Vísir - 10.05.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 10.05.1968, Blaðsíða 8
V í S IR . Föstudagur 10. maí 1968. 3 ■r VISIR Otgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Simar 15610 og 15099 Afgreiðsia: Hverfisgötu 55. Sími 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuöi innanlands í lausasölu kr. 7.00 eintakiö Prentsmiðja Vísis - Edda hf. Betra of skammt en of langt Sautján hundruð milljón króna tjónið, sem íslenzka þjóðin varð fyrir í fyrra vegna minnkaðrar útflutn- ingsframleiðslu og lækkaðs útflutningsverðlags, kom aðeins að litlu leyti niður á almenningi. Rauntekjur fólks minnkuðu ekki að meðaltali, eins og sést m. a. af því, að einkaneyzlan jókst árið 1967 um 1,2% frá fyrra ári. Enda var það stefna ríkisstjórnarinnar að grípa ekki til neinna örþrifaráða, sem mundu skerða hag fólksins, heldur reyna að láta tjónið koma niður á annan hátt. Atvinnufyrirtæki og opinberir sjóðir tóku fyrsta skellinn af tjóninu, sem þjóðin varð fyrir. Sá skellur var ekki eins mikill og tjónið gaf tilefni til, vegna þess' að gjaldeyrisvarasjóðurinn var digur, þegar varnar- baráttan hófst. Síðan þá hefur sjóðurinn minnkað um þúsund milljón krónur eða um rúmlega helming. Hins vegar var allan tímann ljóst, að þessi þróun gat aðeins staðið skamman tíma. Að því mundi fljót- lega koma, að atvinnufyrirtæki yrðu gjaldþrota og gjaldeyrisvarasjóðurinn tæmdist. En stefnan byggðist á þeirri von, að aflabrögð og verðlag mundu batna fljótlega aftur. Ef svo hefði farið, hefði þjóðin getað rétt við strax aftur, án þess að lífskjör versnuðu neitt. Alian þennan tíma hefur það verið stefna ríkis- stjórnarinnar að ganga eins skammt í aðgerðum og frekast var unnt. Örðugleikarnir hafa sífellt farið vax- andi og þá hafa fyrri ráðstafanir ekki reynzt nægileg- ar. í fyrstu var verðstöðvunarstefnunni beitt frá haustinu 1966 fram á haustið 1967. En hún var ekki nægileg, þegar verðfall og aflabrestur urðu enn alvar- legri síðari hluta ársins 1967. í fyrstu átti að mæta þeim vanda með niðurgreiðslum og fjárhagsaðstoð við atvinnuvegina, en það dugði ekki. Þá var gripið til gengislækkunarinnar. Þótt hún væri mjög áhrifarík aðgerð, dugði hún ekki til fulls, einkum vegna nýs verðfalls á freðfiskmarkaði í Sovétríkjunum. Varð því enn að grípa til nokkurs stuðnings við útgerð og fisk- iðnað. Augljóst er, að svo kann að fara, að árið 1968 verði jafnóhagstætt og árið 1967, — síldveiði bregðist aftur og verðlag hækki ekki. Þá getur reynzt óhjákvæmilegt að grípa til nýrra aðgerða. Að sjálfsögðu er ekki skemmtilegt, að gripið skuli vera til slíkra aðgerða hvað eftir annað En þessi vinnubrögð stafa ekki af skorti ríkisstjórnarinnar á yfirsýn yfir efnahagsvandamálin í heild, heldur vegna þess, hve mikilvægt hefur verið talið að ganga ekki lengra á hverjum tíma, en brýna nauðsyn bar til. SPJALLAD m BDNÞROUNINA Ottó Schopka: IÐNAÐURINN OG EFTA J síðustu viku var haldin hér í Reykjavík ráðstefna um iðn- þróunarmál af hálfu Fulltrúa- ráðs sjálfstæöisfélaganna. Aö sjálfsögðu mótuðust störf ráö- stefnunnar verulega af þeim umræðum, sem orðið hafa að undanfömu, um hugsanlega að- ild ísiands að EFTA, fríverzl- unarbandalaginu. Enn sem komið er, er of snemmt að taka ákvörðun um hvort sækja skuli um aðild aö bandalaginu, til þess skortir enn ýmsar veigamiklar upplýs- ingar um áhrif aðildar á afkomu hinna einstöku atvinnugreina í landinu. Vinda þarf bráðan bug að því að gera nauðsynlegar rannsóknir í þeim efnum, til þess að hægt sé aö taka endan- lega ákvörðun áður en langt um líður. Afstaða iðnaðarins til þessa máls hlýtur aö mótast af þeim kjörum, sem hann mun verða að búa viö í framtíðinni, og verður þá aö reyna að gera sér glögga grein fyrir þróun þeirra mála, annars vegar ef ísiand stæöi utan við EFrA, en hins vegar ef af aðild íslands yrði. I bví tilefn: er afar nauðsynlegt að gera sér grein fyrir bvi, að iðnaöurinn mun burfa að taka við allstórum hluta af þeirri aukningu mannafla, sem bæt- ast mun við á vinnumarkaðinn á næstu árum og áratugum, og er afar nauðsynlegt, að honum séu sköpuð viðunandi skilyrði til þess að geta tryggt vaxandi starfsmannafjölda góð og batn- andi lífskjör. í ræðu, sem Þórhallur Ás- geirsson ráðuneytisstjóri, flutti á ráðstefnunni, sagði hann m.a.: „Ég tel að framtíð iðnþróunar hér sé nátengd því, hvort við göngum inn í EFTA eða ekki. Ég er vantrúaöur á, að hér geti þróazt öflugur og arðbær iðn- aður bæöi með endurskipula'gn- ingu eldri iöngreina og stofn- un nýrra, meöan framieiðslan miöast við 200 þúsund manna markað.“ Þetta eru vissulega athyglis- verð orö og þess viröi, að þeim sé góður gaumur gefinn. Aðild að EFTA mundi opna íslenzk- um iönfyrirtækjum aðgang að 100 milljón mannamarkaði.Ekki þarf að fara mörgum ,orðum um hve mikia möguleika það mundi skapa þeim til nýrra og stærri átaka en nokkru sinni fyrr. Hitt er líka jafnaugljóst, að aðild íslands að EFTA mundi skapa ýmsum iðngreinum mikla erfiðleika og sumar iðngreinar mundu jafnvel alveg leggjast niöur. Til þess að trvggja af- komu sumra annarra iðngretia þyrfti að eiga sér stað víðta.k endurskipulagning f skipulags- byggingu þeirra, sem hefði í för með sér fækkun fyrirtækja en um leið stækkun og eflingu þeirra, sem áfr'am mundu starfa. Afar mikilvægt er, að í því til- efni yrðu geröar sérstakar ráð stafanir til þess að aðstoða þær iðngreinar, sem um yrði að ræða og kemur margt til greina í þeim efnum. Talað hefur verið um að Island gæti samið um til tölulega langt aðlögunartfma- bil, en það tímabil yrði að nota til þess að gera þessum iðn- greinum kleift að laga sig að nýjum viðhorfum og aðstæðum. Gera þarf fyrlrtækjum kleift að losa það f jármagn, sem bund ið er í starfsemi beirra, á til- töluiega stuttum tíma, þannig að beir, sem bað ættu, yrðu ekki fyrir beinum fjárhagslegum skakkaföllum, en gætu fært fjármagn sitt yfir í þær iðn- greinar, sem mesta vaxtarmögu- leika hefðu og yrðu arðbærastar í framtíðinni. í því sambandi þyrfti að stytta afskriftartfma húsa og véla verulega frá því sem nú er, ennfremur að leyfa iðnfyrirtækjum að leggja allt aö helming af hagnaði hvers árs í varasjóð áður en skattur er lagður á (sú heimild er"nú bund in við fjórðung af hagnaði) og fella þarf niður tolla ‘af fjárfest ingarvörum og hráefnum en tolla af fullunnum vörum f á- föngum á lengri tíma. Marka þarf ákveðna og fast- mótaða stefnu í bessum málum. Gera þarf iðnaðinum sem fyrst ijósa grein fyrir bvl hvaða aðlög unarvandamálum hann mun standa frammi fyrir á næstu árum og um leið þarf með skyn samlegum aðgerðum að tryggja að hann geti áfallalaust mætt nýjum viðhorfum. Með bvf er hagur allra bezt tryggöur. Málmiðnaður ein elzta iðn- grein landsins Tj’yrsti vísir málmiðnaðar varð til hér á landi á fyrri hluta 19. aldar, þegar fámenn stétt handiðnaðarmanna kom sér upp nokkrum verkstæðum, þar sem Iaghentir menn baukuöu viö steðja sína og dyttuöu að verk- færum landsmanna eftir þörf- um. Fyrir örfáum árum var þetta orðin ein stærsta grein iönaöar- ins í landinu, sem byggt haföi þróun sína á framleiðslu og viðhaldi véla og tækja fyrir fiskiðnaðinn og skiptastofninn. Raunar er þessi iðngrein ein- hver sú elzta í landinu, en áður var þetta eingöngu handverk og ekki aö tala um iðnað, fyrr en með tæknibreytingunum, sem urðu á árunum milli heims- styrjaldanna, þegar fyrst log- suða og síðan rafsuða uröu til. Þá með aukinni vélanotkun tók þessi iðnaður hér á landi hrað- fara breytingum. Þá skutu hér upp kollinum vélsmiðjur, málmsteypur, blikk- smiðjur, ofna- og vaskasmiðjur, stáltunnugerð, málmhúðun, viö- gerðarverkstæði ýmiss konar og skipasmíöi varð hér til. Svipaða sögu er að segja um þennan iðnað, eins og annan hér f landinu, að þegar hér tók að gæta gjaldeyrisskorts og til komu innflutningshöft, leiddi það til þess, að hafin var hér framleiösla véla og tækja, sem ellegar hefðu verið flutt inn. Brátt eignuðust íslendingar fagmenn, sem stóðu I engu að baki kollegum sínum f málm- iönaðarlöndum. Fyrirtæki eins og „Héðinn" og Landssmiðjan" efldust og uröu aö stórfyrir- tækjum. Iðnaðurinn byggöi þó á inn- fluttu hráefni, vegna fátæktar landsirts á smíðamálmum og þegar innflutningshöftum varð smám saman létt af og sam- keppni jókst við erlend iðnaðar- fyrirtæki, sem áttu greiðari að- gang að hagstæðum kjörum á hráefnakaupum og höfðu meira fjármagn handa í milli tilaðlána viðskiptavinum sínum, þrengd- ist hagur þessa iönaðar. Þeim reyndist erfitt að keppa um verð lag og söluskilmála og í út- þenslu góðæranna hafði hag- ræöingin lent ósjálfrátt útund- an miöað við það, sem gerzt haföi í iðnaðarlöndum erlendis, bar sem framleiðslan byggðist á stærri markaöi og fjöldafram- leiðslu. Ýmis málmiðnaöarfyrirtæki hafa þó öðlazt festu og hafa tryggt undirstöðu sína, ýmist með samvinnu við erlend iðn- fyrirtæki, eins og t. d. Runtal- ofnar og fleiri, eða- með aðstoð hins opinbera. Mörg eru að sigr- ast á erfiöleikum sfnum með þeim hætti. íslendingar eiga oröið einar sjö skipasmíðastöövar, sem starfa víös vegar um landið og geta afkastað um 2500 rúmlesta skipastól á ári og vantar þá að- eins lítið átak til þess að þeir geti sjálfir haldiö viö skipaflota sínum. j^áskyldan inálmiðnaðihum verður að telja plastiðnað- inn, sem seilzt hefur inn á sum svið málmiðnaðarins og með til- komu sinni átti sinn þátt í aö draga úr verkefnum hans. Framleiðsla olastefna hófst hér rúmum inannsaldri eftir að fyrstu plastefnin urðu til, sem var í upphafi þessarar aldar. í fyrstu voru plastvörur í lélegum gæðaflokki. en verðlagið skap- aði þessum iðnaði tilverugrund- völl. Gervi var svo mikið ó- dýrara strax og liðið v?r fram vfir tilraunaskeiöið. SÍBS á Reykjalundi verður að teljast brautryðjandi plast- iönaðar hér á landi, en fyrstu 10. síða

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.