Vísir - 10.05.1968, Side 2
VIS IR . Föstudagur 10. maí 1968.
VIKINGAR TOKUANNAÐ STIGIÐ
AF ÍSLANDSMFISTURUNUM
V'ikingur — Valur 0:0 i gærkvöldi i
Reykjavikurmótinu i knattspyrnu
© Til hamingju, Víkingar! Ég hafði þá ánægju í gær-
kvöldi að sjá ykkar nýja lið í fyrsta sinn, — og því
verður ekki í móti mælt að þetta er nokkuð, sem fé-
lagið ykkar hefur orðið að bíða eftir allt of lengi. Já,
þarna léku Víkingar heilan leik í meistaraflokki án
þess að minnstu uppgjöf væri að sjá á liðinu. Og 2.
deildar liðið skipti stigunum jafnt með sjálfum ís-
landsmeisturunum.
Að vísu var það svo að Vals-
menn voru nær sigrinum,. en þó
var munurinn ótrúlega lítill á þess
um tveim Austurbæjarliðum. Þaö
var einkum Hermann Gunnarsson
með einstaklingsframtaki sínu, sem
var oft nærri búinn að koma Vík-
ingum á kaldan klaka, en skot hans
lentu (sem betur fór fyrir Víkinga)
oftast naumlega framhjá.
Víkingsliðið hefur til að bera
mikla baráttu og mikinn vilja og i
liðinu eru margir leiknir einstakl-
ingar sem virðast ná allvel saman,
Það er ekki ætlunin að fara að telja
einstaka leikmenn upp hér, en þó
"'""y#" "V W'S"-.*" <, > ,, <(, , ,,, , , ,,„A , „ 'W/ fW
verð ég að minnast á einn, Gunnár
Gunnarsson, annan tengiliðinn í lið
inu, sem var ásamt Hermanni Gunn
arssyni í Val, bezti leikmaðurinn
0g mest afgerandi í leik. Þykir mér
ósennilegt að betri maður en Gunn
ar sé til hér f Reykjavík a.m.k.
í þessari stöðu um þessar mundir.
Valsmenn voru í daufara lagi,
einkum framlínan, en vörnin skilaði
sínu hlutverki með prýði. Miklar
breytingar eru á Valsliðinu frá í
fyrra, en greinilegt er að þarna
eru að koma upp ungir og efnilegir
leikmenn.
Annars var þessi markalausi
leikur Víkings og Vals heldur slak
ur knattspyrnulega séð, mér finnst
að það vanti eitthvert „sprengi-
Fyrsta golfmót
sumarsins
Næstkomandi laugardag þ.e. 11
maf hefst keppnistímabil kylfinga
í Réykjavfk. Golfvöllur G.R. við
Grafarvog er um þessar mundir í
þann veginn að verða leikhæfur.
Margir telja völlinn mun betur á
sig kominn nú en í fyrravor. —
Kappleikanefnd G.R. ákvað nýlega
eftir könnun á þeim 6 leikbrautum
er hingað til hafa aðeiís verið
notaöar einu sinni til keppni, að
hagkvæmt væri aö leika þær einn
ig í þessari fyrstu keppni sumars-
ins. Keppnin um Arneson-skjöld-
inn næstkomandi laugardag verður
því 18 holu höggleikur með forgjöf
sem leikinn verður á 18 brautum
vallarins. Félagar í G.R. eru hvattir
til að hrinda sumarstarfinu af stað
með almennir þátttöku f þessari
fyrstu keppni félagsins á árinu
1968. Keppnin hefst kl. 13.30 stund
víslega.
Sundknattleiks-
!r
mót Islands í
lok mónaðarins
Sundknattleiksmeistaramót Is-
lands 1968 fer fram f Sundhöll R-
víkur, seinni hluta maí mánaðar.
Þátttaka tilkynnist fyrir 15. maí
n.k. til Siggeirs Siggeirssonar, —
sfmi 10565. Síðasti leikur mótsins
mun fara fram í Sundhöll Reykja-
víkur 29. maí.
efni“ í leikina, ekki aðeins þenn
an, heldur f knattspyrnuna okkar
í heild. Það er nú staðreynd, að ein
staklingur, sem getur hrist af sér
einn, tvo eða þrjá varnarmenn,
annað hvort með því að einleika
eða hlaupa þá af sér, er búinn
að skapa liði sínu stórhættulega
stööu um leiö, ef rétt er á spilun-
um haldið. Nú er þaö svo að áhorr
endur, leikmenn og aðrir hafa
skammað „einleikarana“ í drep,
missi þeir boltann eða ,klúðri‘ send
ingu. Fari það hins vegar svo að
allt heppnist fullkomlega er þeim
hinum sömu hælt í óhófi.
Ég held aö það sé tími til þess
kominn fyrir okkur að gera okkur
grein fyrir því að „sólóistarnir",
þ.e. þeir sem virkilega kunna að
einleika eiga að vera lykilmenn
framlínu. Þetta sjáum við í sjón-
varpskvikmyndum og hjá góðum
erlendum liðum sem hingað rek-
ast. Við ættum því að hætta að
skamma menn eins og Hermann
Gunnarsson, Axel Axelsson, Eyleif
Hafsteinsson, Þórólf Beck, og
marga fleiri, ef þeir reyna ein-
leik. Þessir menn og raunar nokkr
ir fleiri kunna þessa list og geta
því gert mikið gagn.
Það var ánægjulegt að sjá í
gærkvöldi að áhorfendur flyktust
á Melavöllinn til að sjá Víking
leika, — það er langt siðan Viking
arnir hafa „trekkt".
Dómarinn f leiknum var Sveinn
Kristjánsson, dæmdi fulllítið, en
gerði margt vel. Sveinn mætti
gjarnan vera talsvert líflegri í
starfi sínu og ákveðnari í bending-
um. — jbp —
„Op/ð hús‘
á Hliðarenda II. mai
á 57 ára afmælis-
degi Vals
@Á morgun, 11. maí eru 57 ár j
liðin frá þvf að Valur var stofn 1
aður. Valsmenn eru vanir að ]
hafa „opið hús” fyrir alla þá (
félaga, vini og velunnara, sem 1
vilja líta inn og spjalla yfir ]
kaffibolla og góðum tertuni.
O Biðja Valsmenn blaðið að'
hvetja velunnara sína um að ]
líta inn milli 3 og 5 á morgun(
að Hlíðarenda.
Sumarfagnaður FH
FH heldur sumarfagnað í Sjálf-
stæðishúsinu í Hafnarfirði annað
kvöld kl. 9. Skemmtiatriði verða
f fagnaði þessum svo og dans. FH-
ingar biðja félaga sína um að fjöi
menna og taka með sér gesti á fagn
aðinn.
Júdónómskeið
haldin í sumar
Júdódeild Ármanns hefur
ákveðið að hafa í sumar nám-
skeið í júdo og sjálfsvörn bæði
fyrir kvenfólk og karlmenn á
öllum aldri.
Þessi námskeið standa yfir í mán
aðartíma hvert um sig og æfing
ar í námskeiðunum verða tvisvar
í viku en í sjálfsvarnarnámskeið-
unum einu sinni í viku.
Þessi námskeið verða haldin að
Ármúla 14 í hinum nýju húsakynn
um júdódeildarinnar og hefst inn-
ritun kl. 2 e.h. á morgun.
Myndarlegt framtak —
gefa út sérblað um golf
• O Þeir eru farnir að hugsa sér
• til hreyfings golfmennirnir úti á
J nesi, Golfklúbbúr Ness, og áö-
J ur en farið verður virkilega að
J arka um völlinn með golftækin
2 hafa þeir gefið út mjög myndar-
2 legt og fallegt blað, Golfblaðiö,
2 sem verður að teljast mikið fyr-
ekki
stærra
irtæki hjá
hópi manna.
O Golfblaðiö kom út á sumar
daginn fyrsta og verður það á-
reiðanlega vel metið af golffólki
um allt land, en segja má' að
framtíf blaðsins fari eftir þvi
hvernig viðtökur það fær í byrj
un. í blaðinu er að sjálfsögðu
mjög fjölbreytt efni um golf og
golffólk í gamni og alvöru.
O í ritnefnd Golfblaðsins eru
þau Pétur Björnsson, Sigríður
Magnúsdóttir og Jón Thorla-
cíus.
O Myndin sem hér fylgir er af
stjórn Golfklúbbs Ness.
Húsahegrinn
Fyrsta og einasta tækið
sinnar tegundar í borg-
mni.
Veitir möguleika til
fljótari, áhættuminni
og betri þjónustu
við málun, glervinnu
og gluggnviðgerðir,
rennur og niðurföll.
Ingþór
Sigurbjömsson
málarameistari
Kambsvegi 3.
Sími 34240.