarhreppi við ísa-
fjarðardjúp Óskar Friðbjarnar-
son og spuröum hann fyrst
frétta af sameiningarmálunum,
en mikið hefur verið rætt um
að sameina fsafjörð og Eyrar-
hrepp.
„íbúarnir í Eyrarhreppi ósk-
uðu eftir sameiningu, þegar ísa-
fjörður fór að sækjast eftir
byggingarlóðum í hreppnum, en
hreppurinn liggur sitt hvorum
megin við ísafjarðarkaupstað.
Samskipti hafa alltaf verið
mikil á milli kaupstaðarins og
Eyrarhrepps og Hnífsdals og nú
er svo komiö að kaupstaðinn
vantar mjög mikið lóðir undir
einbýlishús. Við erum því bjart-
sýnir um sameiningu."
„Hvernig er afkoman í vet-
ur?“
„Hún er heldur slæm. Gæftir
hafa verið lélegar, en við eigum
allt undir sjónum komið. Við
erum meö rækjuverksmiöju, og
hefur rækjuaflinn verið góður,
en markaðshorfur aftur á móti
slæmar.“
„Þessi vetur hefur orðið
Hnífsdælingum erfiður?"
„Já, þetta var erfiijur vetur,
og þá einkum vegna bátstapans
í vetur, en þaö er hins vegar
ekkert vafamál að þaö var mikil
mildi að ekki skyldu fleiri bát-
ar vera á sjó þann daginn.
Hefði óveörið ekki skollið á
á sunnudegi, hefðu margir bát-
ar veriö á sjó og lent í óveðr-
inu,“ sagði Óskar að lokum.
■ P.*Í. .